Fréttablaðið - 29.11.2007, Side 6

Fréttablaðið - 29.11.2007, Side 6
6 29. nóvember 2007 FIMMTUDAGUR ÚRSKURÐARMÁL Meðlimir AA-sam- takanna mega eftirleiðis ekki reykja innandyra á fundarstað sínum í Vestmannaeyjum. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands hafði veitt leyfi fyrir reykingum í herbergi inn af eldhúsi í húsi sem Vestmannaeyjabær á en AA-menn hafa til umráða. „Þetta verður ekki vinsælt hjá okkar fólki. Af einhverjum ástæð- um er það svo að flestir hérna reykja og það er dálítið heilagt fyrir þeim að fá að gera það óáreitt- ir. En auðvitað hafa þeir sem ekki reykja líka sinn rétt svo reykinga- fólkið verður víst einfaldlega að vera úti,“ segir oddviti AA-samtak- anna í Vestmannaeyjum. Einn félagsmanna í AA í Eyjum óskaði eftir því í desember 2006 að reykingar yrðu bannaðar í AA-hús- inu. Heilbrigðiseftirlitið brást við með því að mælast til þess við AA- samtökin að banna reykingarnar. Skömmu síðar barst Heilbrigðiseft- irlitinu bréf frá samtökunum þar sem fram kom að nú væri kvartað undan því að ekki mætti reykja í húsinu. Sú kvörtun var byggð á því að margir ættu erfitt með að hætta samhliða að drekka og reykja. Af þessari ástæðu heimilaði Heilbrigð- iseftirlitið reykingarnar. Þessa niðurstöðu sætti félags- maðurinn sig ekki við og kærði Heilbrigðiseftirlitið til úrskurðar- nefndar um hollustuhætti og meng- unarvarnir. Fyrir úrskurðarnefnd- inni kom fram það sjónarmið Heilbrigðiseftirlitsins að reykher- bergið inn af eldhúsinu væri ekki hluti af þjónusturými hússins og að „þar þyrfti enginn að fara inn nema til að reykja,“ eins og segir í umfjöllun úrskurðarnefndarinnar sem fellst ekki á rök Heilbrigðis- eftirlitsins í málinu. Segir úrskurðarnefndin að sam- kvæmt lögum um tóbaksvarnir séu reykingar ekki leyfðar í þjónustu- rými sem almenningur hefði aðgang að og það ætti við um hús- næði AA-samtakanna í Vestmanna- eyjum: „Úrskurðarnefnd telur að umrætt herbergi tilheyri þjónusturými húsnæðisins. Það er inn af eldhúsi og líklegt að tóbaksreykur eigi greiða leið um allt hús,“ segir í nið- urstöðu nefndarinnar. gar@frettabladid.is Banna alkóhólistum að reykja innandyra Felld hefur verið úr gildi heimild fyrir AA-félaga að reykja í félagsheimilinu í Vestmannaeyjum eftir að leyfið var kært. Samtökin segja erfitt fyrir marga að hætta samtímis að drekka og reykja. Bannið verður óvinsælt, segir oddviti AA. AA-HÚSIÐ Í EYJUM Reykingafólk meðal áfengissjúklinga í Vestmannaeyjum hefur átt lítið athvarf í einu herbergjanna í félagshúsinu en er nú útlægt þaðan. MYND/ÓSKAR Sekt vegna kjaftshöggs Karlmaður í Sandgerði hefur verið dæmdur í héraðsdómi í 200 þúsund króna sekt til ríkissjóðs vegna kjafts- höggs sem hann gaf manni. Honum var gert að greiða fórnarlambinu 140 þúsund í skaðabætur. DÓMSMÁL Kennarar sækja í leikskóla Grunnskólakennarar sækja nú í störf í leikskólum borgarinnar þar sem í boði eru hærri laun og ívilnanir í formi dagvistunar fyrir börn starfs- manna. Þetta segir áheyrnarfulltrúi skólastjóra í menntaráði Reykjavíkur. REYKJAVÍK Bjartara skammdegi! www.IKEA.is 1.990,- GLÄNSA ljósakrans hjarta B50, H42 cm © In te r I KE A Sy st em s B .V . 2 00 7 R V U N IQ U E 1 1 0 7 0 3 Rekstrarvörur - vinna með þér Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665 sala@rv.is • www.rv.is Nr. 11 R ekstra Góðar hugmyndir Hagkvæmarvistvænar mannvænarheildarlausnir 1982–2007 Rekstrarvörur25ára Rekstrarvörulistinn ... er kominn út A u g lý si n g a sí m i – Mest lesið Finnst þér að þingmenn eigi að hafa aðstoðarmenn? Já 25,5 % Nei 74,5 % Telur þú að það sé best að búa á íslandi? Segðu skoðun þína á vísir.is VERSLUN Ný stórverslun Hag- kaupa í Holtagörðum var opnuð á hádegi í gær. Verslunin er 8.000 fermetrar að stærð eða litlu minni en Hagkaupsverslunin í Smára- lind. Boðið verður upp á allt að 50 þúsund vörunúmer og verslun- inni skipt upp í nokkrar deildir, sem hannaðar