Fréttablaðið - 29.11.2007, Page 66

Fréttablaðið - 29.11.2007, Page 66
38 29. nóvember 2007 FIMMTUDAGUR timamot@frettabladid.is MERKISATBURÐIR 1211 Páll Jónsson, biskup í Skálholti, andast. 1929 Bandaríski könnuðurinn Richard Byrd flýgur fyrstur allra yfir Suðurpólinn. 1947 Sameinuðu þjóðirnar ákveða að skipta Palest- ínu og búa til sjálfstætt ríki gyðinga í landinu. 1963 118 láta lífið þegar kan- adísk farþegaþota ferst í flugtaki. 1986 Dregið í fyrsta sinn í lott- óinu á vegum Íslenskrar getspár. 1986 Bandaríski leikarinn og átrúnaðargoðið Cary Grant andast á 83. aldurs- ári. 2000 Hilmir Snær Guðnason leikari hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin þegar þau eru veitt í fyrsta sinn. GEORGE HARRISON LÉST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 2001 „Það verður engin endur- koma hjá Bítlunum svo lengi sem John Lennon heldur áfram að vera lát- inn.“ Bítillinn George Harrison lést á þessum degi árið 2001, 58 ára að aldri. „Hér gefst fólki kostur á að kaupa myndir á lágu verði og hagnaðurinn rennur óskiptur í gervifætur handa fólki í Afríku sem þarf þeirra með,“ segir Hjördís Árnadóttir, félagsmála- stjóri í Reykjanesbæ. Hún er í hópi 15 listamanna á Suðurnesjum sem klukk- an 18 annað kvöld opnar sölusýningu á málverkum í húsnæði Kaffitárs að Stapabraut 7 í Reykjanesbæ. Sýningin er í samstarfi við IceAid, íslensk þró- unar-og mannúðarsamtök sem vinna að því að setja gervilimi á 100 manns sem hafa misst útlimi vegna styrjalda, pyntinga eða sjúkdóma og gera þeim kleift að lifa eðlilegu lífi. Hjördís segir frumkvæðið að sýningunni hafa komið frá Steinunni Björk Sigurðardótt- ur bókmenntafræðingi og hugmyndin hafi þróast í meðförum þeirra. Steinunn kveðst hafa fengið hug- myndina þar sem hún var á ferð á sögu- slóðum seinni heimsstyrjaldarinn- ar í haust. „Ég sá fyrir mér söfnun til styrktar börnum sem orðið hefðu illa úti í styrjöldum og ég var með ljósanótt í huga fyrir sýninguna en drifkraftur Hjördísar varð til þess að hugmyndin er strax að verða að veruleika.“ „Já, okkur fannst full ástæða til að tengja þetta jól- unum því hugsunin á bak við framtak- ið passar svo vel boðska p þeirra. Allir vilja gefa af sér á þessum tíma.“ Hjör- dís kveðst hafa leitað til Aðalheiðar í Kaffitári því hún hefði góða aðstöðu og væri oft með skemmtilegar sýningar. „Mér fannst hugmyndin frábær og var strax til í tuskið,“ lýsir Aðalheiður. Þá var eftir að tala við myndlistar- fólkið og þær stöllur segja það hafa verið afar jákvætt. Um 15 listamenn gefi verk sem verði seld á lágmarks- verði. „Auðvitað má bjóða meira í myndirnar ef vilji er til styrkja þetta góða málefni með enn stærra framlagi,“ bætir Hjördís við. En hversu lengi stendur sýningin? „Hún verður svo lengi sem eitthvað er til. Mig langar auðvitað að fólk flykkist til okkar annað kvöld og allt seljist upp. Það yrði skemmtilegast að það yrði dá- lítill hasar,“ svarar Hjördís glaðlega og bætir við. „Við vonum að okkar framlag geti nýst í gervilimi á að minnsta kosti tvö börn og ef vel tekst til getur þetta orðið hefð í jólaundirbúningnum.