Fréttablaðið - 26.01.2007, Page 80

Fréttablaðið - 26.01.2007, Page 80
„Það bætir heilsuna talsvert að hafa gaman af því að vera til og taka ekki lífið of hátíðlega. Það er of stutt til þess.“ Rauði herinn kemur til Auschwitz Japönsk hátíð verður haldin í þriðja sinn í hátíðarsal Háskóla Íslands á laugardag á vegum sendiráðs Japans og japanskrar kennsludeildar innan Háskólans. Gestum verður boðið að upplifa Japan í gegnum margvíslegar uppák- omur og kynningar. „Á þessu ári verð- um við í fyrsta sinn með spurninga- keppni fyrir áhorfendur þar sem við könnum vitneskju þeirra um Japan. Við reynum að vera með eitthvað nýtt á hverju ári. Það hefur gengið mjög vel undanfarin tvö ár og um 400 manns hafa mætt,“ segir Kaoru Umezawa, japönskukennari við Háskóla Íslands. Á sviði háskólans verður Budo sýnt (Judo, Karate og Aikido bardagalistir) sem og kynningar á vegum nemenda svo sem anime og manga. Japanskar bókmenntir verða einnig kynntar ásamt japanskri matargerð. Hægt verður að smakka maccha te og nammi í tebásnum. Í japanska skraut- skriftarbásnum geta gestir fengið nöfn sín skrifuð í kanji- og katakana- letri eða farið og séð origami-bréfbrot í samnefndum bás. Að auki verður á hátíðinni m.a. ljósmyndasýning og úrval af mismun- andi gerðum japanskrar nútíma- tónlistar. Fólk mun einnig fá tækifæri til að læra að leika igo, sem er japönsk gerð skákar, auk þess sem karaoke- bar með óáfengum veitingum verður opinn. Allir básar lúta reglunni „fyrstir koma, fyrstir fá“. Hátíðin stendur yfir frá klukkan 13 til 18 og er frítt inn. Að sögn Kaoru er japanska kennd til þrjátíu og sextíu eininga við Háskóla Íslands. Fyrstu þrjátíu ein- ingarnar geta nemendur tekið hér á landi en hinar þrjátíu þarf að taka í Japan. Verið er að vinna í því að nem- endur geti tekið sextíu einingar hér á landi, enda er mikill áhugi fyrir því á meðal nemenda. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Arnþrúður Björnsdóttir frá Grjótnesi, Safamýri 38, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum 17. janúar síðastliðinn verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 30. janúar kl. 13:00. Sunna Karlsdóttir Andri Valur Hrólfsson Harpa Karlsdóttir Vésteinn Rúni Eiríksson Lilja Karlsdóttir Snorri Páll Snorrason Breki Karlsson Fanný Kristín Heimisdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elsku litla dóttir okkar, systir og barnabarn Lísa Guðný Jónsdóttir Tröllateigi 49, Mosfellsbæ, lést á gjörgæsludeild Landspítalans að kvöldi 23. janúar. Kristín Einarsdóttir Jón Karlsson Einar Karl Unnar Karl Emma Sól Guðný Kristín Árnadóttir Einar Markússon Unnur Óskarsdóttir Karl Jóhannsson Elsku mamma okkar, fósturmamma, tengdamamma, amma, langamma, langaló og systir, Kristín Eiríksdóttir Jöklaseli 25, 109 Rvk, lést á heimili sínu þriðjudaginn 23. janúar. Jarðarförin verður auglýst síðar. Jónína Þóra Sigurjónsdóttir Sveinn F. Sveinsson Ingibjörg T. Sigurjónsdóttir Salmann Tamimi Katrín Sigurjónsdóttir Sölvi Guðbjartsson Ásdís Þórðardóttir Hallgrímur J. Jónasson Barnabörn, langömmubörn og systkini. Í minningu ástkærrar eiginkonu og besta vinar, Ólafar Hermannsdóttur (Lóu) sérkennara, Barmahlíð 28. Ólöf lést hinn 16. janúar á LSH Fossvogi. Jarðarför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Ragnar Jóhann Guðjónsson Guðbjörg Ragnarsdóttir (Gugga) Holgeir Jónsson Ragnar Jóhann Holgeirsson og Berglind Anna Holgeirsdóttir. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og vinur, Björn Sigurðsson bóndi, Sauðhaga 2, Völlum, andaðist 20. janúar. Útför hans fer fram frá Egilsstaða- kirkju hinn 27. janúar kl. 14. Þeim sem vilja minn- ast hans er bent á Sjúkrahúsið á Egilsstöðum eða Krabbameinsfélagið. Jóhanna Freyja Björnsdóttir Magnús S. Magnússon Magnea Herborg Björnsdóttir Sigmar Björnsson Amalía Björnsdóttir Sigurður Ragnar Ásbjörg, Hrafnhildur, Magnús, Freyja, Björn Geir, Baldvin, Ólöf Sölvadóttir . Ástkær eiginmaður minn Pétur Kristjánsson áður til heimilis á Fáskrúðsfirði, lést hinn 23. janúar á hjúkrunarheimilinu Garðvangi. Jarðarför auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Bergþóra Eide Eyjólfsdóttir.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.