Fréttablaðið - 26.04.2008, Blaðsíða 42
● heimili&hönnun
„Þegar ég kem heim geri ég mitt
besta til að klæða mig úr vinn-
unni og njóta þess að eiga dás-
amlega fjölskyldu og vini,“ segir
Lára Aðalsteinsdóttir, markaðs-
stjóri Eymundsson, innt eftir
því hvernig hún nærir best
skilningarvitin heima.
„Ég hreiðra um mig í yndislega
sófanum mínum, helli upp á gott
kaffi og les, þegar ég vil virkilega
slaka á. Ég hef alla tíð verið alæta
á bókmenntir, en eftir að tími til
lestrar minnkaði er ég farin að
verða mun gagnrýnni á hvaða
bókmenntir verða fyrir valinu,“
segir Lára, sem undanfarnar
vikur hefur haft í nógu að snú-
ast við opnun nýrrar Eymunds-
son-verslunar í Holtagörðum og
undirbúning mikillar bókaveislu í
Eymundsson í tilefni af Viku bók-
arinnar sem lýkur 4. maí. - þlg
Sinfónía hafs
sú fegursta
● Ef veggir gætu talað segðu þeir frá ósögðum leyndar-
málum, eins og mælskir páfagaukar gera stundum, en
með því sem prýðir veggina má glöggt koma upp um í
húsráðandann. Hjá Láru Aðalsteinsdóttur, markaðsstjóra
Eymundsson, eru það bækur, bækur og bækur; litskrúðug
menning og listir uppi um alla veggi til að njóta.
Lára Aðalsteinsdóttir, markaðsstjóri Eymundsson, lætur fara vel um sig í fallegri
stofunni heima, en þar ráða menning og listir ríkjum. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
HEYRN
Það fallegasta sem ég heyri er ölduniðurinn
þegar ég er stödd í sumarhúsi fjölskyldunnar
á miðjum Eyjafirði. Það er ekkert sem jafnast á
við sinfóníu hafsins. Hljóðin frá hafinu hafa alltaf
heillað mig því þau eru djúp og óræð um leið og
þau eru leikandi og létt. Það flæðir orka úr hafinu
sem endurnærir öll skilningarvit og kemur jafn-
vægi á huga og líkama. Næst á eftir hafinu kemur
vel spilaður djass og er hann
notaður sem staðgeng-
ill hafsins heima í
borginni. Hann
örvar fleiri skiln-
ingarvit ef vel er
leikið.
BRAGÐ
Ég er sérlega almennileg við
bragðskyn mitt og finn enda-
laus tilefni til að elda góðan mat
og drekka góð vín. Ég kynntist vín-
smökkun þegar ég dvaldi í Mið-
Evrópu sumarlangt og hef síðan
leikið mér við að þróa vínsmökk-
unarhæfileikann. Ég er langt frá
því fullnuma svo ég nýti tæki-
færi sem gefast til að æfa mig
og dekra þá við bragðskynið
um leið.
SJÓN
Ekkert jafnast á við að horfa á
einkasoninn vaxa úr grasi og
þess nýt ég alla daga heima.
Til að næra fagurkerann passa
ég upp á að hafa falleg blóm í
kringum mig og er fasta gestur
í blómabúðinni á Hagamel.
Ég las einu sinni að nostur við
blóm á morgnana kæmi jafn-
vægi á hugann fyrir annríki
dagsins. Ég trúi þessu eins og
heilögum sannleika. Mér finnst
líka nauðsyn að hafa fallega
listmuni í kringum mig. Þeir
þurfa ekki að vera margir, en
vel valdir.
SNERTING
Kraftur mannlegrar snertingar er vanmetinn í nútím-
anum. Ég er viss um að margt mætti bæta með hlý-
legu faðmlagi eða fallegu klappi á bakið. Að teygja
sig eftir þeim sem manni þykir vænt um og snerta, er
dásamleg tilfinning og aldrei hægt að fá nóg. En líka
má örva snertiskynið með því að handfjatla falleg-
an grip eða bók sem manni þykir vænt um. Við erum
svo skemmtilega skrýtin stundum.
LYKT
Ég er mjög viðkvæm fyrir hvers kyns lykt og ekki
margt sem leikur við lyktarskyn mitt. Má segja að
bragð- og lyktarskyn sé eitt og hið sama hjá mér.
Ég þarf ávallt að lykta af mat og drykk áður en ég
smakka, og legg oft dóm af lyktinni einni saman, í
stað þess að dæma út frá bragðinu. Mér skilst að ég
fari á mis við margar eðalkrásir sökum þessa. Svo eru
fáeinar undantekningar sem næra lyktarskynið, eins
og ilmur af þeim sem maður elskar, angan af sjó á
fallegum sumardegi og keimur af eðalvíni. Allt ómót-
stæðileg andartök að upplifa.
SJÖTTA SKILNINGARVITIÐ
Það er margt sem truflar sjötta skilningarvit mitt í borgarysnum, en
þegar í sveitina er komið, skór og sokkar læstir inni í skáp, og almennileg
jarðtenging kemst á, gerist stundum margt skemmtilegt og heimurinn
tekur á sig nýja liti. Þá vil ég meina að sjötta skilningarvitið taki við.
Lára í fallegri, bjartri og notalegri
stofunni heima.
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/A
RN
ÞÓ
R
26. APRÍL 2008 LAUGARDAGUR6