Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.11.2007, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 29.11.2007, Qupperneq 2
2 29. nóvember 2007 FIMMTUDAGUR HEILBRIGÐISMÁL Heilbrigðisstofn- anir í nágrenni Reykjavíkur verða styrktar með auknum fjárfram- lögum upp á tugi eða hundruð milljóna króna á fjárlögum ársins 2008. Stefnt er að því að flytja verkefni frá Landspítala til að létta álagi. Þetta mun koma fram í breyt- ingartillögum á fjárlagafrum- varpinu, sem mælt verður fyrir við aðra umræðu um frumvarpið á Alþingi í dag. Um er að ræða stofnanir í svokölluðum Kraga, til dæmis Heilbrigðisstofnun Suður- lands, Sjúkrahúsið á Akranesi og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Gunnar Svavarsson, formaður fjárlaganefndar, staðfestir að rætt sé um að styrkja rekstrar- grunn stofnana í nágrenni Reykja- víkur í samræmi við hugmyndir um færslu verkefna. Upplýst verður í dag hversu háar upphæðir er um að ræða, en Gunnar segir um verulegar upp- hæðir að ræða, tugi eða hundruð milljóna króna aukningu á fjár- framlögum til rekstrar sjúkra- stofnananna miðað við þær upp- hæðir sem kynntar voru í upphaflegu fjárlagafrumvarpi. „Til þess að umræddar stofnan- ir geti tekið við verkefnum þurfa þær auknar fjárveitingar,“ segir Gunnar. Heilbrigðisráðuneytið sendi heilbrigðisstofnunum í nágrenni borgarinnar bréf seint í október þar sem spurt er hvort stofnan- irnar geti sinnt auknum verkefn- um. Magnús Skúlason, fram- kvæmdastjóri Heilbrigðisstofn- unar Suðurlands, segir að hann hafi tekið jákvætt í erindi ráðu- neytisins, verið sé að byggja við stofnunina en mögulega þurfi að ráða starfsfólk til að sinna aukn- um verkefnum. Magnús Pétursson, forstjóri Landspítalans, segist hafa heyrt af áformum um að styrkja fjár- hag sjúkrahúsanna í Kraganum til þess að þau geti tekið við verkefn- um. Ekki sé þó farið að ræða hvaða verkefni væri best að flytja. „Auðvitað liggur nærri hendi að tala um sjúklinga úr heimahéraði, að það verði gert allt sem hægt er heima fyrir,“ segir Magnús Pét- ursson. Við það megi svo bæta öðrum verkefnum sem þessar stofnanir treysti sér til að taka að sér. Sjúkrahúsin í nágrenni Reykja- víkur hafa undanfarið tekið að sér ýmis verkefni. Þannig hefur Sjúkrahúsið á Akranesi til að mynda gert fjölda liðskiptaað- gerða undanfarið til að stytta bið- lista á Landspítalanum. brjann@frettabladid.is Til þess að umræddar stofnanir geti tekið við verkefnum þurfa þær auknar fjárveitingar. GUNNAR SVAVARSSON FORMAÐUR FJÁRLAGANEFNDAR RÚSSLAND, AP Kosningabaráttan fyrir forsetakjör í Rússlandi hófst formlega í gær, aðeins fjórum dögum fyrir þingkosningarnar sem verða á sunnu- daginn. Ekki er enn vitað hver verður frambjóðandi Sameinaðs Rússlands, flokks Vladimírs Pútín forseta. Hann getur sjálfur ekki verið í framboði vegna þess að stjórnarskráin heimilar ekki að forseti sitji lengur en tvö kjörtímabil í röð. Vinsældir Pútíns eru þó það miklar að í raun getur hann valið arftaka sinn. Nokkuð öruggt þykir að frambjóðandi flokksins, hver svo sem hann verður, muni sigra þann 2. mars næstkomandi, rétt eins og öruggt þykir að Sameinað Rússland beri sigur úr býtum í þingkosningunum um helgina. Margir aðrir hafa þó boðað forsetaframboð, þar á meðal Garrí Kasparov, fyrrverandi heimsmeistari í skák, sem nú situr í fangelsi í Moskvu fyrir að hafa skipulagt mótmæli gegn Pútín um síðustu helgi. Aðrir frambjóðendur verða meðal annars Gennadí Sjúganov, leiðtogi Kommúnistaflokksins, Mikhaíl Kasjanov, sem var fyrsti forsætisráðherra Pútíns en er nú í stjórnarandstöðu, Grígorí Javlinskí, leiðtogi frjálslynda flokksins Yabloko, og Vladimír Búkov- skí, andófsmaður frá tímum Sovétríkjanna sem nú býr í London. - gb VILL KASPAROV LAUSAN Boris Nemtsov, leiðtogi Bandalags hægriafla, krafðist þess að Garrí Kasparov yrði látinn laus. