Fréttablaðið - 29.11.2007, Síða 44

Fréttablaðið - 29.11.2007, Síða 44
 29. NÓVEMBER 2007 FIMMTUDAGUR4 ● fréttablaðið ● íslenskur iðnaður Erlendur Ólafsson rekur gleriðju á horni Sundlaugavegar og Laugar- nesvegar í Reykjavík. Þar fæst hann við speglagerð, glerslípun, glerskurð og innrömmun og slíka iðn hefur hann stundað í áratugi. „Ég hef rekið eigið fyrirtæki frá 1990 og var áður búinn að vinna við gleriðju í tuttugu ár hjá sama manninum, lengst af í Þverholt- inu,“ segir hann. Erlendur kveðst skera niður gler og spegla og ramma inn eftir óskum hvers og eins auk þess sem hann selji tilbúna spegla. „Speglar eru sjálfsagðir í forstofur, svefn- herbergi og ganga og svo hafa margir orðið spegla í stofunum líka,“ segir hann. „Það fer eftir smekk hvort og hvernig ramma fólk velur en silf- ur og stállíki er vinsælt ramma- efni ekki síst á baðherbergin,“ segir Erlendur. Hann er líklega sá eini hér á landi sem framleiðir spegla með hömruðum brúnum og segir þá sívinsæla. - gun Hamraðir speglar vinsælir Erlendur hefur fengist við glerslípun í 37 ár. Bættu um betur er tilraunaverk- efni sem gengur út á að meta færni sem aflað hefur verið á vinnu- markaði inn í iðnnám. „Mér sýn- ist á öllu að við förum af stað með tvo hópa eftir áramót, í bifvéla- virkjun og húsasmíði,“ segir Val- geir Magnússon, náms- og starfs- ráðgjafi hjá Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar, skammstafað Símey. „Það eru meistarar í iðninni, Verk- menntaskólinn og við sem komum að þessu verkefni. Iðan er komin með reynslu af því og við njótum handleiðslu hennar.“ - gun Bæta um betur Húsasmíði heillar marga. María Ragnarsdóttir sjúkra- þjálfari hefur hannað nýtt tæki sem veitir hlutlægar niður- stöður í mælingum á hreyfing- um hryggjarliða. „Tækið mælir hreyfingar á milli einstakra hryggjarliða. Það er lítið og nett þannig að haldið er á því, það lagt á bakið og þrýst með því á hryggjarliðinn. Það sýnir þá bæði magn þrýstingsins, sem er notað- ur, og hreyfinguna sem verður við þrýstinginn og við það fæst fall af þessu tvennu.“ Þetta segir María Ragnarsdóttir sjúkraþjálfari um nýtt tæki sem hún hefur unnið að því að þróa í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands og sérhæfða tæknimenn með styrk frá Tækniþróunar sjóði síðastliðin ár og stefnir að því að markaðssetja og framleiða á næstu árum. Tækið mun gagnast sjúkraþjálfurum við mælingar á stífleika liða hjá fólki með ein- kenni frá baki og gefa hlutlægar niðurstöður. „Hingað til hafa sjúkraþjálfarar þjálfað sig í að skynja og meta hreyfingar hryggjarliða,“ útskýrir María og bætir við að vandinn við þetta sé að niðurstöður matsins séu huglægar og geti því verið mismunandi milli mælanda og frá einu mati til annars. „Ég tel að tækið gefi nákvæmara mat á hrygghreyfingum sem getur leitt til markvissari meðferðar og betri árangurs.“ Eins vonast María til að tækið auki trúverðugleika meðferðar- innar fyrir þá sem beita henni. „Á ráðstefnum um allan heim segjast menn hafa náð svo og svo miklum árangri með meðferð, en þeir hafa verið gagnrýndir fyrir að geta ekki sýnt fram á það með rann- sóknum,“ segir hún. „Með tæk- inu verður það hægt í nákvæmum tölum.“ Hugmyndina að tækinu fékk María þegar hún var að hlúa að íþróttameiðslum sonar síns. „Hann fékk læsingu í mjóbakið og ég var að reyna að losa um hana. Þá hugsaði ég með mér að sniðugt væri að geta mælt hreyfingarnar. Þannig hófst þetta,“ segir María, sem aðspurð segist ekki skilja af hverju engum hafi dottið í hug að hanna svona mæli fyrr. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem María sendir frá sér nýjung í heil- brigðistæknigeiranum. Hún átti hugmyndina að öndunarhreyf- ingamælinum ÖHM-Andra, sem mælir öndunarhreyfingar, og lenti í fyrsta sæti í keppninni „Upp úr skúffunum“ árið 1999. María segir að með aðstoð hans hafi fengist ný þekking úr rann- sóknum sem hafi verið kynntar í erlendum tímaritum og á ráð- stefnum úti í heimi. Eftirspurn eftir mælinum er nú að aukast en María segir að það hafi engu að síður reynst erfitt að markaðssetja hann. Hún vonast til að það verði auðveldara með nýja mælitækið. „Kannski verður það auðveld- ara með nýja tækið,“ segir María hugsi. „Það er sett saman úr að- keyptum hlutum og líklegra til að verða framleiðsluvara hér en ÖHM-Andri. Heimsmarkaðurinn er stærri og tækið lítið, svo auð- velt ætti að vera að senda það út um allan heim.