Fréttablaðið - 26.04.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 500026. apríl 2008 — 113. tölublað — 8. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
LAUGARDAGUR
ST
ÍL
L
46 AUGLÝSINGAR „Jú, jú, það má segja að þetta sé sérkennilegt í
ljósi þess sem síðar varð. En það
var bara hringt niður á Þrótt og
beðið um einhvern flottan bíl,“
segir Sturla Jónsson, vörubíl-
stjóri og byltingarforingi.
Sturla og frægur Volvo VN
670 byltingartrukkur hans voru í
lykilhlutverki þegar Fíton, í sam-
vinnu við Saga Film, gerðu mikla
auglýsingu fyrir olíufyrirtækið
N1. Það skýtur skökku við í ljósi
þeirra atburða sem síðar urðu –
þar sem Sturla leiðir baráttu
fyrir lækkun olíuverðs. „Ég er
náttúrulega ekkert í stríði við
olíufurstana. Ég er í stríði við
ríkisstjórnina,“ segir Sturla.
Auglýsingin byrjar þannig að
Sturla gengur að trukki sínum
ræsir vélarnar, kveikir ljósin og
allt hefst. Og undir dúndra tónar
frá hljómsveitinni Queen: Don’t
Stop Me Now. Leikstjórar eru
þeir Sammi og Gunni. Sturla er
ánægður með auglýsinguna sem
slíka þótt verðið á olíu sé honum
ekki að skapi. - jbg/sjá síðu 54
Talsmaður vörubílstjóra:
Sturla auglýsir
fyrir olíufélag
RÖKSTÓLAR
Illugi Gunnarsson
og Jónsi myndu
vilja vera í mafíu
með Garðari Thór
Cortes og Bjarna
Ármanns
28
UTANRÍKISMÁL Íslensk stjórnvöld
ætla að óska eftir skýringum á
ummælum Bans Ki-moon, fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna (SÞ), sem sagði í viðtali við
austurrískt vikurit vonast til
þess að Austurríki nái kjöri í
öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna.
Skilja má ummælin svo að
framkvæmdastjórinn sé að
taka afstöðu með Austurríki,
sem keppir gegn Íslandi og Tyrk-
landi um tvö laus sæti í öryggis-
ráðinu. Kosningabaráttan er nú að
ná hámarki, en kosið verður um
sætin í október.
„Persónulega vona ég innilega
að Austurríki nái kjöri,“ er meðal
annars haft eftir Ban í vikuritinu
Profil. Ban er þar í viðtali í tilefni
af heimsókn hans til Austurríkis,
þar sem hann heimsækir meðal
annars skrifstofur SÞ í Vín.
„Ef rétt er haft eftir aðalfram-
kvæmdastjóranum er um að ræða
mál sem ekki eingöngu snertir
Ísland heldur einnig öll önnur
aðildarríki,“ segir Kristín Árna-
dóttir, kosningastjóri framboðs
Íslands til öryggisráðsins.
„Aðildarríkin hljóta að gera þá
kröfu til aðalframkvæmdastjór-
ans að hann sýni fyllsta hlutleysi
og forðist með nokkru móti að
lýsa yfir stuðningi við sum aðild-
arríki á kostnað annarra,“ segir
hún.
Kristín segir að íslensk stjórn-
völd muni óska eftir skýringum á
orðum Bans. Hafi austurríska
blaðið haft ranglega eftir honum,
eða hafi eitthvað skolast til í þýð-
ingu á viðtalinu yfir á þýsku, verði
það væntanlega leiðrétt.
Hans Winkler, ráðuneytisstjóri
utanríkisráðuneytis Austurríkis,
segir Ban hafa persónuleg tengsl
við Austurríki, enda hafi hann
áður verið sendiherra Suður-
Kóreu í landinu.
Winkler segir Ban hafa lýst per-
sónulegri skoðun, en í hlutverki
sínu sem aðalframkvæmdastjóri
SÞ geri hann auðvitað ekki upp á
milli aðildarþjóða. - bj / sjá síðu 6
Stjórnvöld vilja skýringar á
stuðningi við Austurríki
Framkvæmdastjóri SÞ segist vona innilega að Austurríki nái kjöri í öryggisráðið. Austurríki keppir gegn Ís-
landi og Tyrklandi um laus sæti í ráðinu. Íslensk stjórnvöld munu óska eftir skýringum á ummælum hans.
