Fréttablaðið - 29.11.2007, Síða 82

Fréttablaðið - 29.11.2007, Síða 82
54 29. nóvember 2007 FIMMTUDAGUR Sænska söngkonan Carola, sem vann Eurovision-keppnina 1991 með laginu Fångad av en Storm- vind, heldur aukatónleika í Grafarvogskirkju 20. desember. Uppselt varð á fyrri tónleika hennar sem hefjast klukkan 20 og því var ákveðið að bæta aukatónleikum við sem hefjast sama kvöld klukkan 22. Carola ætlar að flytja efni af nýrri jólaplötu sinni sem nefnist I denna natt blir världen ny – Jul i Betlehem II og inniheldur margar þekktar jólaperlur. Því má búast við hlýlegri jólastemningu í Grafarvogskirkju rétt fyrir jólin. Miðasala á aukatónleikana er hafin í Fíladelfíu og á hljomar.is. Tónleikum bætt við CAROLA Sænska söngkonan Carola heldur tvenna tónleika í Grafarvogskirkju 20. desember. Leikarinn Jonathan Rhys Mayers þolir ekki þegar leikkonur neita að afklæða sig fyrir framan myndavélina. Mayers leikur breska konunginn Hinrik VIII í sjónvarpsþáttunum vinsælu The Tudors sem sýndir eru á Stöð 2. „Leikkonur sem tuða og vilja ekki fara úr fötunum þótt það standi í handritinu gera mig brjálaðan! Mig langar að skera af þeim eyrun,“ segir Mayers. Vonandi mun ekki koma til þess þegar íslenska leikkonan Aníta Briem gengur til liðs við leikhópinn, en hún mun fara með hlutverk þriðju eiginkonu Hinriks, Jane Seymore, í næstu þáttaröð. Vill leikkon- ur fáklæddar JONATHAN RHYS MEYERS Langar að skera eyrun af leikkonum sem neita að fækka fötum framan við myndavélina. Næsta plata bandarísku hljóm- sveitarinnar Weezer heitir ekki Tout Ensemble og kemur ekki út 22. apríl á næsta ári. Fregnir um plötuna birtust nýverið á heima- síðunni albumsix.com og áttu þær ekki við rök að styðjast. „Weezer og Geffen Records tengjast albumsix.com á engan hátt. Nýja Weezer-platan heitir ekki Tout Ensemble og það hefur ekkert verið ákveðið með útgáfudag,“ sagði í yfirlýsingu á heimasíðu Weezer. Fólkið á bak við albumsix.com hefur viðurkennt að um gabb hafi verið að ræða. Notaði það einnig tækifærið á síðu sinni til að kynna nýtt spjallsvæði fyrir aðdáendur Weezer. Aðdáendur gabbaðir WEEZER Næsta plata hljómsveitarinnar Weezer kemur ekki út 22. apríl. Rapparinn Poetrix hefur frestað útgáfu á fyrstu sólóplötu sinni, Fyrir lengra komna, þar til í febrú- ar. „Ég ákvað að vera ekki með í þessu jólaflóði, ég bara nennti því ekki,“ segir Poetrix, sem heitir réttu nafni Sævar Daníel Kolanda- velu. „Ég vil að fólk kaupi plötuna af því að það langi að hlusta á hana en ekki til að gefa litla barninu sínu pakka. Ég er að gera tónlist sem nær til fólks og er ekki hluti af hugmyndafræðilegu oki um það hvernig best er að hafa markaðs- setninguna. Ég er kominn með ógeð á því að fólk sé að kaupa ímyndir en ekki plötur,“ segir Poetrix. „Að sjálfsögðu er ég líka að reyna að koma hip hopinu úr þessari rotþró sem það hefur verið í undanfarin ár.“ Platan átti upphaflega að koma út í byrjun október en þá var ákveðið að „mastera“ hana og hljóðblanda á nýjan leik. Hún kemur til landsins í þessari viku en þrátt fyrir það ætlar Poetrix að liggja á henni eins og ormur á gulli. „Ég er orðinn svo vanur því að fresta henni. Þetta er eins og maður sé búinn að vera óléttur í tvö ár,“ segir hann en platan tók tvö ár í vinnslu. Við gerð hennar fékk hann til liðs við sig einvala lið tónlistarmanna, þar á meðal Bubba Morthens, Einar Ágúst, Davíð Þór Jónsson, Steve Samp- ling, Rósu úr Sometime og Smára „Tarf“. „Það var stórfengleg upp- lifun af vinna með þeim. Þetta er ótrúlega gott fólk í alla staði,“ segir Poetrix, sem lauk nýlega upptökum á myndbandi við lagið Draumar sem hann syngur með Rósu. Er það væntanlegt í spilun í febrúar. - fb Frestar sólóplötunni Vinurinn fyrrver- andi, Matthew Perry, leikur mann sem vaknar upp einn daginn sem sautján ára unglingur í gamanmyndinni 