hafa verið með þægindi viðskiptavina í huga. Hagkaupsmenn segja að stærsta kjötborð og salatbar á Íslandi sé að finna í Holtagörðum og sérstaklega er hugað að þeim sem þurfa að slaka á. Hægt verð- ur að setjast niður, glugga í blöð- in, kíkja á boltann eða annað það sem er í sjónvarpi. Verslunin mun iða af lífi, mikið verður um kynn- ingar og uppákomur. Hugmyndafræðin á bak við verslunina er að hægt sé að fá allt á sama stað, í einni ferð. Þá skipti engu hvort verslað sé í matinn eða jólagjafirnar keyptar. - shá Ný stórverslun opnuð í Holtagörðum: Þægindi fólks í fyrirrúmi BANDARÍKIN Bandarískum dómara var vikið frá störfum eftir að hann lét fangelsa alla þá sem voru í réttarsal hans þegar enginn vildi gangast við því að eiga farsíma sem hafði hringt meðan á réttarhöldum stóð. Nefnd sem tók fyrir mál dómarans, Robert Restaino, sagði hann hafa úrskurðað „án nokkurs lagalegs grundvallar“ og hagað sér eins og „lítilmótlegur harðstjóri“ að því er fréttavefur BBC greinir frá. Dómarinn, sem sagðist hafa átt í erfiðleikum í einkalífinu á þessum tíma, hefur 30 daga til að áfrýja úrskurði nefndarinnar. - sdg Pirraður yfir símhringingu: Fangelsaði alla í réttarsalnum SIGLINGAR Liðsmenn Landhelgis- gæslunnar tóku yfir stjórn flutn- ingaskipsins Axels í gær vegna ótryggs ástands um borð. Að sögn Georgs Lárussonar, forstjóra Landhelgisgæslunnar, þótti áhöfn- in ekki nægilega samtaka um stjórn skipsins þegar því var siglt frá Fáskrúðsfirði til Akureyrar. Skipið var einnig farið að leka. Flutningaskipið steytti á skeri við Borgeyjarboða austan við Hornafjarðarós á mánudagsmorg- un. Það var á leið til Póllands með fisk. Því var siglt til Fáskrúðsfjarð- ar til skoðunar síðar um daginn. Eftir skoðun var ákveðið að sigla því til Akureyrar til viðgerða. Fljótlega eftir að skipið lagði úr höfn kom í ljós að leki var um borð og dælubúnaðurinn hafði ekki undan. Þar að auki virtist sem ástandið um borð væri óöruggt. Því var ákveðið að Landhelgis- gæslan tæki yfir stjórnina og sigldi skipinu til Akureyrar. „Eftir samtöl við yfirmenn skipsins og útgerð þótti okkur ástandið á skipinu og almennt ástand um borð óöruggt, og yfir- tókum stjórn skipsins í samkomu- lagi við skipstjóra,“ segir Georg. Aðspurður hvernig „almennt ástand um borð“ sé skilgreint segir hann að menn hafi einfald- lega ekki verið nægilega samtaka um stjórn skipsins. Axel var á leið til Akureyrar þegar Fréttablaðið fór í prentun, og átti að koma þangað um klukk- an þrjú síðustu nótt. - sþs Landhelgisgæslan tók yfir stjórn flutningaskipsins Axels á leið til Akureyrar í gær: Áhöfnin þótti ekki nægilega samtaka Á STRANDSTAÐ Flutningaskipið Axel þar sem það steytti á skeri við Borgeyjar- boða austan við Hornafjarðarós. MYND/HORNAFJÖRÐUR.IS LÖGREGLUMÁL Harður árekstur varð á Faxabraut á Akranesi um ellefuleytið í fyrrakvöld þegar ökumaður missti stjórn á bíl í beygju með þeim afleiðingum að hann hafnaði á kyrrstæðum bíl af miklu afli. Þrennt var í bílnum, tveir karlmenn og ein kona, og voru þau flutt á sjúkrahúsið á Akranesi til aðhlynningar. Tvö þeirra voru svo flutt á slysadeild Landspítalans í Fossvogi með kvið- og höfuð- áverka. Auk þess missti annar karlmaðurinn framan af fingri. Bifreiðarnar eru taldar ónýtar eftir áreksturinn, en ökumaður er grunaður um hraðakstur. - æþe Harður árekstur á Akranesi: Grunaður um hraðakstur Með dóp á djamminu Karlmaður var dæmdur í Héraðsdómi Norðurlands eystra í fyrradag til að greiða sextíu þúsund krónur í sekt fyrir að hafa verið með um tvö og hálft gramm af amfetamíni í fórum sínum, þegar lögregla hafði afskipti af honum á skemmtistað á Akureyri í maí. Ákærði rauf skilorð með broti sínu, en hann á langan sakaferil að baki. DÓMSMÁL NÝJA VERSLUNIN Ýmsar uppákomur voru í Hagkaupum á fyrsta starfsdegi í gær. Stærsta kjötborð og salatbar er að finna í versluninni. KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.