Fréttablaðið - 26.04.2008, Blaðsíða 10
10 26. apríl 2008 LAUGARDAGUR
HEILBRIGÐISMÁL Hávaðamengun í
borgum getur valdið hjarta- og
æðasjúkdómum, eyrnasuði,
svefntruflunum, greindarskerð-
ingu og lakari námsárangri
barna.
Kom þetta fram á ráðstefnunni
Noise in the City sem haldin var
nýlega í Amsterdam í Hollandi.
Voru þar birtar bráðabirgðaniður-
stöður Alþjóðaheilsustofnunar-
innar (WHO) um áhrif hávaða-
mengunar í borgum á heilsufar
fólks. Eru þar nefndir margvís-
legir orsakaþættir ónæðis, eins
og bílaumferð, flugvélaumferð,
járnbrautir og byggingafram-
kvæmdir. Þá voru einnig kynntar
aðferðir til að draga úr hávaða
með umferðarstýringu, hljóð-
bæru malbiki, einangrun bygg-
inga, hljóðtálmum og betra
umferðarskipulagi. -ovd
Áhrif hávaða á íbúa borga:
Hávaðameng-
un hættuleg
HÁVAÐI HEFUR MIKIL ÁHRIF Á FÓLK
Hægt er að bregðast við hávaðamengun
með ýmsum hætti en til þess þarf pólit-
ískan stuðning og skýra stefnu.
FRÉTTABLAÐIÐ/EOL
VERÐLAUN Ólafur Ragnar Gríms-
son forseti Íslands veitti fyrirtæk-
inu Baugi útflutningsverðlaun
forseta Íslands á miðvikudag. Jón
Ásgeir Jóhannesson stjórnarfor-
maður Baugs veitti þeim viðtöku
á Bessastöðum.
Þetta var í 20. sinn sem
verðlaunin eru veitt og af því
tilefni voru veittar þrjár heiðurs-
viðurkenningar. Þær komu í hlut
Einars Benediktssonar, fyrrum
sendiherra, dr. Rögnvalds
Ólafssonar dósents og Bjarkar
Guðmundsdóttur tónlistarmanns.
Forseti segir Baug hafa hlotið
verðlaunin fyrir forystuhlutverk í
íslensku útrásinni. - jse
Forseti Íslands:
Baugur fékk
verðlaun
SAMKEPPNISMÁL Fiskmarkaður
Íslands hf. misnotaði markaðsráð-
andi stöðu sína með því að tvinna
saman kaup á fiski og slægingu á
fiski og raska þannig samkeppni á
uppboðsmarkaði fyrir fiskafurðir,
samkvæmt ákvörðun Samkeppn-
iseftirlistins frá því á miðviku-
dag.
Fiskmarkaðnum var gert að
greiða tíu milljónir í stjórnvalds-
sekt vegna brotsins.
Í ákvörðunarorðum Samkeppn-
iseftirlitsins segir að kaupendur
að fiski á fiskmarkaðnum voru
neyddir til þess að kaupa slægingu
sem þeir höfðu ekki óskað eftir á
óslægðum fiski sem þeir höfðu
keypt á markaðnum. „Með því var
eðlilegri samkeppni á uppboðs-
markaði fyrir fiskafurðir raskað.
Þá hafði háttsemi Fiskmarkaðar-
ins einnig samkeppnishamlandi
áhrif á markaði fyrir slægingu þar
sem sá fiskur sem fiskkaupendur
höfðu keypt óslægðan var slægður
í slægingarþjónustu Fiskmarkað-
arins,“ segir í ákvörðunarorðum
Samkeppniseftirlitsins.
Samkeppniseftirlitið kemst
einnig að því að Reiknistofa fisk-
markaða hf. hafi brotið gegn sam-
keppnislögum með því að láta
þann sem kvartaði til samkeppnis-
eftirlitsins vegna gruns um brot,
Frostfisk ehf., á sérstakan
„válista“ vegna ógreiddra slæg-
ingarskulda. Félagið sem lenti á
válista var útilokað frá viðskipt-
um á Fiskaneti Reiknistofu fisk-
markaða þar til skuldin hafði verið
greidd. - mh
Samkeppniseftirlitið segir Fiskmarkað Íslands hafa brotið lög:
Gert að greiða tíu milljónir
FISKVINNSLA Fiskmarkaður Íslands var
sektaður fyrir að tvinna saman kaup á
fiski og slægingu fisks. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SVEITARSTJÓRNARMÁL Elías Jónat-
ansson, oddviti sjálfstæðismanna,
sest í stól bæjarstjóra á Bolungar-
vík um miðja næstu viku og ætlar
að láta það verða sitt fyrsta verk að
grandskoða fjármál sveitarfélags-
ins. Nýr meirihluti A-lista Afls til
áhrifa og Sjálfstæðisflokks var
myndaður á fimmtudagskvöld.
Elías telur nauðsynlegt að skoða
fjármál sveitarfélagsins svo það sé
skýrt í huga nýs meirihluta hver
staðan raunverulega er. „Það eru
mörg verkefni í gangi hér á staðn-
um sem ekki hefur verið lokið við
að fjármagna. Það er áhyggjuefni
hjá okkur að því sé ekki lokið og því
okkar fyrsta verk að fara yfir fjár-
málin í heild sinni.“ Elías nefnir að
miklar framkvæmdir séu fyrirhug-
aðar. Þar eru efst á blaði snjóflóða-
varnagarður, vinna við höfnina á
staðnum og nýtt félagsheimili.
