Fréttablaðið - 26.01.2007, Blaðsíða 87
23 24 25 26 27 28 29
Fréttamaðurinn, veislustjórinn og
skemmtikrafturinn Gísli Einars-
son er í nýju landnámi og hefur
valið því stað á gömlum slóðum en
er kominn upp á loftið á Land-
námssetrinu í Borgarnesi. Hann
er líka nýr og betri maður, endur-
nýjaður eftir fertugsafmæli sitt í
gær, einum degi eldri í dag.
Sem veitir ekki af: í kvöld verð-
ur splunkunýtt leikverk frumsýnt
á Söguloftinu en ekki er mánuður
liðinn frá frumsýningu sagna-
söngleiksins Svona eru menn. Þar
voru á ferðinni vanir piltar, en í
kvöld stígur Gísli á svið á loftinu.
Í verkinu rekur hann þróunarsögu
Mýramannsins allt frá steinöld að
Mýraeldunum 2006. Þetta gerir
hann í eigin persónu með hjálp
hreyfimynda. Meðal gestaleikara
á hvíta tjaldin eru Ilmur Kristj-
ánsdóttir leikkona, Hallgrímur
Ólafsson og formenn stjórnmála-
flokkanna ásamt fjölda annarra
karla og kvenna sem hafa öslað
mýrar og ætt um móa í aldanna
rás.
Mýramaðurinn er þriðja frum-
sýningin á Söguloftinu. Sú fyrsta
var Mr. Skallagrímsson sem leikin
var fyrir fullu húsi frá opnun
Landnámsseturs til loka október.
Önnur var Svona eru menn með
þeim KK og Einari Kárassyni og
nú Mýramaðurinn eftir Gísla
Einarsson.
Gísla Einarsson þarf vart að
kynna fyrir landsmönnum. Hann
hefur heillað áhorfendur sjón-
varpsins með sinni einstöku og
einlægu framkomu, leitað uppi
athyglisverða Íslendinga á ferð-
um sínum út og suður. Nú beinir
hann kastljósinu í sinn eigin rann
og gerir upp við Mýramanninn í
sjálfum sér, en eins og allir vita
sem til þekkja er Mýramaðurinn
Hopo Palestrus kynþáttur út af
fyrir sig og ólíkur öðrum mönnum
segir Gísli, en hann þekkir vel til í
sinni sveit. Aðrir geta fengið
smjörþefinn af þeim kynþætti
með heimsókn í Borgarnes á Land-
námssetrið. Sýningar halda áfram
eftir kvöldið í kvöld næstu vikur
og jafnvel mánuði ef aðsókn leyfir
og Gísli nennir.
Jazzkvartettinn BonSom leikur
núna á Kaffi Rósenberg í kvöld og
annað kvöld. Sveitin leikur nýja
tónlist eftir hljómsveitarmeðlimi
og er hún undir fjölbreyttum
áhrifum – allt frá sykursætu rokki
til harðnaglapönks og framsæk-
innar djasstónlistar.
Sveitina skipa Eyjólfur Þor-
leifsson saxófónleikari, Andrés
Þór Gunnlaugsson gítarleikari,
Þorgrímur Jónsson kontrabassa-
leikari og Scott McLemore sem
leikur á trommur.
Fjörið hefst kl. 23 bæði kvöldin
og er aðgangseyrir 1.000 krónur.
Bræddar
nýsmíðar
Tvær ráðstefnur um málfræði
fara fram í fyrirlestrasal Þjóð-
minjasafns Íslands um helgina. Sú
fyrri hefst kl. 11 í dag og er á
vegum Norms. Þar er fjallað um
setningarstöðu sagna og er ráð-
stefnan hluti af stóru samnorrænu
rannsóknarverkefni.
Hin síðari fer fram á morgun
en þar er á ferðinni 21. Rask-ráð-
stefnan um íslenskt mál og
almenna málfræði. Þar verður
meðal annars rætt um nýútkomna
Stafsetningarorðabók en um hana
eru skiptar skoðanir.
Nánari upplýsingar má finna á
heimasíðunni www.malvis.hi.is.
Þingað um málfræði
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
0
6
5
9
Miðasala 568 8000
www.borgarleikhusid.is
DAGUR VONAR
EFTIR BIRGI SIGURÐSSON
TAKK FYRIR
FRÁBÆRAR
VIÐTÖKUR!
Vegna fjölda áskoranna hefur verið bætt
við aukasýningu sunnudaginn 28. janúar
Föstudagur 26/1 UPPSELT
Sunnudagur 28/1 AUKASÝNING
Laugardagur 3/2 UPPSELT
Sunnudagur 4/2 UPPSELT
Föstudagur 9/2 UPPSELT
næstu sýningar sun 11/2, lau 17/2, sun 18/2
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI