Fréttablaðið - 29.11.2007, Page 54

Fréttablaðið - 29.11.2007, Page 54
 29. NÓVEMBER 2007 FIMMTUDAGUR14 ● fréttablaðið ● íslenskur iðnaður Eggert Ólafsson hefur hannað snjóflóðavarnarkerfi sem hann segir valda minni sjónmengun og jarðraski en leiðigarðar og auk þess sé aðferðin mun ódýrari. Eggert Ólafsson flugvirki hefur hannað snjóflóðavarnarkerfi sem gæti nýst til að vernda mannvirki eða önnur svæði en hugmyndina fékk hann eftir snjóflóðin á Súða- vík og Flateyri. „Hönnunin er sú að netpokar eru notaðir til þess að hemja snjó- flóð,“ útskýrir Eggert. „Hver poki er hálfhringlaga með ferhyrndu opi og virkar líkt trolli. Hann er tengdur við jarðfestingar með öfl- ugum taugum og komið fyrir í sér- stökum kössum sem eru staðsettir í farvegum hugsanlegra flóða. Þegar loftbylgja sem snjóflóð þrýstir á undan sér skellur á köss- unum opnast þeir og hleypa úr sér fyrrnefndum netpokum, svipað og þegar fallhlíf opnast. Hlerar á hliðartaugum og væng einingar á efstu hlið pokaopsins sjá til þess að pokinn haldist opinn þegar flóðið skellur á honum.“ Eggert bætir við að þegar snjórinn flæði inn í vörnina mynd- ist yfirþrýstingur í henni. Hitastig hækki með auknum hraða flóðs, þrýstingi og þéttleika möskvanna í netinu. Stór hluti af orku flóðsins breytist í varma þegar snjómass- inn þrýstist ásamt samþjöppuðu lofti í gegnum möskvana. Snjó- kristallarnir bráðni við þetta og myndi vatnsdropa sem frjósi aftur þegar úr netinu kemur og falli þar til jarðar vegna þess að þrýsting- ur er lægri neðan við vörnina. „Afgangur flóðsins stöðvast í vörninni og hleðst upp fyrir fram- an hana. Þegar snjóa leysir má setja hana aftur í kassann. Setja má bráðabirgðavörn ofan á eldri vörn og nota sömu festingar,“ segir Eggert, sem hefur víðtæka mennt- un og starfsreynslu á tæknisviði. Hefur hann meðal annars unnið sem útvarpsvirki, raftæknir og mælitækjavirki og var á sjó, sem hann segir allt saman hafa nýst honum við hönnun pokana, sem að hans sögn henta við ýmsar að- stæður. „Kössunum er einfaldlega fjölgað og raðað eftir aðstæðum og hentug möskvastærð valin. Þessi aðferð felur í sér minni sjón- mengun og jarðrask en umfangs- miklir leiðigarðar, sem hingað til hefur verið notast við, enda má fjarlægja kassana á sumrin,“ segir uppfinningamaðurinn og telur þessa aðferð mun ódýrari en fyrr- nefnda garða. „Snjóflóð hafa lítið verið rannsökuð og kerfið getur nýst til þess enda má koma fyrir í því átaksmælum,“ segir hann. Eggert hefur einkaleyfi á kerf- inu á Íslandi og í Bandaríkjunum og hefur sótt um það meðal annars í Noregi og Kanada. Viðbrögðin hafa þó verið misjöfn. Hann segir Svein Ólafsson, eðlisfræðing við Háskóla Íslands, hafa verið mjög jákvæðan gagnvart verkefninu en hann að- stoðaði Eggert jafnframt með það. „Veðurstofan, sem sér um rann- sóknir á snjóflóðum og vörnum við þeim, hefur hins vegar ekki viljað gefa jákvæða umsögn og því hefur ekki fengist styrkur úr Ofanflóða- sjóði til þess að gera rauntilraun á kerfinu, sem er dýr,“ segir Egg- ert. „Smærri tilraun í vindgöngum bendir þó til að það virki eins og til er ætlast.“ - þr Kerfi til varnar mannvirkjum Eggert Ólafsson telur að snjóflóðavarnarkerfið henti við ýmsar aðstæður og valdi auk þess minni sjónmengun og jarðraski en leiðigarðar. Snjóflóðavörnin sem ekki hefur fengist nægilegt fjármagn til að gera almennar tilraunir með. Jólatilboð Fólksbílakerra,150x108, 550kg burður Krónur 79.000.-

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.