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Kosningabarátta fyrir forsetakjör formlega hafin í Rússlandi: Pútín getur valið arftaka sinn LÍFEYRISMÁL „Þetta gengur ekki upp. Mér sýnist að þessar 100 millj- ónir séu um þriðjungur af því sem við þyrftum til að fresta skerðing- unni,“ segir Vilhjálmur Egilsson, stjórnarformaður lífeyrissjóðsins Gildis. Félagsmálaráðherra hefur í sam- ráði við fjármálaráðuneytið boðið lífeyrissjóðunum 100 milljónir króna, gegn því að sjóðirnir fresti skerðingu lífeyris hundruða öryrkja um eitt ár. Afsvar lífeyris- sjóðanna var boðsent til félags- málaráðuneytisins í gær. Hrannar B. Arnarson, aðstoðarmaður ráð- herra, staðfestir að afsvarið hafi borist. Níu lífeyris- sjóðir, þar sem Gildi er stærstur, hyggjast skerða greiðslur til öryrkja úr sjóðun- um um mánaða- mótin. Matthildur Hermannsdóttir, framkvæmda- stjóri Greiðslu- stofu lífeyrissjóð- anna, bendir á að greiðslur til um 200 manns hækki. „Það eru bæði plúsar og mínusar í þessu.“ Greiðslur til um 1.600 einstakl- inga verða skertar. Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst nemur tekjutap sumra vegna þessa á milli 40 og 70 þúsund krónum á mánuði. Sigursteinn Másson, formaður Öryrkjabandalags Íslands, segir þetta ósvífið af lífeyrissjóðunum. „Miðað við nýjustu tölur um hagn- að þá yrði Gildi tvo til þrjá daga að vinna þetta upp,“ segir Sigursteinn. „Þessar upphæðir koma lítið við líf- eyrissjóðina, en þetta skipti fólkið sem verður fyrir skerðingunni öllu máli.“ „Ef við samþykkjum tilboð félagsmálaráðherra, þá erum við að skaða sjóðinn og við höfum ekki heimildir til þess,“ segir Vilhjálm- ur. - ikh Níu lífeyrissjóðir ætla að skerða greiðslur til öryrkja um mánaðamótin: Hafna tilboði félagsmálaráðherra VILHJÁLMUR EGILSSON BELGÍA, AP Bresk kona, Ann Gordon, lést eftir að átta villi- hundar réðust á hana þegar hún var úti að ganga með hund sinn skammt fyrir utan þorpið Nedyalsko í Búlgaríu á þriðjudag. Dánarorsök var fjölmörg hundsbit og er talið að Gordon, sem var 56 ára gömul, hafi látist á staðnum. Börn sem heyrðu Gordon kalla á hjálp reyndu að koma henni til hjálpar en hundarnir réðust þá einnig á þau. Þau sakaði þó ekki. Villihundar eru algengt vandamál í Búlgaríu og er talið að 35.000 villihundar gangi lausir í höfuðborg landsins, Sofiu. - sdg Nálægir reyndu að hjálpa: Kona lést eftir árás villihunda MIKIÐ ÓSKAPLEGA ER ÞETTA GÓÐUR SKÁLDSKAPUR – KOLBRÚN BERGÞÓRSDÓTTIR, KILJAN „JÓN KALMAN ER KOMINN Í RÖÐ OKKAR MESTU OG MIKILVÆGUSTU HÖFUNDA“ – PÁLL BALDVIN, FRÉTTABLAÐIÐ „ÞETTA ER FRÁBÆR SKÁLDSAGA“ –JÓN INGVI, ÍSLAND Í DAG UTANRÍKISMÁL „Þetta er spennandi en í þessu felst auðvitað mikil ábyrgð,“ segir Valgerður Sverris- dóttir þingmaður en hún hélt til Rússlands í gærmorgun þar sem hún mun starfa við kosningaeftir- lit næstu daga á vegum þing- mannasambands Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu. Tugir þingmanna víðs vegar úr Evrópu skipta liði milli borga og héraða Rússlands. Valgerður verður við störf í borginni Rosdov. - kdk Kosningar í Rússlandi: Valgerður lítur eftir Rússum Verkefni verði færð frá Landspítalanum Styrkja á heilbrigðisstofnanir í nágrenni Reykjavíkur og færa til þeirra verkefni til að létta á Landspítalanum. Fjárheimildir gætu aukist um hundruð milljóna króna. