Fréttablaðið - 26.01.2007, Blaðsíða 92
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
LITTLE CHILDREN kl. 5.30, 8 og 10.30 B.I. 14 ÁRA
NIGHT AT THE MUSEUM kl. 5.40 og 8
KÖLD SLÓÐ kl. 5.50 og 8 B.I. 12 ÁRA
LITTLE MISS SUNSHINE kl. 5.50, 8 og 10.10 B.I. 7 ÁRA
CASINO ROYALE kl. 10.10 B.I. 14 ÁRA
MÝRIN kl. 10.20 B.I. 12 ÁRA
CHARLOTTE´S WEB ENSKT TAL kl. 3.10, 5.20, 7.30 og 9.40
VEFUR KARLOTTU ÍSL. TAL kl. 3.10 og 5.20
NIGHT AT THE MUSEUM kl. 3.20, 5.40, 8 og 10.20
SÝND Í LÚXUS kl. 3.20, 5.40, 8 og 10.20
APOCALYPTO kl. 8 og 10.55 B.I. 16 ÁRA
KÖLD SLÓÐ kl. 5.45, 8 og 10.15 B.I. 12 ÁRA
ARTÚR OG MÍNIMÓARNIR ÍSL. TAL kl. 3.40
NIGHT AT THE MUSEUM kl. 5.50, 8 og 10.10
APOCALYPTO kl. 10.00 B.I. 16 ÁRA
LITTLE MISS SUNSHINE kl. 6 og 8 B.I. 7 ÁRA
MIÐASALA Í SMÁRABÍÓ OG REGNBOGANN Á
Frábær mynd!
Óli Palli – Rás 2
3 TILNEFNINGAR TILÓSKARSVERÐLAUNA
Gagnrýni. baggalútur.is
20% afsláttur fyrir alla viðskiptavini Kaupþings
ef greitt er með korti frá Kaupþingi
FRÁBÆR ÆVINTÝRA-
MYND FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA
MEÐ BEN STILLER OG
ROBIN WILLIAMS
4 TILNEFNINGAR TILÓSKARSVERÐLAUNA
m.a sem besta myndin
FRÁBÆR BARNA-OG FJÖLSKYLDUMYND
FRÁ HÖFUNDI STÚART LITLA.
SÝND BÆÐI MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI.
Leik- og söngkonan Brandy
lenti í fjögurra bíla árekstri þar
sem ein kona dó. Slysið átti sér
stað á þjóðvegi í Kaliforníu
hinn 30. desember.
Brandy klessti aftan á annan
bíl og lést ökumaður hans eftir
að hafa lent í árekstri við annan
bíl. Verið er að rannsaka atvik-
ið. Hvorki áfengi né fíkniefni
komu við sögu í árekstrinum.
Brandy hefur gefið út fimm
plötur og vann Grammy-verð-
laun árið 1999. Á meðal þekkt-
ustu laga hennar eru What
About Us og The Boy Is Mine.
Hún hefur m.a leikið í sjón-
varpsþættinum Moesha.
Brandy hefur ekki viljað tjá
sig um málið. Umboðsmaður
hennar segir hana enn vera í
sjokki.
Í hörðum
árekstri
„Sko, hann Sverrir á Rex bað mig
um að sjá um eina helgi í mánuði.
Svona diskóhelgi,“ segir Kolla
Ólafs skemmtanastjóri með
meiru. Og hún leitaði ekki langt
yfir skammt eða til velmektarára
sinna og fjölmargra annarra
þegar aðalskemmtistaðurinn var
Hollywood við Ármúla. Haldið
verður á Rex á laugardagskvöld
sérstakt Holly-kvöld með tilheyr-
andi glimmeri, túberuðu hári,
bömpi og diskói. Vonast aðstand-
endur til þess að þetta verði fast-
ur punktur í skemmtanahaldinu.
Mánaðarlega.
Á árunum í kringum 1980 skipt-
ust skemmtanaglaðir Íslendingar
einkum í tvö horn.
„Pönkararnir fóru bara á Borg-
ina en við hin vorum í Hollý. Þetta
var danstími aldarinnar. Maður
fór bara til að dansa. Við stefnum
að því að vera með þessa orginal
diskótónlist sem þá var. Ekki mix-
aða heldur ekta ekta.“
Kolla segir svo frá að hún hafi
á sínum tíma verið öllum stundum
í Hollywood. Nánast fékk þangað
sendan póst sinn.
„Þarna voru tísku- og danssýn-
ingar. Ég var í danssýningunum
og maður bara átti heima þarna.