17. Myndin sækir hugmynd sína að einhverju leyti til hinnar vinsælu Big frá níunda áratugnum með Tom Hanks í aðalhlutverki. Í 17 ákveður hinn sautján ára Perry að skrá sig í skóla barna sinna svo hann geti verið nálægt þeim. Perry sést næst á hvíta tjaldinu í myndinni The Laws of Motion þar sem hann leikur á móti Hilary Swank, Ben Foster og Ginnifer Goodwin. Breytist í 17 ára ungling MATTHEW PERRY Perry breytist í sautján ára ungl- ing í myndinni 17. Önnur skáldsaga Ara Trausta Guðmundssonar, Land þagnarinnar, segir frá stálpuðum dreng sem spyr fjölskyldumeðlimi sína um fortíðina án þess að fá skýr svör. Fáir vita að um sjálfs- ævisögulegt verk er að ræða og að Ari Trausti eyddi, líkt og sögupersóna bókarinnar, þremur árum í að leita afa síns í Þýskalandi. „Þetta eru eiginlega tvær sögur. Annars vegar saga af dreng sem fer að pæla í því af hverju hann eigi ekki afa eins og önnur börn. Smám saman kemst hann að því að enginn veit neitt um afann – ekki einu sinni amman sem þó átti barn með honum,“ segir Ari Trausti en umrætt barn er móðir Ara. „Drengurinn kemst auk þess að því að pabbi hans hafi fyrst verið giftur ömmu hans og síðar mömm- unni sem var stjúpdóttir hans. Með henni bjó hann drenginn til og öll hans systkini. Mæðgunum kynnt- ist hann þar sem hann var við nám í Þýskalandi og þær fluttu með honum hingað til Íslands. Pabbinn deyr ungur og öllu er þessu lýst í bókinni, leit drengsins að sjálfum sér og því hvernig fjölskyldan hagar sér í tengslum við það sem ekki má tala um. Inn í þetta fléttast að pabbinn á fleiri börn,“ segir Ari Trausti en eitt af umræddum börn- um er listamaðurinn Erró þótt nafni hans hafi verið breytt í bók- inni. Faðir Ara Trausta og Errós var Guðmundur frá Miðdal. „Ég fór ekki út í það að nota hin eiginlegu nöfn og ég leyfði ekki endilega öllum þeim persónum að lifa í bókinni sem eru til í raun- veruleikanum. Samtöl og ýmislegt annað er skáldskapur en þessir grófu drættir eru raunverulegir. Ég fór þá leið að skrifa skáldsögu til þess að hafa aukið frelsi. Allt þetta fólk er á lífi ef frá eru talin foreldrar mínir og amma. Það hefði verið leiðinlegt að segja rangt frá eða þurfa að halda aftur af ein- hverju.“ Ekki er þó öll sagan sögð hér því inn á milli kafla er fylgst með leit drengsins, sem þá er orðinn full- orðinn, að afa sínum í Þýskalandi. „Þar má sjá bréfaskriftir og tölvu- póst þar sem drengurinn reynir að komast að því hver hinn dularfulli afi var. Hann fannst að lokum en var þá látinn. Saga afans er mikil og flókin. Hann lenti til að mynda í gyðingaofsóknum og bjargaði sjálfum sér og öðru barni sínu frá dauða. Það er hálfsystir móður minnar sem er á lífi í dag en þær vissu ekki hvor af annarri.“ Ari Trausti eyddi þremur árum í að leita afa síns. „Í raun var ég ekki með neitt í höndunum nema nafn. Það er erfitt að leita að manneskju í Mið-Evrópu, sem ég gat sagt mér að væri dáin, með það eitt að vopni. En margar tilviljanir urðu til þess að hann fannst. Inn í söguna koma til dæmis þýskir embættismenn sem fóru á svig við embættisskyld- ur sínar með því að hjálpa mér. Ef ekki hefði verið fyrir þá og aðstoð fjölskyldunnar hefði ég líklega aldrei lokið leitinni.“ sigrunosk@frettabladid.is Ari Trausti fann afa sinn eftir þriggja ára leit POETRIX Rapparinn Poetrix hefur frestað útgáfu á fyrstu plöt- unni sinni þar til í febrúar. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /VILH ELM PABBINN VAR GIFTUR ÖMMUNNI Ari Trausti Guðmundsson gefur út eina áhugaverð- ustu bók ársins, Land þagnarinnar, þar sem hann setur sína eigin fjölskyldusögu í skáldskaparbúning. Sagan er bæði marg- brotin og flókin en inn í hana fléttast leit söguhetjunnar að afa sínum. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /VA LLI
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.