Fréttablaðið - 26.04.2008, Blaðsíða 76
44 26. apríl 2008 LAUGARDAGUR
utlit@frettabladid.is
DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA
Anna Margrét Björnsson
Okkar vestræni heimur er gersamlega
heltekinn af mat. Á meðan þriðji heimurinn
sveltur er matur orðinn vandamál fyrir
okkur hin, offramboðið ótrúlegt, úrvalið að
kæfa okkur og þar að auki er verið að framleiða
skelfilega mikið af óhollum vörum, stútfullum af alls kyns drasli sem
skemmir líkamann okkar. Auðvitað er ekkert skrýtið að vandamál
vegna offitu eða átröskunar séu endalaust í umræðunni. En mér
finnst hálf ógnvekjandi hversu margar konur virðast vera með
megrunarkúra á heilanum. Bæði eigin megrunarkúra og megrunar-
kúra annarra kvenna. Þær vakta allt sem aðrar konur láta ofan í sig.
Horfa smásjáraugum á hvort einhverjar séu of feitar eða of grannar.
Skipta sér af þegar einhver fær sér kokkteilsósu eða majonessamloku
en hvísla í hornum ef einhver hefur grennst „of“ mikið. Ræða
endalaust um að þær megi ekki borða hitt eða þetta af því þær hafi
bætt á sig einu kílói en svekkjast þess á milli yfir því að detta ofan í
KFC-föturnar um helgar. Ég get ekki annað sagt en að mér hundleið-
ist þetta umræðuefni. Hver hefur áhuga á því hvað annað fólk er að
borða? Og hvað kemur okkur við hvað annað fólk er að borða?
Megrunarkúratal finnst mér gersamlega óþolandi og er ekki viss um
að það sé neinum hollt. Það eru endalausar öfgar í öllu hjá okkur,
annaðhvort er tekinn mánaðar-„boot-camp“ í ræktinni og ekkert
borðað nema gulrætur og næsta mánuð er fólk í áskrift að ruslfæðu.
Það er eins og nútímakonan, jú og eflaust -maðurinn, séu komin út úr
öllu heilbrigðu sambandi við mat. Matur er ekki lengur eitthvað sem
er gott og skemmtilegt eða bráð nauðsyn, heldur óvinurinn sem
stjórnar lífi manns. Það er dálítið skondið að upplifa þessa megrunar-
umræðu hér á Íslandi eftir að hafa eytt töluverðum tíma í Frakklandi.
Þar ríkja bara þær gullnu reglur að matmálstímar eru aðeins þrisvar
á dag og góðs matar er notið í góðum félagsskap. Eina megrunarráðið
sem ég heyrði fleygt í Frakklandi var einfaldlega að borða minna.
Mikið vildi ég að við gætum fundið aftur ánægjuna af mat án þess að
vera með hann á heilanum. Við konur hljótum að hafa svo margt
annað og skemmtilegra að tala um, alveg sama hvernig holdafar
okkar kann að vera.
Heilbrigt samband
... Grafískan svarthvítan
kjól fyrir sumarið frá
Donnu Karan.
Fæst í Evu. OKKUR
LANGAR Í
…
... silfurlita strigaskó
til að skokka inn í vorið.
Fást í Evu, Laugavegi.
... fallega
svarta tösku
eftir Hildi Yeoman.
Fæst
í KronKron
Sumarið stefnir í að verða sumar ástarinnar þar
sem fjöldi hönnuða sótti innblástur til hippa-
tísku sjöunda og áttunda áratugarins. Ítalska
merkið Pucci hefur aldeilis sótt í sig veður og
hefur ekki verið jafnvinsælt síðan 1965.
Hippalúkkið sem ítölsku hönnuðirnir sýndu
fyrir næsta vetur voru hins vegar með rík-
mannlegra móti, skemmtileg blanda af
bóhemskum áhrifum og lúxus. - amb
SKYNÖRVANDI MYNSTUR OG LOÐ-
FELDIR HJÁ ÍTÖLSKUM HÖNNUÐUM
LÚXUSHIPPAR
SKYNÖRVANDI Síður kjóll frá
Pucci sem styðst einmitt við
gömlu mynstur tískuhússins frá
sjöunda áratugnum.
GULT OG GRÁTT
Óvenjuleg en
dempuð lita-
paletta frá Pucci
fyrir haust/vetur
2008.
KVENLEGT Lauflétt og
mynstrað dress úr siffoni frá
Just Cavalli.
HIPPALEGT Síð
og víð skyrta við
útvíðar gallabuxur
og barðastóran
hatt hjá Just
Cavalli.
LOÐFELD-
UR Fallegur
refakeip yfir
fagurbláan
silkikjól frá
Pucci.
> TÍSKUFRÉTTIR VIKUNNAR
Ítalska Vogue breytir útliti tískunnar Tískuheimurinn
hvíslar því spenntur að næsta tölublað Ítalska Vogue
muni skarta aðeins fyrirsætum af afrísku bergi brotnu.
Það er ljósmyndarinn heimsþekkti Stephen Meisel
sem tekur myndirnar og átakið er gert í þeim tilgangi
að sporna við kynþáttafordómum í tískubransanum
og hætta að einblína á hvítar fyrirsætur. Ofurfyrirsæt-
an Naomi Campbell hefur verið dugleg að ræða um
málefnið en meðal þeirra nýju
andlita sem prýða heftið er hin
sautján ára gamla Jourdan frá
London. „Það eru ekki einungis
hvítar stelpur í London og því
óeðlilegt að það séu ekki fleiri
svartar stelpur í auglýsingum.“
BÓHEM Fallegur mynstraður
jakki með loðfóðri ásamt
túrkisbláum leggings frá
Pucci.
STÆRSTI LEIKUR ALLRA TÍMA ER AÐ KOMA
VILTU FYRSTA EINTAKIÐ?
Vi
nn
in
ga
r v
er
ða
a
fh
en
di
r h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
1
99
k
r/
sk
ey
tið
.
AÐALV
INNING
UR ER
GTA IV
SPECIA
L
EDITION
! HVER VINNUR!
12
SENDU SMS BTL GT
A
Á NÚMERIÐ 1900
OG SVARAÐU EINNI SP
URNINGU OG ÞÚ GÆTI
R UNNIÐ!
AUKAVINNINGAR: GTA I
V LEIKURINN · KIPPUR A
F EGILS ORKU
DVD MYNDIR · BOLIR FR
Á BRIM OG FULLT AF ÖÐ
RUM TÖLVULEIKJUM
GTA IV LENDIR Í BT 29. A
PRÍL!