Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.11.2007, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 29.11.2007, Qupperneq 16
16 29. nóvember 2007 FIMMTUDAGUR Heimilislausir á Íslandi, eða fólk götunnar eins og þeir kalla sig, er ekki hávær þrýstihópur þótt þeir gangi stöðugt um stræti miðbæj- arins og safnist gjarnan saman við Austurvöll. Það er ekki hægt að gera sér í hugarlund hvernig til- finning það er að eiga hvergi heima. Kaldar tær, hrollur í bein- um og tómur magi urðu þess vald- andi að ólýsanleg þreyta sveif á mig þegar ég settist aftur við skrifborðið mitt eftir þrjár klukku- stundir á götunni. Raunar sá ég eftir því að hafa ekki fengið mér sjúss með leiðsögumanni mínum. Örlítið kvíðin en ákveðin í að láta ekki slá mig út af laginu hringdi ég bjöllunni á Gistiskýlinu í Þingholtsstræti. Hávaxinn maður í skíðagalla, eilítið ringlaður að sjá, skálmaði út, rauk upp á hjól og þeyttist í burtu. Á eftir honum steig út mun eldri maður, Ingólfur Sigurgeirsson, viðmælandi minn. Grannvaxinn og lotinn í herð- um, andlitið falið bak við stórgerð gleraugu stóð hann í gættinni og hélt á rjúkandi heitum kaffibolla í annarri og sígarettu í hinni. Hann glotti örlítið og spurði mig hvort ég hefði munað eftir kartoninu. Ég brosti og hrósaði honum heldur fyrir hattinn sem hann bar. Góðlátlega leiðrétti hann mig, þetta væri ekki hatt- ur heldur deutsche mütze. Þar með var ísinn brotinn. Saga Ingólfs er brota- kennd. Hann sneri gjarn- an út úr þegar ég spurði hann hvernig hann eyddi dögunum, hvað hann borðaði, hvar hann svæfi og af hverju hann hefði flutt úr þjónustuíbúð- inni við Löngu- hlíð í Gistiskýl- ið. Ef marka má brotin sem ég púslaði saman í frásögn Ing- ólfs hefur hann eytt samtals þremur árum í Gistiskýl- inu. Þangað fór hann eftir að eig- inkona hans lést fyrir sex árum síðan. Þá eyddi hann tveimur árum í skýlinu, en fékk að lokum þjón- ustuíbúðina við Lönguhlíð og bjó þar um stund. Hann segist ekki hafa getað borgað leigu og þess vegna þurft að flytja aftur út. Það var fyrir einu ári. Hann segist ekki vera mikill óreglumaður. Hann lætur sér duga að fá tvo sjússa á dag, eigi hann fyrir því, og hann kemur raunar ekki meiru niður því meirihluti magans hefur verið fjarlægður. Ef til vill var það lán í óláni því hann á ekki alltaf fyrir mat. Þegar við hittumst var vika í að mánuðinum lyki og hann fengi fátæklegan elli- lífeyrinn. Hústökufólk Húsið stendur í miðborg Reykja- víkur en þó örlítið afskekkt. Nokkrum dögum eftir fund minn með Ingólfi klöngraðist ég með erfiðismunum upp smáan stiga og hífði mig inn um glugga með hjálp ljósmyndarans. Við vissum ekki hvað biði okkar en höfðum verið fullvissuð um að ekkert fólk yrði inni í húsinu sem hústökufólk hafði yfirgefið nokkrum dögum áður. Það fyrsta sem ég tók eftir voru skreyttir veggir með gíröffum og stórum graffítiverkum. Úða- brúsarnir mynduðu sjálfir lítið lista- verk í einu horn- inu innan um vínflöskur. Það var ískalt inni, enda ekk- ert gler í gluggan- um sem við notuð- um sem inngang. Sigrún Ólafsdótt- ir, sem áður hafðist við í hús- inu, hafði varað okkur við rottu- gangi. Við stöppuðum því niður fótum og litum í öll horn af ótta við að rek- ast á kvikindin. Á gólfinu voru sprautur, sjóveikitöflur og spritt- flaska merkt Sævari. Hann hefur augljóslega verið næturgestur í Gistiskýlinu því þar eru allar flöskur merktar með nafni og geymdar á meðan karlarnir sofa úr sér. Sigrún segir þau hafa átt her- bergið uppi á lofti. Þar var svo kalt að ég sá gufuna leggja frá andardrættinum. Lykt af þvagi, sagga og saur liggur í loftinu. Niðri er svefnherbergi parsins sem dvöldu í húsinu með Sigrúnu og Einari. Þar er slegið fyrir gluggann og kolniðamyrkur. Sigrún og Einar gistu í hita- kompu við verslun á Laugavegin- um og á sex öðrum stöðum víðs vegar um miðbæinn áður en þau ákváðu að leita til Gistiskýlisins og Konukots. Þau hittast daglega fyrir hádegi og eyða deginum saman á Óðalssetrinu, tröppum Óðals í Austurstræti. Sigrún og Einar segja stjórn- málamennina ganga daglega fram hjá þeim á Austurvelli en þeir yrði ekki á þau. Þau hafi því ákveðið beina útsendingu við meirihluta- skiptin í borgarstjórn Reykjavík- ur. eva@frettabladid.is FÓLK GÖTUNNAR I. HLUTI SIGRÚN OG EINAR Þau hafa búið á götunni í langa hríð en leituðu nýlega á náðir Gistiskýlisins og Konukots. Áður gistu þau í húsinu sem við heimsóttum og í hitakompu við Laugaveg. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Reykvíkingar án heimilis Lykt af þvagi, sagga og saur liggur í loftinu í húsi í Reykjavík þar sem hústökufólk hefst við. Eva Bjarnadóttir og Vilhelm Gunnarsson kynntust aðstæðum Reykvíkinga sem eiga hvergi heima og hafast við í ónýtum húsum eða leita á náðir hjálparstofnana. HEIMILISLAUS Ingólfi var úthýst úr þjón- ustuíbúð sinni við Lönguhlíð. HÚSTAKA Inngangur hússins er gluggi á annarri hæð hússins. Stiginn er brotinn og lélegur og enginn hægðarleikur að klifra þarna upp. SVEFNHERBERGI Slegið var fyrir gluggann inni í herberginu og þar var kolniðamyrkur. Raunar vissum við ekki hvernig var umhorfs fyrr en við sáum myndina. Á morgun: Heimilislausir í kerfinu líka.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.