Málefnasamningur hefur verið
undirritaður með fyrirvara um
samþykki fulltrúaráðs Sjálfstæðis-
félagana í bænum og flokksfélags
A-lista. Anna Guðrún Edvardsdótt-
ir oddviti A-lista verði formaður
bæjarráðs. Þá
mun forseti bæj-
arstjórnar koma
úr röðum sjálf-
stæðismanna.
Nýr meirihluti
er myndaður af
Sjálfstæðis-
flokknum og list-
anum Afl til
áhrifa sem Anna
Guðrún
Edvardsdóttur
leiðir. Um klofn-
ingsframboð frá
Sjálfstæðisflokknum er að ræða.
Anna Guðrún segir að fyrir bæj-
arstjórnarkosningarnar 2006 hafi
ekki verið sátt innan Sjálfstæðis-
flokksins um þau málefni sem
vinna ætti að á kjörtímabilinu. „Ég
lagði áherslu að haldin væru íbúa-
þing og reynt að gera stjórnsýsluna
opnari fyrir bæjarbúum. Það náðist
ekki sátt um það.“ Anna Guðrún
segir að í nýjum málefnasamningi
hafi A-listi náð fram þeim áhersl-
um sem lögð voru til grundvallar í
kosningunum 2006. Eins og verð-
andi bæjarstjóri leggur Anna Guð-
rún áherslu á fjármál sveitarfé-
lagsins vegna þess að aðstæður
hafi breyst gríðarlega á markaði á
sama tíma og eftir er að fjármagna
stór verkefni. „Við höfum ekki
fengið hljómgrunn hjá K-lista um
þær áhyggjur okkar og undir
kraumaði líka óánægja um fleiri
mál sem við munum skýra á næst-
unni.“
Þögul mótmæli voru við ráðhúsið
í bænum í gær þegar á milli tuttugu
og þrjátíu manns létu í ljós óánægju
sína með meirihlutaslitin, og eins
að Grímur Atlason verði ekki leng-
ur bæjarstjóri sveitarfélagsins.
svavar@frettabladid.is
Fjármögnun stórra verkefna
áhyggjuefni nýs meirihluta
Nýr bæjarstjórnarmeirihluti hefur verið myndaður í Bolungarvík. Elías Jónatansson, oddviti sjálfstæð-
ismanna, sest í bæjarstjórastólinn. Fjármál sveitarfélagsins eru áhyggjuefni nýs meirihluta. Fyrir dyrum
stendur að fjármagna stór verkefni sem voru þrætuepli innan fráfarandi meirihluta.
FRÁ BOLUNGARVÍK Nýr meirihluti hefur verið myndaður af Sjálfstæðisflokki og A-lista
sem var klofningsframboð úr flokknum í sveitarstjórnarkosningunum árið 2006.
MYND/BIRGIR ÞÓR
ELÍAS
JÓNATANSSON
„Það er merkilegt að það hafi
tekið viku að finna þennan
ásteytingarstein. Fyrst var olíu-
hreinsunarstöð nefnd til sögunnar
sem ágreiningsmál fráfarandi
meirihluta, síðan Soffía Vagns-
dóttir og hennar starfsemi. Allir sjá
hversu hjákátleg sú skýring var“,
segir Grímur Atlason, fráfarandi
bæjarstjóri Bolungarvíkur. Grímur
segir fjármál bæjarins ekki ástæðu
meirihlutaslita og allir viti að
rekstur bæjarfélagsins hafi verið
erfiður. „Fjárhagsáætlun hefur
verið í endurskoðun og allir hafa
verið sammála um hvernig að
þeim málum yrði staðið og ég
hafna þessari eftiráskýringu.“
Grímur Atlason, fráfarandi bæjarstjóri á Bolungarvík:
Fjármálin ekki ástæða
meirihlutaslitanna
Anna G. Edvardsdóttir, oddviti A-list-
ans, sleit meirihlutasamstarfi A- og
K-lista. Hún segir ástæðuna vera
umsvif Soffíu Vagnsdóttur, oddvita
K-lista, í atvinnurekstri í bænum.
Þau hafi verið of mikil og fari ekki
saman við starf bæjarfulltrúa.
Kjarnabúð ehf., fjölskyldufyrirtæki
Soffíu, gerði nýlega samning við
Ósafl, samstarfsfyrirtæki Íslenskra
aðalverktaka og Marti Contractors
upp á um hundrað milljónir. Hann
felur það í sér að Kjarnabúð ehf.
mun sjá starfsmönnum fyrir mat og
gistingu meðan á gerð Bolungarvík-
urganga stendur yfir.
Soffía Vagnsdóttir hefur lýst því
yfir að atvinnurekstur sinn sé ekki
ástæða meirihlutaslitanna, eitthvað
annað búi undir.
ÁSTÆÐA MEIRIHLUTASLITA A- OG K-LISTA
Aðalfundur Íslenska lífeyrissjóðsins verður
haldinn mánudaginn 19. maí kl. 16:00 í
Landsbankanum, Hafnarstræti 5, 4. hæð.
Allir sjóðfélagar og rétthafar eiga rétt á setu á aðalfundi Íslenska
lífeyrissjóðsins. Stjórn sjóðsins hvetur alla sjóðfélaga til að koma á fundinn
og taka þannig virkan þátt í starfseminni.
Stjórn Íslenska lífeyrissjóðsins
FÖSTUDAGURINN LANGI Í JERÚSAELM
Rétttrúnaðarkirkjan í austanverðri
Evrópu hélt föstudaginn langa heilag-
an í gær. Í Jerúsalem minntust menn
pínu Krists og báru krossa í kirkjur.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP