Fréttablaðið - 26.01.2007, Page 2
Hermann, er það rétt að
þið Gróa á Leiti eigið barn
saman?
Opið: Alla virka daga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00. Sími: 525 8020.
NOTAÐIR BÍLAR
BÍLL DAGSINS
VOLVO S40 2.4I
Nýskr. 08.04 - Sjálfskiptur - Ekinn 31 þús. km. - Allt að 100% lán.
Verð
2.460
.000.
-
Par sem gerði sig heimakomið í heitu pott-
unum í Laugardalslaug í fyrrinótt skildi þar eftir sig
sprautu og vínflösku sem tók síðan á móti fyrstu
sundlaugargestunum í bítið næsta dag.
Fastagestur í Laugardalslaug segir að hann og
fleiri hafi að venju verið mættir á staðinn þegar laug-
in var opnuð klukkan hálf sjö í gær. Úti í heita potti
hafi þeir bæði þurft að fiska upp Breezer-áfengis-
flösku og sprautu. Hann segir að hylki hafi að vísu
verið á sprautunálinni sjálfri en er undrandi á að ekki
skuli vera betur fylgst með slíkum hættulegum hlut-
um, sérstaklega fyrir berskjaldaða baðgesti. Hann
segir jafnframt að í næsta potti hafi ung stúlka fund-
ið einnota kveikjara.
„Það var par hér um klukkan fimm um nóttina
sem neitaði að hlýða næturverðinum og fara upp úr
svo það þurfti að kalla til lögreglu,“ segir Logi Sigur-
finnsson, forstöðumaður Laugardalslaugar, um
uppákomuna í fyrrinótt. „Þau fóru síðan mótþróa-
laust með lögreglunni.“
Logi segir það fremur sjaldgæft að fólk stelist í
laugina að næturlagi enda sé ávallt vörður á staðn-
um.
Heitu pottarnir voru ekki hreinsaðir sérstaklega
eftir hina óboðnu næturgesti. Mælitæki sýni ef eitt-
hvað sé athugavert við vatnið. „Hér er svo öflugt
hreinsikerfi að vatnið hefur algerlega verið búið að
endurnýja sig þegar fyrstu gestirnir mættu,“ segir
forstöðumaðurinn.
Landlæknisemb-
ættinu barst bréf frá geðlækni
hinn 16. janúar 2003 þar sem hann
sagði frá því að hann hefði ítrekað
heyrt frásagnir af ástarsambönd-
um og kynferðissamböndum
starfsmanna Byrgisins, bæði yfir-
manna og meðferðaraðila, við vist-
menn og sjúklinga sem þar dvöldu.
Rannsókn á málefnum Byrgisins
hófst hins vegar ekki fyrr en seint
á síðasta ári, tæpum fjórum árum
síðar.
Aðspurður staðfesti Matthías
Halldórsson, settur landlæknir, að
embættinu hefði borist bréfið en
sagði að því hefði ekki verið form-
lega svarað. Talið hefði verið að
málið væri embættinu hugsanlega
óviðkomandi þar sem Byrgið
heyrði ekki undir það. Að sögn
Matthíasar eru ekki til nein gögn
um að erindið hafi verið sent
áfram til þeirra opinberu aðila
sem fara með málefni Byrgisins.
„Ég var í leyfi á þessum tíma og
veit ekki nákvæmlega hvernig
brugðist var við þessu. En auðvit-
að er það þannig að það á að senda
svona áfram til þess aðila sem
hefur með málið að gera. Ég veit
ekki af hverju það var ekki gert.“
Í 7. grein stjórnsýslulaga er
fjallað um leiðbeiningarskyldu.
Þar segir að „berist stjórnvaldi
skriflegt erindi, sem ekki snertir
starfssvið þess, ber því að fram-
senda erindið á réttan stað svo
fljótt sem unnt er“.
Matthías viðurkennir að þótt
Byrgið hafi ekki heyrt undir land-
læknisembættið hefði það verið
góð stjórnsýsla að senda bréfið
áfram. Þegar hann var spurður
um hvort embættið hefði mögu-
lega brotið stjórnsýslulög vildi
hann ekkert um það segja. Matthí-
as segir að hann hafi rætt bréfið
við Sigurð Guðmundsson land-
lækni, sem er staddur í Malaví, í
gær en að Sigurður hafi ekki
munað eftir bréfinu.
Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis-
ráðherra segir að bréfið hafi ekki
borist formlega í ráðuneytið en að
ráðuneytinu hafi verið skýrt frá
innihaldi þess í lok síðasta árs.
„En ráðuneytinu var ekki sent
bréfið þegar það barst. Ég hef
rætt við settan landlækni um þetta
og við erum sammála um að það
hefði verið æskilegt að bregðast
við á sínum tíma.“
Þór Jónsson, upplýsingafulltrúi
félagsmálaráðuneytisins, staðfesti
að félagsmálaráðuneytinu hefði
heldur aldrei borist bréfið.
Embættið vissi af
samböndum í Byrgi
Landlæknisembættinu barst bréf frá geðlækni í janúar 2003 þar sem hann
sagðist ítrekað hafa heyrt af kynferðissamböndum milli starfsmanna Byrgisins
og vistmanna þess. Embættið brást hvorki við bréfinu né sendi það áfram.
Guðni Ágústsson
landbúnaðarráðherra og Árni M.
Mathiesen fjármálaráðherra,
fyrir hönd ríkisstjórnar Íslands,
og Bændasamtök Íslands
undirrituðu í gær nýjan samning
um starfsskilyrði sauðfjárræktar.
