Fréttablaðið - 29.11.2007, Page 78

Fréttablaðið - 29.11.2007, Page 78
50 29. nóvember 2007 FIMMTUDAGUR maturogvin@frettabladid.is Vinsældir jólaglöggs aukast ár frá ári, og þeir eru margir sem eru farnir að bjóða vinum og vanda- mönnum upp á þennan kryddaða, heita rauðvínsdrykk. Á netinu er að finna aragrúa af uppskriftum, og samkvæmt hefðinni er iðulega boðið upp á piparkökur með jóla- drykknum góða. Það má þó breyta út af henni. Sumir matgæðingar mæla með því að bæta osti ofan á piparkök- urnar. Blámygluostar eins og gor- gonzola eða roquefort eru þar fremstir í flokki, og fara afar vel með glögginni. Geitaostur er held- ur ekki óvinsæll, og súkkulaði með hnetum og rúsínum ku einnig passa vel við drykkjarföngin. Þá má einnig prófa að krydda ávexti eins og perur með jólalegu bragði sem fengið er úr kanilsykri og heslihnetum. Það er um að gera að prófa sig áfram og gera glöggina að enn ánægjulegri samveru- stund. Hefð fyrir jólaglöggi JÓLAKRYDDUÐ GLÖGG Blámygluostar og piparkökur eru gott meðlæti með kryddaðri jólaglögginni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Þeir eru eflaust margir sem svitna af tilhugsuninni um allar hitaein- ingarnar sem bíða handan við hornið, í smákökubakstri, tertu- boðum, konfektgerð og öllu til- heyrandi. Maður lifandi hyggst þess vegna bjóða upp á námskeið um gerð heilsusamlegra eftir- rétta. „Við verðum með alls konar hollar jólauppskriftir; tertur og deserta og konfekt og fleira. Það verður farið í hvernig hægt er að gera baksturinn hollan, án þess að fórna nokkru í fegurð eða gæðum,“ útskýrir Auður Ingibjörg Kon- ráðsdóttir, einn meistarakokka Manns lifandi og leiðbeinandi á námskeiðinu, sem er fyrsta eigin- lega jólanámskeiðið sem Maður lifandi stendur fyrir. Á námskeiðinu verður til dæmis farið í konfektgerð úr lífrænum og hollum hráefnum. „Það hleypir ekki blóðsykrinum í uppnám eins og venjulegt konfekt. Fólk hefur fyrir vikið meiri orku og nýtur jólanna betur,“ útskýrir Auður. Fyrsta námskeiðið fer fram í kvöld, en öðru hefur verið bætt við 6. desember næstkomandi. Námskeiðin fara fram í húsnæði Manns lifandi í Borgartúni, en hægt er að skrá sig á madurlif- andi@madurlifandi.is. - sun Hollur jólabakstur Trönuber … … eru ómissandi í hátíða- haldi vestanhafs. Auðveld- ara er að nálgast trönu- berjasafa hér á landi, en hann er oft notaður í kokkteila. Blandaðu honum við sódavatn og sítrónusafa og fáðu þér fagurrauðan svala- drykk í skammdeginu. Konfektgerð landsmanna fer óðum að hefjast. Úr ýmsu er að velja í þeim efnum, enda óteljandi upp- skriftir til að girnilegu konfekti. Hafliði Ragnarsson súkkulaði- meistari hefur staðið fyrir nám- skeiðum í konfektgerð fyrir þá sem vilja fikra sig upp úr súkkulaði- hjúpuðu marsípani og í eitthvað aðeins flóknara. Hann segir fólk helst eiga í vandræðum með að vinna með gott súkkulaði, sem hann mælir þó hiklaust með. „Það er því miður ekki til nein töfralausn á því að finna rétt hita- stig á súkkulaðinu. Temprunin er aðalvandamálið, og það er ekki eitt- hvað sem maður gerir bara einu sinni og getur svo alltaf gert,“ segir Hafliði. „Þegar fólk er að gera þetta heima og kaupir gott súkkulaði sem kostar kannski svolítinn pening er ekkert leiðinlegra en þegar allt fer í vaskinn,“ segir hann. Hafliði mælir með því að þeir sem eru að hefja vinnu með lúxus- súkkulaði forðist því að steypa mola í mót. „Það er mun auðveldara að rúlla fyllingum upp úr súkkulaði eða hjúpa þær. Þá þarftu ekki að bíða eftir að það losni úr mótum og því um líkt,“ útskýrir hann. Ef allt annað bregst er svo alltaf hægt að renna við í Mosfellsbakaríi og kaupa eitthvað af konfekti Haf- liða. - sun Mælir með ekta súkkulaði EKTA SÚKKULAÐI ERFITT Hafliði segir fólk helst eiga í vandræðum með að finna rétt hitastig á súkkulaðinu þegar það vinnur með ekta súkkulaði. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Óskar Guðjónsson tónlistarmaður er mikill áhugamaður um mat, þegar hann hefur tíma til. Hann kann að meta einfaldleika og tilraunir. Óskar deilir uppskrift að kartöflugrat- íni með lesendum Fréttablaðsins að þessu sinni. Þar sameinast einfaldleiki og tilraunastarfsemi. „Einfaldleikinn í uppskriftinni er sá að þetta er í rauninni bara gratín, úr sætum kartöfl- um og rjóma. Síðan getur maður hins vegar farið með þetta í þá átt sem maður vill, bara eftir stemningu. Ég uppgötvaði það þegar ég fór að prófa mig áfram og henti ofan í þetta annarri uppskrift sem ég geri stundum. Þá fylli ég döðlur af gráðaosti og vef utan um þær beikoni. Ég prófaði að setja þetta bara með kartöflunum, og út frá því hef ég prófað mig áfram,“ útskýrir Óskar. Á stundum notar hann ristaðar furuhnetur eða kókosflögur, og stundum allt saman. „Þetta er eins auðvelt eða flókið og maður vill hafa það,“ segir hann. Óskar kveðst vera mikill áhugamaður um mat þegar tími vinnst til „Ég vil gefa mér tíma í þetta. Ég er ekki mikið fyrir að kaupa mér eitthvað tilbúið, ég er svolítið snobbaður að því leytinu til,“ segir hann og hlær við. „Þegar maður hefur tíma í matreiðslu er þetta líka að stórum hluta bara hugleiðsla og afslöppun, og árangurinn sést vel. Þegar þú ert afslappaður kemur maturinn vel út. Ef þú ert hins vegar stressað- ur verður allt seigt og ógeðslegt,“ bætir hann við. Óskar hefur haft lítinn tíma til eldamennsku að undanförnu, enda nóg að gera í tónlistinni. Í næstu viku kemur svo út diskurinn Ó, ó, Ingibjörg, þar sem hann og systkini hans tvö leiða saman hesta sína. Kartöflugratínið hentar sem meðlæti með ýmsum mat, en það má eins bera fram með salati og góðu brauði ef svo ber undir. Tímabundinn áhugamaður HUGLEIÐSLA Í ELDHÚSINU Óskar Guðjónsson segir góðan skurk í eldhúsinu jafnast á við hugleiðslu og afslöppun. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR SÆTT KARTÖFLUGRATÍN sætar kartöflur rjómi gráðostur döðlur steikt beikon í bitum ristaðar furuhnetur eða möndluspænir hvítlaukur rauðlaukur dijon sinnep smá ostur Sætar kartöflur afhýddar og skornar í meðalstóra bita. Komið fyrir í eldföstu móti, svo þær fylli vel út í það. Rjóma hellt í mótið þannig að hálffylli það. Eldað í ofni á 200 gráðu hita í allt frá 30 mínútum til 60 mínútna, eftir magni. Fylgist með því að ekkert brenni. ORKUMEIRI UM JÓLIN Auður Ingibjörg Konráðsdóttir segir lífrænt konfekt úr hollum hráefnum hafa margt til brunns að bera. FRÉTTABLAÐIÐ/ Hvaða matar gætirðu síst verið án? Banana, súkkulaðis og nýmjólkur. Besta máltíð sem þú hefur fengið: Í tilefni af fertugsafmæli mannsins míns snæddum við á Kong Hans kælder við Víngarðsstræti í Kaupmanna- höfn á föstudagskvöldið. Maturinn samanstóð meðal annars af trufflum, svína- og andakjöti. Mér skilst að vínlistinn hafi slegið Lágt muldur þrumunnar út í fegurð. Er einhver matur sem þér finnst vondur? Ó já, slátur, nýru, lifur, hjörtu og þess konar innmatur. Leyndarmál úr eldhússkápnum: Það hljóta að vera hveitibjöllurnar sem eitt sinn hreiðr- uðu þar um sig svo kalla þurfti til meindýraeyði. Hvað borðar þú til að láta þér líða betur? Ég hef aldrei hallað mér að mat af tómri vanlíðan. Heldur gripi ég til svefnsins. Hvað áttu alltaf til í ísskápnum? Mjólk, skyr, ost og svo auðvitað fullt af naglalökkum! Ef þú yrðir föst á eyðieyju, hvað tækirðu með þér? Ég hlýt að mega nefna Jack, ráðagóða lækninn úr Lífsháskaþáttunum. Hann yrði ekki lengi að verða mér úti um steikur eða jafnvel koma mér í burtu af þessari eyju. Þangað til nösluðum við í fríhafnarna- mmið mitt. Hvað er það skrítnasta sem þú hefur borðað? Ég hef aldrei borðað neitt skrítið, held ég, en í fyrra bauð ég tattúveruðum starfsmanni á Kastrup að borða miðann, sem á stóð að ég ætti að greiða 7.000 kr. í yfirvigt, ef ég slyppi við það. „Venjulega þoli ég ekki Íslendinga en þú ert skemmtileg,“ sagði maðurinn, þreif af mér miðann, vöðlaði honum saman og henti honum. MATGÆÐINGURINN GERÐUR KRISTNÝ GUÐJÓNSDÓTTIR RITHÖFUNDUR Hjörtu, nýru og lifur versti maturinn

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.