Fréttablaðið - 26.04.2008, Blaðsíða 72
40 26. apríl 2008 LAUGARDAGUR
menning@frettabladid.is
Kl. 20
Halla Oddný Magnúsdóttir
píanóleikari heldur burtfarar-
prófs tónleika sína úr Tónlistar-
skólanum í Reykjavík í kvöld kl.
20 í Salnum í Kópavogi. Þar flytur
hún verk eftir tónskáldin J.C.
Bach, Beethoven, Schumann,
Prokofiev og Ravel. Aðagangur að
tónleikunum er ókeypis og öllum
opinn á meðan húsrúm leyfir.
Jory Vinikour er dáður
semballeikari um allan
heim og er væntanlegur
í Salinn í annað sinn í
tónleikaröðinni Tíbrá. Hann
kom hér síðast í desem-
bermánuði 2005 og vígði
konsertsembalinn í Salnum,
en það dásamlega hljóðfæri
fann heimili í Tónlistarhúsi
Kópavogs í tilefni af 40 ára
afmæli tónlistarskólans
þar í bæ. Hljóðfærið, sem
er af fransk-flæmskri gerð,
er mikill gæðagripur, enda var það smíðað á
vinnustofu Marcs Ducornet í París og hefur tvö
hljómborð og spannar því rúmar fimm áttundir,
en slíkt hljóðfæri gefur möguleika á flutningi
hvorki meira né minna en allra þeirra verka sem
samin hafa verið fyrir sembal.
Jory Vinikour er tvímælalaust í hópi frábær-
ustu semballeikara í heimi
og á langan og afar glæstan
feril að baki. Að undanförnu
hefur orðspor Jorys sem
meðleikara aukist mjög, til
dæmis fyrir leik hans með
söngstjörnunni Anne Sofie von
Otter. Geisladiskur hans með
Goldberg-tilbrigðunum eftir
Bach sem Delos International
gaf út árið 2001 hefur hlotið
mikið lof gagnrýnenda og var
valinn einn af 10 bestu diskum
ársins af Chicago Tribune-dag-
blaðinu. Vinikour kemur einmitt til með að leika
Goldberg-tilbrigðin á tónleikum sínum í Salnum,
en þeir fara fram næstkomandi þriðjudagskvöld
kl. 20. Miðaverð er 2.000 kr. en eldri borgarar,
námsmenn og öryrkjar fá miðann á 1.600 kr. Það
er ljóst að þetta eru tónleikar sem áhugafólk um
sígilda tónlist má ekki láta fram hjá sér fara. - vþ
Sembalsnillingur í Salnum
JORY VINIKOUR OG SEMBALL SALARINS
Jory leikur á sembalinn á tónleikum á
þriðjudagskvöld.
> Ekki missa af …
Samsýningu feðginanna Karls
Austmann, Jóhanns Smára
Karlssonar og Sigrúnar Lindu
Karlsdóttur sem opnuð verður
í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag
kl. 14. Karl og Sigrún sýna þar
málverk en Jóhann hefur farið
eilítið aðra leið í listsköpun
sinni og sýnir ljósmyndir.
Sýningin stendur til 11. maí
næstkomandi.
Kammersveitin Ísafold
heldur útgáfutónleika annað
kvöld í tilefni nýrrar plötu
sveitarinnar. Platan heit-
ir „all sounds to silence
come“, og er titillinn dreg-
inn af nýju verki á plötunni
eftir hljómsveitarstjóra og
listrænan stjórnanda sveit-
arinnar, Daníel Bjarnason.
Ísafold fagnar jafnframt fimm
ára afmæli um þessar mundir,
auk þess sem útgáfufyrirtækið 12
Tónar, sem gefur plötuna út, er tíu
ára, og því mætti segja að tónleik-
arnir séu líka eins konar afmælis-
fagnaður. „Hljómsveitin á rætur
sínar að rekja til þess að þessi
hópur var saman í tónlistarnámi
fyrir nokkrum árum. Hópurinn
tók sig til og fór í tónleikaferð um
landið árið 2003 sem heppnaðist
svo vel að ákveðið var að halda
samstarfinu áfram. Það hefur allt
legið upp á við síðan og margt gott
gerst á þessum fimm árum,“ segir
Alexandra Kjeld, framkvæmda-
stjóri Ísafoldar.
