Fréttablaðið - 26.04.2008, Blaðsíða 79
LAUGARDAGUR 26. apríl 2008 47
Clay Beresford er ungur millj-
ónamæringur sem loksins kemst
í langþráða hjartaígræðslu. En
aðgerðin fer ekki betur en svo
að svæfingin mistekst og hann
finnur fyrir öllum hamagangin-
um, og án þess að neinn viti til
þar sem hann er lamaður á
meðan. Ekki nóg með það heldur
heyrir hann ýmislegt annað frá
fólkinu í kringum sig sem gæti
ógnað lífi hans.
Awake byggir á áhugaverðri
hugmynd sem er vel fær um að
valda martröðum, en í myndinni
er því haldið fram að einn af
hverjum 700 sem gangast undir
skurðaðgerð sé vakandi á meðan.
Í skásta atriði myndarinnar er
brjóstkassinn á persónu
Haydens Christensen opnaður,
með tilheyrandi kvölum hans.
En þessi hrollvekjuhluti
myndarinnar víkur fljótt fyrir
miklu svikaplotti og spennu-
trylli, sem kemur þessu ástandi
lítið við. Við það fer allt út um
þúfur og veikburða fléttur, sem
oftar en ekki er hægt að sjá
fyrir, taka völdin. Fyrr en varir
fellur hún algjörlega um sjálfa
sig og verður það ótrúleg og
fáránleg að útkoman er hálf
kómísk. Sérstaklega reynast
leiðir handritshöfundarins
skondnar til að viðhalda þátt-
töku aðalhetjunnar, sem liggur
jú grafkyrr.
Sé það ekki nóg er myndin
plöguð af dauflegum leik í aðal-
hlutverkunum. Star Wars-stjarn-
an Hayden Christensen er
kannski bærilegri en hann hefur
verið en sýnir hér litla útgeisl-
un. En Jessica Alba hefur vissu-
lega útlitið með sér, en sýnir
ekki sterka frammistöðu. Ter-
rence Howard er ágætur í ein-
hliða læknahlutverki og Lena
Olin kemur fram sem ráðrík
móðir Christensens.
Það var kannski ekki við miklu
að búast af mynd sem var tekin
upp fyrir tveimur árum, og
hefur síðan þá safnað ryki á hill-
um framleiðenda. Hún ber þess
vel merki og verður að teljast
mjög óspennandi og ótrúleg
kvikmyndaupplifun.
Loftur Ingi Bjarnason - Topp5.isw
Vakandi í eigin hjartaaðgerð
KVIKMYNDIR
Awake
Leikstjóri:
★★
Er þetta hrollvekja eða spennutryllir
með svikaplotti? Ómögulegt er að
vita hver var pælingin með þessari
slöppu mynd.
Rebecca Romjin mun yfirgefa
Ugly Betty eftir að annarri þátta-
röð lýkur í næsta mánuði. Hún
mun snúa aftur sem gestaleikari í
næstu þáttaröð, en ekki vera hluti
af daglegu starfi. Ástæðan fyrir
brotthvarfi hennar er sú að henni
þykja nýir handritshöfundar, sem
ráðnir voru eftir verkfall hand-
ritshöfunda seint á síðasta ári,
hafa breytt karakternum sem hún
leikur, Alexis Meade, of mikið.
„Þó að ég viti að ég snúi aftur
í næstu þáttaröð er ég ekki viss
um að þeir geti séð jafn vel um
karakterinn minn og þeir hafa
gert eftir allar þessar breytingar.
Svo ég er að fara, kem aftur sem
gestaleikari, en það er kominn
tími fyrir mig til að fara og finna
mér eitthvað annað,“ segir hún í
viðtali við NY Post.
Yfirgefur
Ugly Betty
ÓÁNÆGÐ MEÐ HANDRITSHÖFUNDA
Rebecca Romjin er ósátt við þær breyt-
ingar sem hafa átt sér stað á karaktern-
um sem hún leikur í Ugly Betty eftir að
nýir handritshöfundar komu til starfa.
NORDICPHOTOS/GETTY
Strandvarðastjarnan fyrrverandi,
David Hasselhoff, hefur sam-
þykkt að borga fyrrverandi
eiginkonu sinni, Pamelu Bach, og
börnum þeirra tæpar tvær
milljónir króna á mánuði sam-
kvæmt skilnaðarplöggum þeirra.
Hasselhoff og Bach, sem skildu
árið 2006 eftir sextán ára
hjónaband, hafa sameiginlegt
forræði yfir börnum sínum.
Hasselhoff, sem hefur átt við
áfengisvanda að stríða, var á
síðasta ári bannað að hitta börnin
sín eftir að myndbandsupptaka
var birt af honum ölvuðum á
netinu. Hasselhoff og Bach hafa
undanfarna mánuði unnið að
samningum varðandi skilnaðinn
og virðast nú hafa náð endanlegu
samkomulagi.
Tvær millur
á mánuði
ÞEGAR ALLT LÉK Í LYNDI Hasselhoff og
Bach á góðri stundu áður en skilnaðar-
deilan hófst.