Fréttablaðið - 29.11.2007, Page 88

Fréttablaðið - 29.11.2007, Page 88
60 29. nóvember 2007 FIMMTUDAGUR FÓTBOLTI Alex McLeish var í gær ráðinn sem nýr knattspyrnustjóri Birmingham og Paul Jewell var á sama tíma tilkynntur sem nýr stjóri hjá Derby í ensku úrvals- deildinni. McLeish, sem á dögunum sagði af sér sem þjálfari skoska landsliðsins eftir stutta en farsæla viðdvöl, skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning. McLeish kvað möguleikann á því að stýra liði í ensku úrvalsdeild- inni hafa verið of freistandi til að hafna. „Mér líkaði mjög vel að þjálfa skoska landsliðið, en það er skemmtilegra að fá tækifæri til þess að vinna með leikmönnum dag eftir dag í liðsþjálfun. Ég verð að játa það að það hefur alltaf heillað mig að stýra liði í ensku úrvalsdeildinni,“ sagði McLeish. Jewell tekur við Derby eftir frí frá þjálfun síðan hann hætti hjá Wigan eftir síðasta tímabil. „Ég er sannfærður um að ég nái að bjarga Derby, það verður erfitt samt,“ sagði Jewell. - óþ Enska úrvalsdeildin: McLeish og Jewell ráðnir SPENNTUR Alex McLeish getur ekki beðið eftir því að fá að stýra Birming- ham-liðinu í ensku úrvalsdeildinni. NORDICPHOTOS/GETTY HANDBOLTI Kvennalandslið Íslands í handbolta sigraði Ísrael örugg- lega, 34-17, í öðrum leik sínum í undankeppni Evrópumótsins í gær, en keppnin fer fram í Litháen þessa dagana. Yfirburðir Íslands voru tals- verðir í leiknum og fjórtán marka munur var á liðunum í hálfleik, 21- 7 og íslenska liðið jók svo muninn jafnt og þétt í seinni hálfleik og sautján marka munur varð niður- staðan. Júlíus Jónasson, þjálfari liðsins, var því hæst ánægður með hvernig stelpurnar hans komu til baka eftir slæmt tap í fyrsta leik undankeppninnar gegn Litháen í fyrradag. „Þetta var góð upphefð eftir útreiðina gegn Litháen og stelp- urnar komu sterkar til baka. Við fórum vel yfir málin fyrir leikinn gegn Ísrael og ætluðum að fá meira upp úr hraðaupphlaupum í leiknum og það gekk eftir. Við skoruðum örugglega á bilinu 12-15 mörk úr hraðaupphlaupum og vörnin var fín og markvarslan fylgdi með í kjölfarið. Vissulega vorum við að spila gegn lakara liði en í fyrradag, en ég er samt virki- lega sáttur með hvað stelpurnar héldu dampi í leiknum og hættu aldrei að spila sinn leik,“ sagði Júlíus í viðtali við Fréttablaðið í leikslok. Hildigunnur Einarsdóttir var atkvæðamest fyrir Ísland í leikn- um og skoraði 9 mörk, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir kom næst með sex mörk en hún gat ekki leik- ið fyrsta leikinn gegn Litháen sökum veikinda, Þórey Rósa Stef- ánsdóttir skoraði fimm mörk og þær Guðbjörg Guðmannsdóttir og Dagný Skúladóttir skoruðu þrjú mörk hvor. Berglind Íris Hans- dóttir og Íris Björk Símonardóttir skiptu hálfleikjunum á milli sín og vörðu báðar 13 skot, samtals 26 skot, en Berglind varði þar af eitt víti. Íslenska liðið hvílir í dag en mætir Grikklandi á morgun. „Ég náði að rúlla öllum mann- skapnum í leiknum gegn Ísrael og allar stelpurnar komust frá leikn- um án meiðsla og án mikils álags sem er kostur fyrir okkur upp á framhaldið að gera. Leikurinn gegn Grikklandi verður eflaust mjög erfiður en ég tel okkur eiga ágæta möguleika og við ætlum að byggja á þessum sigri gegn Ísrael og reyna að gera okkar allra besta það sem eftir er af undankeppn- inni,“ sagði Júlíus. - óþ Ísland burstaði Ísrael 34-17 í öðrum leik liðsins í undankeppni EM í gærdag: Landsliðið fékk uppreisn æru ENDURKOMA Íslenska kvennalandsliðið kom sterkt til baka eftir tapið gegn Litháen í fyrsta leik undankeppni Evrópumótsins og pakkaði saman liði Ísraels, 34-17. Anna Úrsúla Guðmundsdóttir átti fínan leik og skoraði sex mörk. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FÓTBOLTI Talsmaður enska úrvalsdeildarfélagsins Ports mouth staðfesti í gærkvöldi að knattspyrnustjórinn Harry Redknapp og stjórnarmaðurinn Peter Storrie hefðu verið færðir í gæsluvarðhald vegna rannsóknar lögreglu um spillingu innan enska fótboltans. Snemma í gær var talað um handtökur á 4-5 mönnum í tengslum við fjármálamisferli og spillingu. Seinna kom svo í ljós að Redknapp og Storrie voru tveir þeirra og samkvæmt heimasíðu Evening Standard munu Milan Mandaric, stjórnarformaður Leicester og áður stjórnarfor- maður hjá Portsmouth, og Amdy Faye, leikmaður Rangers og fyrrum leikmaður Portsmouth, og umboðsmaðurinn Willie McKay einnig hafa verið handteknir og færðir til yfirheyrslu vegna málsins. Út frá þessum heimildum má ætla að meint spilling hafi tengst félagsskiptum Amdy Faye til Portsmouth frá Auxerre á 1,5 milljónir punda í ágúst 2003. - óþ Enska úrvalsdeildin: Redknapp í spillingunni? TEKINN Harry Redknapp, stjóri Ports mouth, var í gær færður til yfir- heyrslu vegna meintrar spillingar hjá Portsmouth árið 2003. NORDICPHOTOS/GETTY

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.