Fréttablaðið - 29.11.2007, Síða 96

Fréttablaðið - 29.11.2007, Síða 96
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Dr. Gunna Í dag er fimmtudagurinn 29. nóvember, 333. dagur ársins. 10.38 13.16 15.53 10.45 13.01 15.16 Niðurstaðan liggur fyrir: Ísland er besta land í heimi. Þróunar- stofnun Sameinuðu þjóðanna lýsti þessu yfir í brakandi nýrri skýrslu á þriðjudaginn. Við höfum þar með tekið við góðæriskyndlinum af Norðmönnum, sem höfðu verið bestir í heimi í sex ár þar á undan. Mikið held ég að þessi niðurstaða hafi góð áhrif á jólaverslunina. ÉG veit samt ekki hvaða snillingar vinna við þessa stofnun en þeir versla örugglega í öðrum matvöru- búðum en við og borga húsnæðis- lánin sín á hagstæðari kjörum. Spurning hvort þeir þurfi líka að vinna sextíu tíma á viku til að ná endum saman? Svo efast ég stór- lega um að veðurfarið hérna hafi verið tekið með í reikninginn. ÞAÐ eru ægilega misvísandi upp- lýsingarnar sem maður fær úr fjölmiðlum. Einn daginn er maður í hamingjulandinu, allt í uppsveiflu og framtíðin björt. Daginn eftir er allt á leið til andskotans og hag- kerfið rauðþrútið eins og pípandi ketill. Gott ef ekki allar bílasölur orðnar yfirfullar af svörtum Range Rover og þeir ríkustu farnir að íhuga að selja einkaþoturnar sínar. Einn daginn blasir það við af for- síðunum að hér sé offita lýðheilsu- legt stórvandamál, en svo hókus pókus næsta dag: Við bara allt í einu búandi í besta landi í heimi og ekkert nema stormandi sæla fram undan. MAÐUR er eins og í rússibana þar sem góðæris- og hamfarafrétt- um er skellt á mann með jöfnu millibili. Hverju á maður að trúa í þessari skæðadrífu misvísandi upplýsinga? Einkabankanum sínum? Verðmiðunum í búðunum? Leikskólakennurunum og karlin- um í sjoppunni? Í dýfunum á maður engan annan kost en að arka áfram, horfandi brostnum augum á eftirstöðvarnar á greiðsluseðlunum, sem hækka bara og hækka sama hvað maður rembist við að borga (ég verð reyndar bara 79 ára þegar síðasti greiðsluseðillinn kemur inn um lúguna), vinnandi mest í heimi til að til að geta borgað fyrir dýrasta mat í heimi með dýrasta yfirdrætti í heimi. Hér er allt mest og best, í báðar áttir. NÚ veit ég hvað bjartsýnt og dug- andi fólk hugsar. Það hugsar: Hættu nú þessu væli – þú býrð í besta landi í heimi! Og verður maður ekki að trúa því? Varla lýgur Samþjó. HVAÐ ætli Bakþankinn í Frétta- blaðinu í Síerra Leóne fjalli annars um í dag? Best Endurgjaldslaus lögfræðiaðstoð fi mmtudaga milli 19:30 – 22:00 í síma 551-1012. EKKI MISSA AF MÉR STILLIÐ Á RÁS 12 Á DIGITAL ÍSLANDI OG FÁIÐ SKAMMTINN YKKAR DAGLEGA! GEGNDARLAUS TÓNLIST, GAGNSLAUS VIÐTÖL, GLIMMER OG GLAMÚR 80% 2% 5% 7%6% ÁHORFSTÖLURNAR TALA SÍNU MÁLI 80% uppsafnað áhorf meðal kvenna 45–83 ára í október.* *Byggt á lauslegu spjalli við Hlölla frænda, sem horfir mikið á sjónvarp og veit allt um konur.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.