Fréttablaðið - 29.11.2007, Page 51

Fréttablaðið - 29.11.2007, Page 51
Vilt þú og bæta afkomu fyrirtækisins? auka framleiðni Með þessari nýju aðferð er komið til móts við þarfir fjölmargra aðildarfyrirtækja SI sem vilja bæta rekstur sinn markvisst skref fyrir skref. Þótt fyrirtæki kjósi að taka aðeins fyrstu eitt eða tvö þrepin hafa þau þá þegar í mörgum tilvikum gert umtalsverðar úrbætur fyrir sig og viðskiptavini sína. Afraksturinn kemur fljótlega í ljós með aukinni framleiðni, betri framleiðslu og þjónustu. Öll fyrirtæki, sem eiga aðild að SI geta í fyrstu lotu óskað eftir úttekt á því hvort þau standast kröfur D-vottunar. Síðan taka þau næstu þrep upp á við - eftir því sem við á. Ekki þarf annað en að hafa samband við SI og panta slíka úttekt í síma 591 0100. Eitt símtal og ferðin er hafin Áfangaskipt gæðavottun SI Samtök iðnaðarins í samvinnu við Iðuna - fræðslusetur, kynna nýja og aðgengilega aðferð til að bæta rekstur fyrirtækja. Aðferðin byggist á áfangaskiptum aðgerðum sem miða að því að gera upplýsingar um alla rekstrar- þætti aðgengilegar og tryggja að þær séu nýttar til að bæta reksturinn. Áfangarnir eru fjórir og miða að því að bæta hvaðeina í skipulagi og rekstri sem hefur áhrif á fram- leiðni og afkomu fyrirtækja. Veitt verður gæðavottun fyrir hvern áfanga sem fyrirtækið getur strax nýtt í kynningarskyni. Frá stjórnleysi til umbreytingar og vaxtar Nánari upplýsingar Að baki kröfum hvers þreps eru skilgreiningar sem lýst er nánar á vef- setri SI; www.si.is/gsi Þar eru stuttar lýsingar sem hver stjórnandi getur borið saman við stöðu mála í sínu fyrirtæki.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.