Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.11.2007, Qupperneq 86

Fréttablaðið - 29.11.2007, Qupperneq 86
58 29. nóvember 2007 FIMMTUDAGUR sport@frettabladid.is > Ari Freyr færir sig um set Ari Freyr Skúlason skrifaði í gær undir þriggja ára samning við sænska liðið GIF Sundsvall sem keypti hann frá BK Häcken. En liðin tvö háðu harða baráttu um sæti í efstu deild á síðustu leiktíð og GIF Sundsvall hafði betur. „Ari er náttúrlega him- inlifandi að fá tækifæri til þess að sanna sig á næsta styrk- leikastigi og ég er ánægður fyrir hans hönd,“ sagði Ólafur Garðarsson umboðsmaður í samtali við Fréttablaðið í gær. 15% vaxtaauki! A RG U S / 07 -0 82 7 Nýttu þér þetta TILBOÐ og stofnaðu rei kning á spron.is Landsliðsmaðurinn Guðjón Valur Sigurðsson kom mjög óvart inn af bekknum um miðjan síðari hálfleik hjá Gummersbach í bikarleik gegn Göppingen á þriðjudag. Leikurinn var þá í járnum en Gummersbach hafði sigur að lokum, 33-30, og það getur liðið þakkað Guðjóni sem skoraði fjögur mikilvæg mörk á lokakaflanum. Guðjón fór sem kunnugt er úr axlarlið fyrir nokkrum vikum og var talið að hann gæti ekki byrjað að spila fyrr en eftir áramót hið fyrsta og þátttaka hans á EM þar með í óvissu. Sjálfur átti Guðjón aldrei von á því að spila en hann var óvænt settur á skýrslu fyrir leikinn sökum veikinda hornamannsins sem leysir Guðjón af í meiðslunum. „Það stóð aldrei til að ég myndi spila þennan leik og ég var enn í gallabuxunum hálftíma fyrir leik. Ég sagði við Alfreð að hann gæti þá sett mig á skýrslu og hann gerði það þó svo hann hafi ekki verið hrifinn af hugmyndinni. Í kjölfarið hringdi ég í konuna mína og bað hana um að setja í tösku fyrir mig því ég var ekki með neitt æfingadót með mér,“ sagði Guðjón Valur léttur á því en hann kenndi sér einskis mein eftir leikinn enda hlífði hann öxlinni vel en það var ekki skothöndin hans sem fór úr lið. „Alfreð ætlaði ekkert að láta mig spila nema nauðsyn krefði. Ég stóð niður í horni í vörninni og forðaðist alla snertingu og það kom til að mynda ekki til greina að ég fórnaði mér á mann sem væri að sleppa í gegn. Frekar að leyfa manninum að skjóta. Þetta var auðvitað alger vitleysa en bikarinn skiptir okkur miklu máli og við erum núna aðeins einum leik frá því að komast til Hamborgar þar sem fjögur síðustu liðin mætast í úrslitahelgi,“ sagði Guðjón en hann mun ekki spila næstu leiki fyrir liðið enda ekki kominn í leikhæft ástand. „Ég á enn nokkuð í land með að ná fullri heilsu og er ekki farinn að skjóta af öllu afli. Það er þó jákvætt að sjá að ég sé á réttri leið. Ég sagði reyndar við sjónvarpsmenn fyrir leikinn að ég myndi kannski spila 19. desember og þeir voru því eflaust hissa þegar ég kom inn í síðari hálfleik,“ sagði Guðjón Valur. GUÐJÓN VALUR SIGURÐSSON: SPILAÐI ÓVÆNT FYRIR GUMMERSBACH Á ÞRIÐJUDAG OG FÓR Á KOSTUM Ég mun ekki taka þátt í næstu leikjum liðsins Meistaradeild Evrópu: A-riðill: Besiktas-Marseille 2-1 1-0 Rodrigo Tello (26.), 1-1 Taye Ismaila Taiwo (65.), 2-1 Bobo (88.). Liverpool-Porto 4-1 1-0 Fernando Torres (19.), 1-1 Lisandro López (33.), 2-1 Fernando Torres (78.), 3-1 Steven Gerrard (84.), 4-1 Peter Crouch (87.). STAÐAN: Porto 5 2 2 1 6-7 8 Marseille 5 2 1 2 6-5 7 Liverpool 5 2 1 2 14-5 7 Besiktas 5 2 0 3 4-13 6 B-riðill: Rosenborg-Chelsea 0-4 0-1 Didier Drogba (7.), 0-2 Didier Drogba (20.), 0-3 Alex (40.), 0-4 Joe Cole (73.). Valencia-Schalke 0-0 STAÐAN: Chelsea 5 3 2 0 9-2 11 Rosenborg 5 2 1 2 5-7 7 Schalke 5 1 2 2 2-3 5 Valencia 5 1 1 3 2-6 4 C-riðill: W. Bremen-Real Madrid 3-2 1-0 Markus Rosenberg (4.), 1-1 Robinho (14.), 2-1 Boubacar Sanogo (40.), 3-1 Aaron Hunt (58.), 3-2 Ruud Van Nistelrooy (71.). Lazio-Olympiacos 1-2 1-0 Goran Pandev (30.), 1-1 Luciano Galletti (35.), 1-2 Darko Kovacevic (64.). STAÐAN: Real Madrid 5 2 2 1 10-8 8 Olympiakos 5 2 2 1 8-7 8 W. Bremen 5 2 0 3 8-10 6 Lazio 5 1 2 2 7-8 5 D-riðill: Benfica-AC Milan 1-1 0-1 Andrea Pirlo (15.), 1-1 Maxi Pereira (20.). Celtic-Shakhtar 