Samningurinn gildir til sex ára og
eru markmið hans meðal annars
að efla sauðfjárrækt sem
atvinnugrein, bæta afkomu
sauðfjárbænda og styrkja búsetu
í dreifbýli. Framlög ríkisins
hækka um 300 milljónir króna og
nema þannig 3.348 milljónum á
fyrsta ári samningsins. Framlög-
in lækka síðan í áföngum á
samningstímanum.
Styrkja á búsetu
í dreifbýli
Gera má ráð fyrir að ef
erlent vinnuafl hefði ekki komið hingað
til lands í miklum mæli væri verðbólga
um tveimur prósentustigum hærri nú.
Þetta er mat Eddu Rósar Karlsdóttur,
forstöðumanns greiningardeildar Lands-
bankans.
„Til að meta áhrif erlends vinnuafls er
til dæmis hægt að gefa sér að ekki sé
minni þensla nú en í síðustu uppsveiflu.
Þá hækkaði launakostnaður um sextán
prósent þegar hann fór hæst. Hann hefur nú hækkað
um ellefu prósent og er sennilega í hámarki,“ segir
Edda Rós.
Hún segir að í síðustu sveiflu hafi verðbólgan án
húsnæðis hæst verið um tíu prósent, en nú sé hún 7,1
prósent. Með húsnæðisverði hafi hún hæst farið í 9,4
prósent síðast, og 8,6 prósent núna.
Það sem hafi breyst sé fyrst og
fremst vinnumarkaðurinn. Því megi
segja að áhrifin sem erlent vinnuafl hafi
haft séu að verðbólgan hafi orðið um
tveimur prósentustigum lægri en hún
hefði orðið án þessa erlenda vinnuafls.
„Það er margt annað sem kemur inn
í þetta, breytt peningastefna, gengi
krónunnar og fleira slíkt, en í mínum
huga er vinnumarkaðurinn gríðarlega
mikilvægur í þessu,“ segir Edda Rós.
„Það eru til tölur þar sem fram kemur að um sex-
tán þúsund erlendir ríkisborgarar hafi verið við störf
á Íslandi á síðasta ári, og þar eru ekki taldir með þeir
sem hafa ríkisborgararétt. Þetta eru um tíu prósent
af vinnuaflinu, þannig að þetta er gríðarlega hátt
hlutfall og engin spurning að þetta starfsfólk hefur
létt á pressunni.“
Erlent starfsfólk léttir pressu
Hæstiréttur staðfesti
fimm ára fangelsisdóm Héraðs-
dóms Reykjavíkur yfir 22 ára
gömlum pilti, Daníel Þór
Gunnarssyni, fyrir tilraun til
manndráps. Daníel stakk mann
tvisvar sinnum með hnífi með þeim
afleiðingum að lunga hans féll
saman. Árásin var gerð í mars 2006
á skemmtistaðnum Gauki á Stöng.
Í dómsorðum héraðsdóms, sem
staðfest eru í Hæstarétti, segir að
hnífstunga í brjósthol hljóti alltaf
að teljast til þess fallin að valda
dauða og því hafi Daníel hlotið að
gera sér grein fyrir því að
langlíklegast væri að maðurinn
biði bana af atlögu hans.
Daníel er gert að greiða
fórnarlambi sínu 680 þúsund
krónur í skaðabætur með
dráttarvöxtum.
Fimm ár fyrir
hnífstungur
Orkuveita Reykja-
víkur mun kaupa fráveituna á
Álftanesi og taka við uppbyggingu
og rekstri fráveitumannvirkja í
sveitarfélaginu. Orkuveitan rekur
nú þegar fráveitu fyrir Reykjavík,
Akranes og Borgarbyggð.
Kaupverð fráveitunnar er 57,5
milljónir króna en með samning-
unum skuldbindur Orkuveitan sig
til að sjá um uppbyggingu hennar
til samræmis við kröfur um
umhverfisáhrif. Framkvæmdir í
þessu skyni eru taldar nema um
340 milljónum. Við kaupin
skuldbindur Orkuveitan sig til að
leggja tíu milljónir króna til
umhverfisseturs á Álftanesi.
Kaupir fráveitu
Álftaness
Eina leiðin til að Ísraelar
og Palestínumenn geti samið um
frið er að viðræðurnar miði að
tveimur ríkjum hlið við hlið, sagði
utanríkisráðherra Ísraels, Tzipi
Livni, í gær á hinu árlega heims-
efnahagsþingi. Livni sagði að
palestínskt ríki væri innan seilingar
og hvatti alþjóðasamfélagið til að
styðja við bakið á hófsömum öflum
á Mið-Austurlöndum. Beindi hún
orðum sínum sérstaklega til
Mahmouds Abbas, forseta Palest-
ínumanna, sem sagði í ávarpi fyrr
um daginn að tími friðar á milli
Palestínumanna og Ísraela væri
kominn. Sagði hann að friðarsam-
komulag myndi styrkja stöðu
hófsamra afla gegn öfgahópum.
Palestínuríki
innan seilingar Valtýr Sigurðsson, forstjóri Fangelsismálastofnunar,
segir að Byrgið hafi blekkt
stofnunina þegar
forsvarsmenn
þess voru spurðir
um leyfi fanga
sem þar dvöldu. Í
Fréttablaðinu á
miðvikudag var
sagt frá tveimur
dæmdum
ofbeldismönn-
um sem
afplánuðu hluta
dóma sinna í Byrginu, en
reyndust ganga frjálsir með leyfi
Guðmundar Jónssonar þegar
fangelsismálayfirvöld vitjuðu
þeirra. Valtýr segir það ekki vera
boðlegt að dæmdir ofbeldismenn
gangi frjálsir. Magnús Stefánsson
félagsmálaráðherra sagði
þjónustusamninginn milli
Fangelsismálastofnunar og
Byrgisins alfarið á ábyrgð þeirra
aðila.
Vorum blekktir