Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.11.2007, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 29.11.2007, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI HEILBRIGÐISMÁL „Það má segja að lyfjakaup í gegnum netið séu rússn- esk rúlletta“, segir Sigurður Guð- mundsson landlæknir. Dreifing falsaðra lyfja er sívaxandi vanda- mál um allan heim. Fólk kaupir slík lyf í góðri trú en getur verið í mik- illi hættu með neyslu þeirra. „Líkurnar á því að lyf sem keypt eru á netinu séu fölsuð eru í mörg- um tilfellum talsvert miklar. Þá er verið að selja lyf undir ákveðnu nafni með tiltekna verkun en inni- haldið er einfaldlega ekki það sem það er sagt vera“, segir Sigurður. Fölsun á lyfjum er vaxandi iðn- aður víða um heim og dreifing þeirra er eitt aðal áhyggjuefni heilbrigðisyfirvalda í Þýskalandi og Bretlandi. Fölsuð lyf hafa smeygt sér inn í löglega dreifing- arkerfið á Evrópska efnahags- svæðinu; kerfi sem íslensk lyfja- fyrirtæki geta skipt við. „Fölsuð lyf geta verið lyfleysa, en líka eitthvað annað með mjög alvarlegum aukaverkunum“, segir Sigurður. Hann segir að í gegnum netið sé opinn gluggi inn í landið fyrir dreifingu lyfja sem allt í senn geta haft enga virkni eða innihalda efni sem eru stórhættu- leg þeim sem þeirra neyta. Rannveig Gunnarsdóttir, for- stjóri Lyfjastofnunar, tekur undir áhyggjur landlæknis um kaup fals- aðra lyfja á netinu. „Það eru stað- fest dæmi um að fölsuð lyf eru seld hjá netverslunum.“ Rannveig segir að fyrirkomulag lyfjaverslunar sé gott á Íslandi en nauðsynlegt sé að fyrirtæki og heilbrigðisyfirvöld haldi vöku sinni gagnvart fölsuðum lyfjum. - shá / sjá síðu 4 Sími: 512 5000 FIMMTUDAGUR 29. nóvember 2007 — 325. tölublað — 7. árgangur HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL. Anna Beta Gísladóttir er mikil kjólastelpa. Henni finnst gaman að gramsa í fataskáp móður sinnar og hefur stundum fundið þar flíkur sem hafa gengið í endurnýjun lífd segir Anna Beta, sem er greinilega skynsöm stúlka og lætur ekki stjórnast af tískustraumu Anna Beta segi t Alltaf verið kjólastelpa FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V AL LI Kjóllinn er af móður Önnu Betu og náði hann upphaflega niður á miðja leggi. PRENTIÐ VINSÆLTBrettafatnaður er orðinn að hátískuvöru sem ryður braut-ina þegar kemur að nýjum tískubylgjum, segir Björn Ólafsson, eigandi Brims.TÍSKA 2 SETIÐ VIÐ EYJUNABarstólar eru vinsælir eld-hússtólar og sjást á sífellt fleiri heimilum, sérstaklega þar sem heimilisfólk borðar við svokallaðar eyjur. HEIMILI 4 VEÐRIÐ Í DAG Fölsuð lyf geta verið lyfleysa, en líka eitthvað annað með mjög alvarlegum aukaverkunum. SIGURÐUR GUÐMUNDSSON LANDLÆKNIR Sölusýning í Njarðvík Listamenn styrkja kaup á gervilim- um til Afríku í fyrsta sinn. TÍMAMÓT 38 ÍSLENSKUR IÐNAÐUR Stærsti iðnmennta- skóli landsins Sérblað um íslenskan iðnað FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG ANNA BETA GÍSLADÓTTIR Gróf upp bláan kjól úr fórum móður sinnar tíska heimili heilsa Í MIÐJU BLAÐSINS Töffari inn við beinið Gísli Einarsson sjón- varpsmaður er með húðflúr og vill fá sér fleiri. FÓLK 66 VIÐSKIPTI Athafnamaðurinn Jón Ólafsson stefnir á að gera íslenska vatnið Icelandic Glacial að stærsta vörumerki Íslend- inga. Í ítarlegu viðtali við Financial Times segir hann að stefnan sé að slá út Icelandair. Íslenska vatnið eigi að sigra heiminn. Jón gagnrýnir einnig markaðs- setningu Íslendinga á eigin landi. Þannig hafi Egils til að mynda reynt að nota nekt og kynþokka í ímyndarauglýsingu fyrir vatnið sitt en Jón segir það einfaldlega hafa verið mistök. „Það er ekkert kynferðislegt við vatn heldur snýst það eingöngu um heilsu,“ segir hann. - fgg / sjá síðu 66 Jón Ólafsson og íslenskt vatn: Stefnir á að slá út Icelandair á laugardaginn 1. desember kl. 