VelduektaMyllu
Heimilisbrauð
- brauðið sem allir
á heimilinu velja
Norðanhret Í dag fer lítið fyrir
sumarveðri á landinu, sérstaklega
norðanlands. Talsverður vind-
ur, snjókoma og frost er spáin
fyrir norðurhelming landsins, en
sunnanlands verður hlýrra og bjart
suðvestantil.
VEÐUR 4
-4
-1
2
7
-3
EFNAHAGSMÁL „Þetta þýðir að launahækkanir halda
ekki í við verðbólguna,“ segir Rannveig Sigurðar-
dóttir, forstöðumaður greiningar og útgáfu í
Seðlabankanum.
Kaupmáttur launatekna rýrnaði um 0,9 prósent
milli mars í fyrra og mars í ár. Launavísitalan
hækkaði um 7,8 prósent milli ára, en verðbólgan
jókst hins vegar um 8,7 prósent. Þetta, segir í
Hagvísum Seðlabankans, hefur ekki gerst frá því í
apríl árið 2000.
Bent er á, þessu til skýringar, að stórir hópar hafi
ekki fengið launahækkanir um síðustu áramót, auk
þess sem verðbólga sé nú mikil.
Greining Glitnis spáir því að verðbólgan aukist
enn og verði í þessum mánuði 10,2 prósent. En þótt
kaupmáttur rýrni nú almennt, hefur hann rýrnað hjá
stórum hópum launafólks undanfarin ár.
Þannig hefur um helmingur skrifstofufólks
upplifað kaupmáttarrýrnun undanfarin þrjú ár.
Hins vegar hafa laun stjórnenda að jafnaði
hækkað töluvert umfram verðbólgu undanfarin þrjú
ár. - ikh / Sjá síðu 12
Íslenskar konur eru
ekki með neitt væl
Eskimo markaðssetur hina íslensku
konu með merkinu e-label
Börnin hans Friðriks best
Fréttablaðið bað málsmetandi aðila
um að tilnefna bestu og verstu kvik-
myndir Íslandssögunnar 3432
sem
ál
ar-
ig.
nar.
loku
fi
n í
ið-
ð
um
u.
úr
m
ar-
di.
ar
ið
ð
Sumarið stefnir í að verða sumar ástarinnar þar sem fjöldi hönnuða sótti innblástur til hippa-tísku sjöunda og áttunda áratugarins. Ítalska merkið Pucci hefur aldeilis sótt í sig veður og hefur ekki verið jafnvinsælt síðan 1965. Hippalúkkið sem ítölsku hönnuðirnir sýndu fyrir næsta vetur voru hins vegar með rík-mannlegra móti, skemmtileg blanda af bóhemskum áhrifum og lúxus. - amb
SKYNÖRVANDI MYNSTUR OG LOÐ-FELDIR HJÁ ÍTÖLSKUM HÖNNUÐUM
LÚXUSHIPPAR
GULT OG GRÁTT
Óvenjuleg en
dempuð lita-
paletta frá Pucci
fyrir haust/vetur
2008.
HIPPALEGT Síð
og víð skyrta við
útvíðar gallabuxur
og barðastóran
hatt hjá Just
Cavalli.
LOÐFELD-
UR Fallegur
refakeip yfir
fagurbláan
silkikjól frá
Pucci.
MÓTMÆLI Ungur tíbetskur drengur var klæddur upp sem Panchen Lama, næstæðsti andlegi leiðtogi Tíbeta, í mótmælum í Nýju-
Delí í gær. Í kringum hann eru mótmælendur í gervi kínverskra hermanna, en Panchen Lama var rænt af kínverskum yfirvöldum
árið 1995 og hefur ekki sést síðan. Hann hefði orðið nítján ára í gær. NORDICPHOTO/AFP
Kaupmáttur launatekna rýrnaði um tæpt prósent á einu ári:
Verðbólgan gleypir launin