Fréttablaðið - 26.01.2007, Blaðsíða 54
10
Dráttartóg er gott að hafa alltaf í jeppanum. Þegar bílar hafa fest sig er mun
líklegra að jeppafólk sé beðið að aðstoða. Hjá Artic Trucks fást dráttartóg
með góðri teygju sem dregur úr hættu á að kaðallinn slitni og valdi þannig
skemmdum á bílum. Dráttartógin eru til 10, 15 og 30 metrar að lengd. Þau
eru öll 24 mm þykk og hafa 30 prósent teygju. Báðir endar eru frágengnir,
annar með lykkju.
Dráttartóg kemur oft að
góðum notum
Það er ekki bara gamla fólkinu
sem skrikar fótur í vetrarhálkunni.
Svellið hefur valdið fólki á öllum
aldri tjóni um aldir og gott að grípa
til mannbroddanna þegar svellalög-
in eru mikil.
Mannbroddar eru til í mörgum
gerðum og eru yfirleitt afskaplega
handhægir og auðvelt er að skella
þeim undir skóna. Skokkarar, póst-
burðarfólk og fleiri nota gjarnan
mannbrodda í hálkunni og lætur
vel af notkuninni enda er hægt
að velja sér þá tegund sem hentar
hverjum og einum best. - sig
Verum stöðug á svellinu
Skíðaglaðir Íslendingar gera tals-
vert af því að fara til útlanda til að
skíða í miklum brekkum sem þar er
að finna. Austurríki og Ítalía hafa
ætíð notið mikilla vinsælda, en nú
er Norður-Ameríka einnig komin á
kortið. Þar ber helst að nefna Aspen
í Colorado, sem er eitt þekktasta
skíðasvæði heims. Staðurinn hefur
á sér orð fyrir að vera skíðasvæði
ríka og fræga fólksins. Skíðafæri
þar er einstaklega gott og helst
óbreytt frá morgni til kvölds.
Snjórinn í fjöllunum fjórum, sem
skíðafær eru í Aspen, er léttur sem
fis og þykir hinn fullkomni skíða-
snjór. Sameiginlegur skíðapassi
er fyrir fjöllin fjögur, Aspen, But-
termilk, Snowmass og Highlands, og
eykur það möguleikann á spennandi
upplifun á hverjum degi. Skíðarúta
gengur á milli svæðanna, gestum
að kostnaðarlausu. Skemmtilegar
krár er að finna um allt svæðið,
þar sem skíðamenn koma saman á
kvöldin, borða góðan mat og lyfta
glasi. Auk þess er að finna góða
verslunargötu í Aspen með öllum
helstu tískumerkjunum.
Eitt elsta og þekktasta
skíðasvæði heims
Í Colorado er skíðasvæði sem margir þekkja úr kvikmyndum og sjónvarpsþáttum.
{ vetrarlíf }
Gönguskór – veiðiskór
Icefin ehf
Nóatún 17 • 105 Reykjavík • s. 534 3177
Ekkert er til sparað!
• Qex-Tex öndunarþind úr mjúku leðri
• Vibram sóli, millisóli sem gefur stuðning
og dregur úr höggum
• Innlegg
• Vandaðir saumar
• 100% vatnsþéttir
• Bakteríudrepandi
• Mjúkir og þægilegir með góðri öndun
Innifalið í verði:
• Blandaðir ullarsokkar
• Skóáburður fyrir þindarskó
• Flísvesti
9900,-
+ 2000 (flutningskostnaður)
Hafnarstræti 19 Sími 551 1122
L I S T A M A Ð U R F E B R Ú A R M Á N A Ð A R
Helga Unnarsdóttir
leirkerasmiður