“ María hefur fyrir hönd fyrir- tækis síns MTT ehf. sótt um einka- leyfi á tækinu og því ferli er að ljúka. Hún hyggst kynna tækið á ráðstefnu í Hollandi í júní á næsta ári og reiknar með að framleiðsla þess hefjist í kjölfarið. - rve Ný uppfinning sem mun gagnast bakveikum vel María Ragnarsdóttir hannaði fyrir nokkrum árum öndunarhreyfingamæli. Nú hefur hún búið til tæki sem mælir hreyfingar á milli einstakra hryggjarliða. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Teikning af mælitækinu sem er lagt á bakið og þrýst á hryggjarliðinn. Stofnun og rekstur fyrirtækja er námskeið ætlað öllum sem hafa áhuga á gerð viðskipta- áætlana og vilja hefja sjálf- stæðan rekstur. „Þetta er vikulangt kvöld- og helgar námskeið sem snýst fyrst og fremst um hvernig skrifa eigi viðskiptaáætlanir. Að því loknu eiga þátttakendur að vera færir um að skrifa slíka áætlun, greina markaðstækifæri sinna viðskipta- hugmynda og geta reiknað út hvort viðskiptahugmyndirnar séu vænlegar eða ekki,“ segir Kristján Óskarsson verkefnastjóri hjá Ný- sköpunarmiðstöð Íslands um nám- skeiðið Stofnun og rekstur fyrir- tækja, sem hefst fimmtudaginn 6. desember. Markaðsmál, fjármál og rekstrar mál eru meðal þess sem tekið er fyrir námskeið- inu, sem byggist upp á fyrir- lestrum, hóp- og verkefnavinnu. Í verkefnavinnunni er unnið að viðskiptaáætlun á meðan á nám- skeiðinu stendur. Þátttakendur hafa síðan val um að halda í lokin kynningu byggða á eigin hug- myndafræði, án þess þó að þurfa að ljóstra upp viðskiptaleynd- armálum eins og Kristján orðar það. Er það gert til að fá álit sam- nemenda og heyra hvort hug- myndin sé rökfræðilega rétt. Að sögn Kristjáns er námskeiðið opið öllum sem hafa áhuga á að stofna fyrirtæki eða vilja ná betri tökum á rekstri fyrirtækis. „Til okkar kemur alls konar fólk, líka fólk með mikla reynslu af rekstri. Það sem menn læra á þessu nám- skeiði nýtist í hvað fyrirtækja- rekstur sem er.“ Hann bætir við að ástæður þess að fólk skrái sig á námskeiðið séu æði ólíkar, en algengt sé að menn leiti einhverrar heildarmyndar. „Mönnum finnst oft erfitt að henda reiður á sölumöguleikum hug- mynda sinna; hverjar hugsan legar tekjur og gjöld af hugmyndinni verði. Viðskiptaáætlun útskýrir þetta. Hún gefur þessar tölur.“ Kristján tekur fram að þó sé nauðsynlegt að menn geri sér strax í upphafi raunhæfar vænt- ingar til námskeiðsins. „Þeir koma ekki á námskeið af þessu tagi og stofna fyrirtæki daginn eftir. Viðskiptaáætlun og stofn- un fyrirtækis er meðganga, nokk- uð sem verður til hægt og rólega. Maður þróar fyrst hugmynd- ina. Svo lætur maður verkin tala. Þetta er þrepavinna, þar sem eitt er tekið fyrir í einu. Svo getur maður alveg leyft sér að anda á milli.“ Að námskeiði loknu geta þátt- takendur síðan leitað eftir frekari ráðgjöf hjá Impru, miðstöð upp- lýsinga og leiðsagnar fyrir frum- kvöðla og sprotafyrirtæki, sem er sérstök deild innan Nýsköpunar- miðstöðvar Íslands. „Þar geta allir fengið að minnsta kosti einn tíma til að viðra sínar hugmyndir,“ útskýrir Kristján. „Svo fá þeir hugsan- lega meiri hjálp ef þetta er ekki í beinni samkeppni við annað. Það er í raun undir hverjum og einum komið hvað hann heldur miklum samskiptum við okkur eftir að hann hverfur héðan.“ - rve Stofnun fyrirtækis er meðganga Kristján Óskarsson verkefnastjóri segir fullt af spennandi námskeiðum hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Fyrir utan námskeiðið Stofnun og rekstur fyrirtækja sé þar kennt námskeiðið Brautargengi, sem fjalli um sama málefni en sé sérsniðið að þörfum kvenna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.