Fréttablaðið - 26.01.2007, Page 29
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
Bjarni Haukur Þórsson frumsýndi ein-
leikinn Pabbinn í Iðnó í gær. Þar fjallar
hann um allt mögulegt sem fylgir því að
sinna börnum og axla ábyrgð á uppeld-
inu. Því var freistandi að spyrja hann
hvað hann eldaði í alvörunni þegar
þriggja ára sonur hans væri svangur.
„Þegar við sonur minn ætlum að hafa það
virkilega náðugt á laugardegi saman fær
hann að ráða hvað haft er í matinn. Þá er það
hamborgari sem er vinsælastur,“ segir
Bjarni Haukur brosandi. „Sonurinn er áhuga-
maður um tómatsósu og vill hafa mikið af
henni. Því leggur hann áherslu á að hafa
hana líka borna fram sér og fær sér oftast
tómatsósu í forrétt sem hann klárar áður en
hann byrjar á borgaranum.“
Bjarni Haukur kveðst búinn að koma
drengnum inn á að það sé mikilvægt að borða
grænmeti og í staðinn fyrir að troða því á
hamborgarann skeri hann það niður, gulræt-
ur, agúrkur og kál, og hafi á sérstökum diski.
„Við jöplum á þessu feðgarnir og verður gott
af,“ segir hann og svo kemur snilldin. „Ég ber
fram heimagerðar franskar með borgurun-
um. Þá kaupi ég venjulegar kartöflur, sker
þær í báta og dreifi þeim á smjörpappírs-
klædda plötu. Síðan skelli ég yfir þær smá
olíu, salti og kryddi áður en ég set þær í ofn-
inn. Það er gott að forsjóða þær aðeins fyrst
og það er mjög mikilvægt að setja þær á
smjörpappír svo þær klessist ekki.“
Brauðið kveðst Bjarni Haukur líka hita
aðeins í ofninum og hefur hugmyndir að
ýmsum útfærslum á þessum ameríska rétti.
„Það er fínt að setja aðeins sýrðan rjóma á
milli og nachos-sósur og sinnep fara vel með
líka. Það er svo gott með hamborgarann að
það er hægt að borða svo margt með honum
og hann er svo handhægur í matreiðslu, fljót-
legur og góður. Svo er drukkið með þessu
sódavatn eða kók. Ekki er það nú flóknara.“
Hamborgari vinsæl-
astur hjá syninum
Árshátíðir og fermingar