Fréttablaðið - 26.04.2008, Blaðsíða 88

Fréttablaðið - 26.04.2008, Blaðsíða 88
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Gerðar Kristnýjar Skýrt var frá því í Morgunblað-inu á sjálfum Degi bókarinnar að bandarískur lýtalæknir hefði skrifað barnabók þar sem fjallað væri um breytingarnar sem verða á móður nokkurri eftir að hún bregður sér í lýtaaðgerð. Hún lætur dytta að nefinu á sér og strekkja á vömb. Svo sýna myndirnar að brjóst konunnar belgjast líka út en höfundur fer ekkert sérstaklega út í það. Illu heilli grunar mig að meiri þörf sé nú á bók lýtalæknisins en þá sem Norðurlandaráð taldi þarft að gefa út árið 1989 og heitir Mamma fer á þing og Steinunn Jóhannesdóttir skrifaði. Báðar bækurnar voru líkast til gefnar út til að undirbúa börnin fyrir þær þrautir sem lífið getur lagt fyrir þau. EFLAUST á bókin um lýtaaðgerð- irnar eftir að verða einhverjum krakkanum að liði og hann þá alltaf eftir að þakka henni hvað hann komst vel frá umbreytingunum á móður hans. Góðar barnabækur eru dýrmætar. Þær hafa mun sterk- ari áhrif á okkur en þær sem við lesum sem fullorðið fólk því þá dofnar venjulega hæfileikinn til að lifa sig inn í sögur og ævintýri. Sjálf man ég eftir því að hafa kross- brugðið sem krakka í hvert sinn sem ég sá sjálfa mig speglast í búð- arglugga og áttaði mig á því að það var ekki örvamælirinn sem dinglaði á bakinu á mér heldur skólataskan. Eins og Ronja ræningjadóttir hafi þurft að ganga í skóla. HÖFUNDUR þeirrar dásamlegu bókar, Astrid Lindgren, var eitt sinn spurð að því hver væri nú boð- skapurinn í bókunum hennar. Það kom eflaust mörgum á óvart að hún kannaðist ekki við að hafa potað svoleiðis löguðu inn í bækurnar sínar. Aftur á móti vonaðist hún til þess að bækurnar hennar breiddu út umburðarlyndi gagnvart almenn- um aulahætti. Hún vonaðist sem sagt til að þegar við heyrðum af einhverjum/einhverri sem hefði algjörlega spilað út í vitleysisgangi þá myndum við bara segja: „Hann/ Hún er nú ekki alslæm/ur.“ ÞESS vegna er einmitt ástæða til að ota sem mestu af vönduðum og góðum bókum að börnum. Þær allra bestu kenna þeim nefnilega ýmis- legt alveg óvart þótt ekki hafi þær verið samdar með það að markmiði að lesa yfir hausamótunum á þeim, svo sem eins og að setja sig í spor annarra. Og þegar krakkarnir full- orðnast verða allar góðu bækurnar sem þeir lásu að flugbeittum örvum sem þeir geta reitt fram hvenær sem þeir þurfa. Gleðilegt sumar! Bækur eru kækur Í dag er laugardagurinn 26. apríl, 117. dagur ársins. 5.16 13.25 21.37 4.50 13.10 21.33 195,-/stk. 16.990,- © In te r I KE A Sy ste m s B .V . 2 00 8 www.IKEA.is Opið virka daga Opið laugardaga Opið sunnudaga 10.00 - 20.00 10.00 - 18. 00 12.00 - 18.00 Veitingastaður opnaður klukkutíma fyrr en verslun SANDIG sandkassadót íssett, 10 hlutir 395,- Morgunmatur frá kl. 9:00 - 11:00 mánudaga - laugardaga 195,- úti á túni SOMMAR kubbakerti, ýmsir litir 695,-/5 í pk. SKINA seríur, hangandi, 48 perur 2.990,-/stk. BOSÖ sólhlíf, grátt Ø300, H250 cm 3.490,- SOMMAR teppi, ýmsir litir, 100% pólýester B130xL170 cm 995,-/stk. SOMMAR lugt f/kubbakerti ýmsir litir B15xD15, H28 cm 695,- SOMMAR strandpokar, ýmsir litir, B45xH45 cm 150,-/stk. SOMMAR karafla og glös, 5 hlutir, brúnt 1.890,- SOMMAR gervipottablóm, sólblóm, ýmsir litir H32 cm 995,- SOMMAR svuntur, ýmis mynstur 695,-/stk. SOMMAR bakkaborð ýmsir litir L58xB36 cm 895,-/stk. FISKÖ standur f/sólhlíf, hvítt L39xB39 cm 1.190,- BOLLÖ línan, olíuborinn gegnheill akasíuviður, Fellistólar, sætishæð 46 cm 2.490,-/stk. Felliborð L60xB60, H72 cm 2.990,- /settið TULLERÖ garðhúsgögn olíuborinn gegnheill akasíuviður Borð L120xB71, H68 cm Bekkur B111xD65, H86, sætishæð 41 cm Stólar 2 stk. B62xD65, H86 cm, sætishæð 41 cm 7.970,- SOMMAR sogrör, ýmsir litir L21 cm 195,-/200 í pk. RÅSSÖN stólsessa, gult L99xB49 cm 995,- SOMMAR íspinnabakkar, ýmsir litir, H10 cm SOMMAR garðpokar, ýmsir litir Ø40, H40 cm 295,-/stk. 295,-/stk. SÄRÖ sessa, ýmsir litir L34xB34 cm Kjúklingalæri með kúskús, grilluðu grænmeti og BBQ jógúrtsósu 640,-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.