Hljómsveitin hefur á sínum
fimm starfsárum náð að skipa
sér sess sem ein af fremstu
kammersveitum landsins. Hún
hlaut nýverið Íslensku tónlistar-
verðlaunin sem flytjandi ársins í
flokki sígildrar og samtímatón-
listar og var valin Tónlistarhópur
Reykjavíkurborgar árið 2008.
Það segir sitt um metnað sam-
starfsins að hljómsveitarmeðlim-
ir eru í yngri kantinum, eru flest-
ir á þrítugsaldri, og því vekur
það athygli að litlar mannabreyt-
ingar hafa átt sér stað innan
sveitarinnar.
„Já, þessi hljómsveit er ein-
faldlega svo gott og skemmtilegt
verkefni að það er vilji fyrir
hendi til að halda henni gangandi,
þrátt fyrir að flestir meðlimirnir
hafi verið að bæta við sig námi
erlendis og séu búsettir hér og
þar um heiminn,“ útskýrir Alex-
andra.
Á tónleikunum annað kvöld
verða meðal annars leikin verk
af nýju plötunni eftir Alfred
Schnittke og Daníel Bjarnason,
ásamt verkum eftir Edgar Var-
èse, Benjamin Britten og Bent
Sørensen. Tónleikarnir fara fram
í Langholtskirkju og hefjast kl.
20. Miða má nálgast í verslunum
Skífunnar á Laugavegi og í
Kringlunni, í 12 Tónum á Skóla-
vörðustíg og á www.midi.is.
Jafnframt verður hægt að
kaupa miða við innganginn.
Stjórnandi á tónleikunum er Dan-
íel Bjarnason.
vigdis@frettabladid.is
Fagna afmæli og útgáfu
KAMMERSVEITIN ÍSAFOLD Kemur fram á afmælis- og útgáfutónleikum annað kvöld.
MYND/GUNNAR SVANBERG SKÚLASON
Ljósmyndaýning Berglindar
Björnsdóttur, Kyrrð, stendur nú
yfir í húsgagnaversluninni Saltfé-
laginu. Þar má sjá ljósmyndir sem
hafa verið stækkaðar og límdar
á plexígler þannig að á stundum
mynda tvær myndir eina heild.
Verkin eru sýnishorn af því sem
Berglind hefur verið að vinna að
síðastliðið ár. Sýningin stendur út
apríl. - vþ
Kyrrð að klárast
TRJÁGREINAR Ein af ljósmyndum Berg-
lindar Björnsdóttur.
einstök sýning
Kolbrún Sigurðardóttir
opnar málverkasýninguna
Rauði þráðurinn
laugardaginn
26. apríl kl. 14:00
Málverkasýning
1
LAUGARDAGUR 26. APRÍL KL. 20
PÍANÓTÓNLEIKAR – TÓNÓ RVÍK
HALLA ODDNÝ MAGNÚSDÓTTIR
AÐGANGUR ÓKEYPIS!
SUNNUDAGUR 27. APRÍL KL. 16
FIÐLUTÓNLEIKAR - LHÍ
BJÖRK ÓSKARSDÓTTIR
AÐGANGUR ÓKEYPIS!
ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL KL. 20
TÍBRÁ: SEMBALTÓNLEIKAR
JORY VINIKOUR LEIKUR
GOLDBERGTILBRIGÐI BACHS.
VERÐ 2000/1600 KR.
TOLSTOY
S
A
LLA
R
SM
Á
SÖ
G
U
R
TO
LSTO
Y
S
Lafleur útgáfan
smásögum
Leo Tolst
oys
í fl‡›ingu
Gunnars
Dal
SMÁSÖG
UR
ALLAR
Heildarút
gáfa á öllu
m