2-1 0-1 Brandao (5.), 1-1 Jirí Jarosík (45.), 2-1 Massimo Donati (90.). STAÐAN: AC Milan 5 3 1 1 11-5 10 Celtic 5 3 0 2 5-5 9 Shakhtar 5 2 0 3 5-9 6 Benfica 5 1 1 3 3-5 4 Enska úrvalsdeildin: Blackburn-Aston Villa 0-4 0-1 John Carew (29.), 0-2 Gareth Barry (53.), 0-3 Ashley Young (81.), 0-4 Marlon Harewood (89.). ÚRSLITIN Í GÆR FÓTBOLTI Næstsíðustu umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evr- ópu í fótbolta lauk í gærkvöldi með átta leikjum í riðlum A-D. Liverpool var með bakið upp við vegg í A-riðli þegar liðið tók á móti Porto á heimavelli sínum, Anfield Road, og þurfti nauðsynlega á sigri að halda, en portúgalska lið- inu dugði jafntefli í leiknum. Liverpool fékk óskabyrjun í leikn- um þegar Fernando Torres skor- aði gott skallamark eftir horn- spyrnu Steven Gerrard á 19. mínútu. Liverpool hafði verið sterkari aðilinn í leiknum fram að markinu og virtist hápressa Liver- pool-manna koma Portúgölunum í opna skjöldu. Eftir markið var hins vegar eins og allur vindur væri úr Liverpool og Porto komst almennilega inn í leikinn, jafnaði með marki Lisandro López. Stuttu síðar var López nálægt því að koma Porto yfir þegar hann slapp einn í gegnum vörn Liverpool, en hann skaut framhjá markinu úr upplögðu færi. Staðan var hins vegar enn 1-1 þegar fyrra hálfleik lauk. Í seinni hálfleik dró svo til tíð- inda á 78. mínútu þegar Torres kom Liverpool yfir með sínu öðru marki í leiknum. Torres náði að prjóna sig í gegnum vörn Porto og kláraði færi sitt mjög vel og skor- aði afar mikilvægt mark fyrir Liverpool því eftir markið virtist björninn unninn. Steven Gerrard skoraði þriðja mark Liverpool úr víti áður en Peter Crouch innsigl- aði 4-1 sigur Liverpool. Á sama tíma vann Besiktas óvæntan sigur á Marseille og því ljóst að öll liðin í A-riðli eiga mögu- leika á að komast áfram þegar lokaumferðin fer fram. Chelsea vann Rosenborg örugg- lega í toppslap B-riðils og er því komið áfram, en ekki er enn ljóst hvort að það verði Rosenborg eða Schalke sem fylgi liðinu upp úr riðlinum. C-riðill er nú galopinn eftir leiki gærkvöldsins þar sem Werder Bremen vann Real Madrid óvænt og Olympiacos vann Lazio og öll liðin eiga möguleika á að komast áfram úr riðlinum fyrir lokaleik- ina. AC Milan dugði jafntefli gegn Benfica í gær til að tryggja sig áfram úr D-riðli, vegna þess að Celtic vann Shaktar og skoska liðið því eina liðið sem getur náð AC Milan. Celtic þarf hins vegar jafntefli í lokaumferðinni til að tryggja sig áfram. omar@frettabladid.is Liverpool lifir í voninni Átta leikir fóru fram í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í gærkvöld. Ensku liðin Chelsea og Liverpool voru í eldlínunni, ásamt stórliðunum AC Milan og Real Madrid. Chelsea og AC Milan komust áfram en sex sæti eru enn laus. MARKAVEISLA Chelsea átti ekki í erfið- leikum gegn norska liðinu Rosenborg í gær. NORDICPHOTOS/AFP SKALLAMARK Fernando Torres kom Liverpool yfir 1-0 gegn Porto í Meistaradeildinni í gærkvöldi með laglegu skallamarki. Torres kom svo Liverpool yfir á ný, 2-1, með marki þegar 12 mínútur voru til leiksloka. NORDICPHOTOS/GETTY KÖRFUBOLTI Íslandsmeistarar Hauka þurftu framlengingu til þess að landa 73-71 sigri gegn nýliðum Fjölni í Iceland Express- deild kvenna í gær en hann kom liðinu upp í 2. sæti deildarinnar. Fjölnir var yfir nánast allan leikinn en Haukar skoruðu fjögur síðustu stigin í leiknum og jöfnuðu í 63-63 og nýttu sér síðan vel að tveir bestu leikmenn liðsins Slavica Dimovska (30 stig) og Gréta María Grétarsdóttir (19 fráköst, 8 stoðsendingar, 6 stig) voru komnar með fimm villur. Kiera Hardy skoraði 28 stig fyrir Hauka en þurfti til þess 32 skot. Efemía Sigurbjörnsdóttir (12 stig) og Eva María Emilsdóttir (13 fráköst) áttu góðan leik. KR-konur eru í þriðja sæti deildarinnar eftir 72-64 sigur á Hamar í Hveragerði. Þetta var sjötti sigur KR í sjö leikjum. - óój Iceland Express-deild kvenna: Framlenging
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.