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvaða verkefni muni færast. LANDSPÍTALINN Til að hægt sé að létta álagi af Landspítalanum þarf að auka fjár- framlög til annarra heilbrigðisstofnana um tugi eða hundruð milljóna króna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA BÓKMENNTIR „Ég hef ekki lesið bókina og sé ekki að ég muni hafa tíma til þess á næstunni,“ segir Halldór Ásgrímsson, um ævisögu Guðna Ágústssonar, Guðni af lífi og sál, sem nýlega kom út. Halldór segist þó hafa heyrt ýmislegt um bókina. Spurður hvort hann telji frásögn Guðna koma heim og saman við minning- ar sínar segist hann ekki vilja tjá sig um það fyrr en eftir lestur. Spurður um hvort rétt hafi verið að Guðna hafi lítið verið gefið um fjölmiðlafrumvarpið sem lagt var fram árið 2003 svaraði Halldór: „ekki minnist ég nú þess,“ en vildi ekki tjá sig frekar um málið að sinni. - kdk Halldór Ásgrímsson: Hefur ekki lesið bók Guðna Fauk í MR-ingana? „Nei þetta var afskaplega skemmti- legt fólk og öll þreyta var fokin út í veður og vind daginn eftir.“ Fimmtíu manna hópur gamalla skólafélaga úr MR lenti í hrakningum á sunnudaginn vegna óveðurs í Borgarnesi. Unnur Halldórsdóttir, eigandi Hótels Hamars, leyfði fólkinu að gista endur- gjaldslaust hjá sér. SLYS Maður á áttræðisaldri lést í umferðarslysi á Suðurlandsvegi nálægt Litlu kaffistofunni eftir hádegi í gær. Fólksbíll sem maðurinn ók austur fór yfir á rangan vegarhelming og lenti framan á vinstra horni vörubíls sem var á leið vestur. Maðurinn er talinn hafa látist samstundis. Ökumaður vörubílsins slasaðist óverulega, en báðir ökumenn voru einir í bílum sínum. Suður- landsvegi var lokað fram til hálf sex, en á meðan var umferð beint um gamla Suðurlandsveginn austan við Sandskeið. Vegurinn var blautur þegar slysið átti sér stað en hálkulaus. Þetta er fjórtánda banaslysið í umferðinni á þessu ári. - sþs Banaslys á Suðurlandsvegi: Ók framan á vörubíl og lést HELLISHEIÐI Bíllinn endaði utan vegar eftir áreksturinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR FRAKKLAND, AP Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti hét því í gær að refsa óeirðaseggjum sem skutu á lögreglu í óeirðunum í úthverfum Parísar eftir að hann heimsótti á sjúkrahús einn lögreglumannanna sem særðust. Lögregluyfirvöld segja tíu lögreglumenn hafa særst eftir að skotið var á þá úr hagla- byssum á mánudagskvöld, en verkalýðsfélög lögreglumanna segja 30 hafa særst. Mikill viðbúnaður lögreglu var í gærkvöldi til að reyna að koma í veg fyrir ofbeldi. Átökin hófust á sunnudagskvöld eftir að tveir unglingspiltar létust í árekstri bifhjóls þeirra við lögreglubíl. - sdg Refsa fyrir árás- ir á lögreglu VIÐ ÖLLU BÚNIR Lögreglumenn í óeirðabúningi stóðu vaktina í gærkvöld í úthverfum Parísar. NORDICPHOTOS/AFP SPURNING DAGSINS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.