Fréttablaðið - 26.04.2008, Blaðsíða 48
● heimili&hönnun
„Aðkoman í forstofunni skiptir
miklu máli,“ segir Þórunn Högna-
dóttir, ritstjóri sjónvarpsþáttarins
Innlit-útlit, eftir að hún hefur tekið
á móti blaðamanni. „Ég legg upp úr
því að skapa stemningu þar,“ bætir
hún við.
Í forstofunni eru hlutir sem
eiga sér sögu. Brandur Gunnars-
son, ljósmyndari og maður Þórunn-
ar, tók mynd, sem hangir á veggn-
um, í húsakynnum gamla Tungls-
ins við Lækjargötu sem brann.
Ljósmyndin fangar augnablik sem
lýsir nútímalegri borgarstemningu
í litlu Reykjavík.
Stólar í forstofu voru keyptir
í Góða hirðinum og þeir hengdir
upp á vegg. Þetta eru uppruna-
lega gamlir símastólar en sú var
tíðin að þeir þóttu ómissandi hús-
gagn á hverju heimili. Skápamálin
í forstofunni eru leyst með svört-
um háglans plexigler-rennihurðum
sem eru að sjálfsögðu í stíl við stól-
ana.
Þórunn leiðir blaðamann næst
inn í stofu þar sem forláta gauks-
klukka fangar athyglina. „Gauks-
klukkan á stofuveggnum er úr járni
en lítur út fyrir að vera úr pappa,“
segir Þórunn. „Klukkan er hönnuð
þannig að hægt er að láta gaukinn
skjótast út úr klukkunni á klukku-
tíma fresti. „Ég var ekki alveg að
þola það.“ Hægt er að stilla klukk-
una þannig að gaukurinn lætur til
dæmis bara heyra í sér klukkan sjö
á kvöldin.
Úr stofunni liggur leiðin inn á
svefnherbergi, en Þórunn er hæst-
ánægð með rúmið sem þar er. „Häs-
ten-rúmið er æði.“ Hvítt rúmteppi
hylur bláköflótta áklæðið sem þessi
frægu sænsku rúm eru þekkt fyrir.
„Ég ætlaði upphaflega að nota þetta
hengi sem skilrúm en það endaði
sem veggteppi í bili en ég á eftir að
setja yfir það plexigler.“
Herbergi heimasætunnar, sjö
ára dóttur Þórunnar, er ekki af
verri endanum. „Frænka mín átti
upphaflega þennann prinsessu-
stól,“ segir Þórunn um bleika prins-
essustólinn, sem hún lakkaði sjálf
og bólstraði. Rúmið er sérsmíðað.
Í bíómyndinni Paris When It
Sizzles frá 7. áratugnum með
Audrey Hepburn glittir í kolsvarta
baðhergisveggi. Baðherbergis-
veggirnir hjá Þórunni eru líka kol-
svartir og eru hurðirnar á innrétt-
ingunni úr svörtu háglans plexi-
gleri. Allt er þetta til marks um
einstaka smekkvísi húsfreyjunnar.
-vg
Kolsvartir baðherbergisveggir
● Sjónvarpskonan Þórunn Högnadóttir er óhrædd við að fara nýjar leiðir við að innrétta heimilið og hefur meðal annars sótt innblástur í gamla kvikmynd.
Hvítt rúmteppi hylur bláköflótta áklæðið sem Hästen-rúmin eru þekkt fyrir. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Þórunn Högnadóttir er landsmönnum að góðu kunn úr sjónvarpsþáttunum Innlit-
útlit.
Þórunn hefur fallega listmuni allt í
kringum sig.
Gauksklukkan í stofunni er hönnuð
þannig að hægt er að láta gaukinn skjót-
ast út úr klukkunni á klukkutíma fresti.
Fagurkerinn Þórunn hefur komið sér
upp mörgum fallegum munum.
Svart og hvítt ræður ríkjum á heimili
Þórunnar.
Skyggnst inn í ævintýra-
veröld heimasætunnar.
Þórunn lakkaði stólinn
sjálf og bólstraði. Rúmið er
sérsmíðað.
Baðherbergisveggirnir hjá Þórunni eru líka kolsvartir.
Nýstárlegt er að nota steinteppi fyrir bæði veggi og gólf.
26. APRÍL 2008 LAUGARDAGUR12