10–16 STÓR- SÝNING KIA ostur.is Gómsæt gjöf fyrir sælkera Kynnið ykkur úrvalið af sælkeraostakörfum á ostur.is BT bæklingur fylgir Fréttablaðinu í dag íslenskur iðnaður FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2007 SAMFÉLAGSMÁL Þótt Ísland tróni efst á lista Þróunar- stofnunar Sameinuðu þjóðanna yfir þau lönd þar sem best er að búa er ekki þar með sagt að allir búi vel hér á landi. Sævar Arnfjörð og kona hans, Ólína Ragnheiður Gunnarsdóttir, hafa búið í tjaldi í Laugardal í einn og hálfan mánuð. Þau búa þó ekki ein því þau hafa ellefu hamstra hjá sér. „Það fer alveg ágætlega um okkur hérna og hamstrana líka,“ segir Sævar. „Það er reyndar svolítið kalt núna en við reynum að hita þetta upp með sprittkertum og svo erum við með þennan fína prímus.“ Hann segir að þau hjónin kjósi frekar að búa í tjaldi en að nýta þá aðstöðu sem þeim bjóðist hjá borginni. „Við viljum frekar vera saman hér í tjaldinu en að ég búi í Skýlinu og hún í Konukoti. Það kólnar nefnilega ekkert í ástarglóðunum þótt það verði svolítið napurt hérna,“ segir hann og brosir. „Við höfum líka ofan af fyrir okkur með ýmsu móti; tökum í spil og svo erum við með tvo gítara í tjaldinu sem við glömrum stundum á og tökum lagið.“ Síðast leigðu hjónin íbúð á Dalvík en urðu að hverfa úr henni með skömmum fyrirvara þar sem hún fór á uppboð. Sævar hefur áður búið tvo vetur í tjaldi í Öskjuhlíðinni og Ólína Ragnheiður einn. „Einn daginn var tjaldið okkar bara tekið niður í Öskju- hlíðinni af borgarstarfsmanni,“ rifjar Ólína upp. „Þá gaukaði lögreglan því að okkur að Laugardalur- inn væri eini staðurinn þar sem löglegt er að tjalda þannig að við færðum okkur bara. Hér er stutt í sund og við förum á klósett í Glæsibæ.“ En fleira stendur til hjá þeim til að bæta sinn hag. „Ég viðurkenni að við erum drykkjufólk,“ segir Sævar og sýnir blaðamanni lítinn brúsa með sótthreinsunarspritti. „Við reynum að drekka ekki meira en þrjá á dag en svo vorum við einmitt að tala um það að reyna að hætta þessari drykkju.“ - jse / sjá síðu 18 Hjón kjósa frekar tjaldlíf að vetri til en að þiggja aðstoð frá borginni: Búa í tjaldi með hömstrum KUNNA ÁGÆTLEGA VIÐ SIG Hjónin Sævar Arnfjörð og Ólína Ragnheiður Gunnarsdóttir hafa búið í tjaldi í Laugardal í einn og hálfan mánuð. Þau vilja frekar vera saman í tjaldinu en hvort á sinni stofnuninni. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR STORMUR Í KVÖLD - Í dag verð- ur vaxandi austanátt, 18-23 m/s í kvöld og nótt en heldur hægari norðaustan og austan til. Stöku skúrir eða él í dag. Rigning eða slydda sunnan og vestan til í kvöld annars stöku él. Hiti 0-6 stig. VEÐUR            Lyfjakaup á netinu eru rússnesk rúlletta Landlæknir og forstjóri Lyfjastofnunar hafa miklar áhyggjur af lyfjakaupum á netinu. Hættan á að lyfin séu fölsuð er veruleg og geta því verið stórhættuleg. FÓTBOLTI Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari segir að sögur um meint agaleysi íslenska landsliðsins valdi sér ekki hugarangri. „Ég hef ekki áhyggjur af því að agaleysi verði vandamál. Ég treysti mínum leikmönnum og þeir verða að treysta mér. Annars náum við ekki árangri. Ég hef ekki hugsað mér að vera einhver fóstra fyrir leikmennina en þó er ljóst að hart verður tekið á agamálum komi þau upp,“ segir Ólafur. - hbg / sjá síðu 62 Nýr landsliðsþjálfari: Ekki áhyggjur af agaleysi ÓLAFUR JÓHANNESSON Mun treysta á almenna skynsemi landsliðsmanna. FRÉTTABLAÐIÐ/MARTIN SYLVEST Nóg komið Atvinnulífið þolir ekki lengur skerta samkeppnisstöðu af völdum verð- bólgu, hárra vaxta og óhóflegra gengissveiflna, skrifar formaður Samtaka atvinnulífsins. UMRÆÐAN 34 Liverpool lifir í voninni Liverpool á enn möguleika í Meistaradeildinni eftir 4-1 sigur á Porto. ÍÞRÓTTIR 58
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.