Fréttablaðið - 26.04.2008, Page 50
● heimili&hönnun
Ef pláss er af skornum í svefnherberginu getur verið ráð að
hengja náttborð upp á vegg. Það kemur líka í veg fyrir að hvim-
leitt ryk safnist undir þeim. Þessi
náttborð frá sænska fyrirtæk-
inu Maze International eru búin
sniðugum lausnum fyrir bækur
og blöð. Maze vinnur eftir þeirri
hugmyndafræði að setja ávallt
spurningarmerki við þær hug-
myndir og lausnir sem ríkja á
hverjum tíma og búa til nýja val-
kosti. Sjá nánar á slóðinni http://
www.mazeint.nu.
Maze International á heiðurinn að þessu skemmtilega náttborði.
Sniðug lausn ef pláss vantar.
Náttborð á vegginn
Fáir foreldrar eru spenntir fyrir
opnu leyfi í hjónarúmið til hopps
og hamagangs.
Börn eru auðvitað á öndverð-
um meiði og finnst fátt skemmti-
legra en stolnar stundir í værðar-
voðum mömmu og pabba, enda í
þeirra augum risastór leikvöllur
sem annars færi til ónýtis.
Sökum léttrar vigtar barna
sakar lítið að lána hjónarúmið
til hoppvígvallar og vitaskuld
eftir minnilegast og mest gaman
fyrir ungviðið að hafa mömmu og
pabba hlæjandi með sem áhorf-
endur.
Það er fátt sem jafnast á við
hvílustað foreldranna í huga
barnssálar. Þar er best að kúra,
finna angan af mömmu og pabba
í sængurfötunum, hlýju dúnsins,
þvæling línsins og vitaskuld út-
breiddan faðm og nærveru, þegar
best lætur.
Þangað til allir draumar ræt-
ast eru bangsi og önnur mjúkdýr
góðir staðgenglar og fínasti fé-
lagsskapur meðan beðið er eftir
þeim sem börnunum er mikil-
vægast í lífinu. - þlg
Hoppað í nafni hamingjunnar
● Fæstir foreldrar eru spenntir fyrir því að börnin noti hjónarúmið sem leikvöll. Börnin eru
þó ekki alltaf á sama máli og finnst kjörið að nota rúmið í leiki, til dæmis feluleiki og hopp.
Hopp og hí í hjónarúminu er uppskrift að ósviknu fjöri og vellíðan. NORDICPHOTOS/GETTY
26. APRÍL 2008 LAUGARDAGUR14