Þetta vantar í dag. Að maður sé
ekki bara að fara út til að drekka
heldur til að horfa á eitthvað. Ég
er búin að hafa samband við alla
sem voru áberandi í Hollý á sínum
tíma. Þarna verða allir helstu
diskóboltarnir og diskódrottning-
arnar.”
Á stundum laumuðust þeir sem
aðhylltust pönkið upp í Ármúla
enda verður að segjast að þar
voru sætustu stelpurnar. Og svo
verður enn að sögn Kollu – á Rex.
„Diskódrottningarnar eru
ennþá alveg roslega sætar. Nei-
neinei, ekki fölnuð diskóblóm.
Alls ekki. Þetta er kynslóð sem
heldur sér alveg ótrúlega vel.“
Diskódrottningarnar enn ótrúlega sætar
Hugi Halldórsson hefur
vakið mikla athygli í Þýska-
landi fyrir frammistöðu
sína sem stuðningsmaður
íslenska landsliðsins. En
það er ekki alltaf dans á
rósum að styðja sitt lið með
glans.
„Ég var nú ekki að reyna að espa
einhvern upp eða reita til reiði,“
segir Hugi Halldórsson, betur
þekktur sem Ofur-Hugi. En hann
skráði sig að öllum líkindum á
spjöld handknattleikssögu Íslands
í fyrradag. Lenti í klóm handbolta-
bullu frá Túnis sem fannst stolt
sitt sært þegar stuðningsmaður
Íslands númer eitt hljóp með
íslenska fánann framhjá stuðn-
ingsmönnum Túnis. Umræddur
maður hljóp Huga uppi og spark-
aði aftan í hann. Öryggisverðir
Halle gripu kauða glóðvolgan og
hentu honum út, Huga til mikillar
gleði. Enda einhverjum öðrum
hent út heldur en honum. „Kannski
að ég fái verðlaun fyrir háttvísi
enda var ég ekkert að espa mig
upp,“ segir Hugi. Stuðningsmenn
Túnis fóru mikinn í fyrri hálfleik
og léku við hvern sinn fingur.
Enda lið þeirra í góðum málum
gegn Íslendingum. Í seinni hálf-
leik snérist dæmið síðan við og
landsliðsmennirnir fór á kostum.
Og ástæða var fyrir Huga að sam-
fagna samlöndum sínum með
þessum hætti.
Sjónvarpsmaðurinn góðkunni
hefur staðið í stórræðum á HM.
Hann var varla fyrr búinn að
semja frið við íþróttafréttamann-
inn Adolf Inga Erlingsson eftir
minniháttar árekstra en að þetta
kom upp.
Hugi gerir lítið úr meiðslum
sínum og segir að varla sjáist á
sér. „Ég hef fengið verri tækling-
ar í fótboltanum heima,“ segir
hann kokhraustur. „Ég hafði bara
gleymt hvað þeir eru blóðheitir,“
bætir sjónvarpsmaðurinn við.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
Hugi fagnar góðu gengi Íslands á
þennan hátt. En á EM í Sviss tók
hann upp á því að hlaupa fyrir
framan stuðningsmenn Serba með
agnarsmáan fána. „Þeir hlógu
mikið að þessu,“ segir Hugi en því
var ekki að heilsa hjá Túnismönn-
um.
Hugi segir að stuðningsmenn
Íslands hafi brugðist við á hárrétt-
an hátt. Hafi haldið ró sinni og því
urðu engir eftirmálar af átökum,
ef átök skyldi kalla. „Þeim fannst
þetta pínulítið fyndið en athuguðu
þó hvort ekki væri allt í lagi með
mig,“ segir Hugi.
Leikkonan Anne Heche er skilin
við eiginmann sinn Coleman Laff-
oon eftir fimm ára hjónaband.
Heche, sem er 37 ára, og mynda-
tökumaðurinn Laffoon giftu sig í
september árið 2001. Eiga þau
saman einn son, hinn fjögurra ára
Homer.
Þau hittust við tökur á heimild-
armynd um endurkomu Ellen
DeGeneres sem uppistandari.
Heche átti einmitt í ástarsam-
bandi við Ellen sem stóð yfir í þrjú
ár. Lauk því árið 2000.
Heche leikur um þessar mund-
ir í sjónvarpsþættinum Men in
Trees. Á meðal kvikmynda sem
hún hefur leikið í eru Wag the Dog,
John Q og Donnie Brasco.
Heche skilin