“ gun@frettabladid.is KAFFITÁR Í NJARÐVÍKUM : 15 LISTAMENN TAKA HÖNDUM SAMAN Gefa gervilimi til Afríku LEGGJA SITT AF MÖRKUM Steinunn Sigurðardóttir, Aðalheiður Héðinsdóttir og Hjördís Árnadóttir með nokkur þeirra verka sem boðin verða á spottprís í Kaffitári á morgun. MYND/VÍKURFRÉTTIR Knattspyrnufélagið FC Barcelona var stofnað á þessum degi árið 1899. Stofnendurnir voru frá Sviss, Englandi og Katalóníu með Joan Gamper í fararbroddi. Félagið óx hratt eftir stofnun þess og landaði sínum fyrsta titli aðeins tveimur árum eftir stofnun þess. Í júní á þessu ári voru skráðir meðlimir félagsins 156.366 og skráð stuðnings- mannafélög á heimsvísu voru 1782. Fjöldi íþróttagreina er iðkaður undir merkjum Barcelona en knattspyrnulið félagsins er þekktast þeirra og hefur unnið flesta titla. Tveir Íslendingar hafa leikið með Barcelona, Viggó Sigurðsson lék með handknattleiksliði félagsins en Eiður Smári Guðjohnsen leikur í dag með knattspyrnuliðinu. Heimavöllur FC Barcelona er Camp Nou sem tekur um 100.000 manns í sæti en í fyrra var Barcelona annað ríkasta íþróttafélag heims. Á síðasta leiktímabili, 2006-07, endaði Barce- lona í öðru sæti í spænsku úrvalsdeildinni undir stjórn Franks Rijkaard sem hefur verið við stjórn- völinn hjá liðinu frá árinu 2003. ÞETTA GERÐIST: 29. NÓVEMBER 1899 FC Barcelona stofnað á Spáni NOU CAMP Heimavöllur FC Barcelona er Nou Camp og tekur allt að 100.000 manns í sæti. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Ásgeir Sæmundsson rafmagnstæknifræðingur, fv. stöðvar- stjóri Andakílsárvirkjunar, Fornhaga 11, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut mánudaginn 26. nóvember. Jarðarförin auglýst síðar. Sæmundur Ásgeirsson Steinunn Jóhannsdóttir Ásdís Ásgeirsdóttir Helgi Árnason Haukur Ásgeirsson Ásdís Pálsdóttir Anna Guðný Ásgeirsdóttir Bjarni Á. Friðriksson Hafdís Ásgeirsdóttir Gyða Ásgeirsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar, Lars-Erik Bromell Fossvegi 2, Selfossi, lést á Landspítalanum í Fossvogi 20. nóvember. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Aðstandendur þakka auðsýnda samúð og hlýhug. Aðalheiður Hermannsdóttir Ester Karoline Broméll Þóra Sigríður Bromell Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengda- móðir, amma og langamma, Dóra Guðlaugsdóttir Heiðarvegi 9, Vestmannaeyjum, andaðist mánudaginn 26. nóvember á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja. Bjarni Sighvatsson Sigurlaug Bjarnadóttir Páll Sveinsson Guðmunda Áslaug Bjarnadóttir Viðar Elíasson Sighvatur Bjarnason Ragnhildur S. Gottskálksdóttir Ingibjörg Rannveig Bjarnadóttir Halldór Arnarsson Hinrik Örn Bjarnason Anna Jónína Sævarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegi eiginmaðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Svavar Elíasson Eyrarflöt 4, Akranesi, sem lést á heimili sínu sunnudaginn 25. nóvember, verður jarðsunginn frá Akraneskirkju föstudaginn 30. nóvember kl. 14.00. Sigríður Þorbergsdóttir Guðrún Jóna Svavarsdóttir Sigurður Örn Haraldsson Jón Smári Svavarsson Pálína Alfreðsdóttir Elín Klara Svavarsdóttir Steinn Mar Helgason Hilmar Svavarsson Hörður Svavarsson Ágústa Rósa Andrésdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar og afi, Stefán Lárus Árnason sem lést 22. nóvember sl., verður jarðsunginn frá Áskirkju föstudaginn 30. nóvember kl. 11.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Hjúkrunarheimilið Skjól. Kristín S. Haraldsdóttir Stella K. Stefánsdóttir Stefán Valdimarsson Sigrún M. Stefánsdóttir Erla D. Stefánsdóttir Helga Stefánsdóttir Leifur Þórsson Halla B. Stefánsdóttir og barnabörn. MOSAIK SKÁLDKONAN DIDDA ER 43 ÁRA Í DAG. STRANDVARÐA- LEIKKONAN GENA LEE NOLIN ER 36 ÁRA Í DAG. AFMÆLI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.