Fréttablaðið - 26.04.2008, Side 50

Fréttablaðið - 26.04.2008, Side 50
● heimili&hönnun Ef pláss er af skornum í svefnherberginu getur verið ráð að hengja náttborð upp á vegg. Það kemur líka í veg fyrir að hvim- leitt ryk safnist undir þeim. Þessi náttborð frá sænska fyrirtæk- inu Maze International eru búin sniðugum lausnum fyrir bækur og blöð. Maze vinnur eftir þeirri hugmyndafræði að setja ávallt spurningarmerki við þær hug- myndir og lausnir sem ríkja á hverjum tíma og búa til nýja val- kosti. Sjá nánar á slóðinni http:// www.mazeint.nu. Maze International á heiðurinn að þessu skemmtilega náttborði. Sniðug lausn ef pláss vantar. Náttborð á vegginn Fáir foreldrar eru spenntir fyrir opnu leyfi í hjónarúmið til hopps og hamagangs. Börn eru auðvitað á öndverð- um meiði og finnst fátt skemmti- legra en stolnar stundir í værðar- voðum mömmu og pabba, enda í þeirra augum risastór leikvöllur sem annars færi til ónýtis. Sökum léttrar vigtar barna sakar lítið að lána hjónarúmið til hoppvígvallar og vitaskuld eftir minnilegast og mest gaman fyrir ungviðið að hafa mömmu og pabba hlæjandi með sem áhorf- endur. Það er fátt sem jafnast á við hvílustað foreldranna í huga barnssálar. Þar er best að kúra, finna angan af mömmu og pabba í sængurfötunum, hlýju dúnsins, þvæling línsins og vitaskuld út- breiddan faðm og nærveru, þegar best lætur. Þangað til allir draumar ræt- ast eru bangsi og önnur mjúkdýr góðir staðgenglar og fínasti fé- lagsskapur meðan beðið er eftir þeim sem börnunum er mikil- vægast í lífinu. - þlg Hoppað í nafni hamingjunnar ● Fæstir foreldrar eru spenntir fyrir því að börnin noti hjónarúmið sem leikvöll. Börnin eru þó ekki alltaf á sama máli og finnst kjörið að nota rúmið í leiki, til dæmis feluleiki og hopp. Hopp og hí í hjónarúminu er uppskrift að ósviknu fjöri og vellíðan. NORDICPHOTOS/GETTY 26. APRÍL 2008 LAUGARDAGUR14

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.