Fréttablaðið - 28.08.2008, Síða 80
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Ólafs Sindra
Ólafssonar
Raunveruleikinn er oft áhuga-verðari en skáldskapur.
Þannig var einmitt með fegurðar-
samkeppnina sem faðir Antonio
Rungi ætlaði að skipuleggja og
halda með hjálp netsins. Þar átti
að keppa í fegurð nunna. Ekki bara
líkamlegri fegurð heldur heildar-
fegurð, með áherslu á góðverk,
guðsgjafir og geislandi viðmót.
MÉR finnst hugmyndin stórgóð,
þó ekki væri fyrir annað en að allt
heila klabbið hljómar eins og sögu-
þráður úr gamanþáttunum um
Father Ted.
ÉG var farinn að ímynda mér
afskaplega skemmtilega keppni.
Hæfileikahluti keppninnar hefði
t.d. getað snúist um að endurleika
atriði úr Biblíunni. Einhver
keppnis nunnanna hefði ef til vill
valið að túlka Móses að þurrka
upp Rauða hafið – væri tími mán-
aðarins hentugur fyrir nunnuna,
að sjálfsögðu.
SVO má ekki gleyma sundfata-
sýningunni. Ég veit ekki hvernig
sundföt nunnur brúka venjulega,
en fer ekki í felur með hitt að mér
þætti gaman að komast að því. Ég
geri mér í hugarlund einhvers
konar svarthvítan blautbúning
með mörgæsavængjum.
ÞETTA hefði sem sagt orðið fræð-
andi skemmtun. En þrýstingur frá
kaþólsku kirkjunni varð til þess að
séra Rungi neyddist til að aflýsa
keppninni. Sem er auðvitað stór-
kostleg synd. Kaþólska kirkjan lét
sér þarna renna úr greipum kjörið
tækifæri til að bæta alþjóðlega
ímynd sína og fræða pöpulinn um
gangverk kaþólskunnar í leiðinni.
Það er bersýnilega fleira en bara
ófyndnar símtækjaauglýsingar
sem fer öfugt ofan í kirkjunnar
menn.
Á hinn bóginn er úlfúð kaþólsk-
unnar gagnvart svona uppátækj-
um skiljanleg. Það er nauðsynlegt
að halda andlitinu – og viðurkenn-
ing á að kaþólskar konur hafi eitt-
hvað fram að færa sem dauðlegir
geti dæmt um er auðvitað hættu-
leg. Það væri líka hneykslanlegt
að viðurkenna með þessu móti að
kaþólskir prestar hafi gagnkyn-
hneigða tendensa eins og hver
annar syndaselur.
ÞÁ er betra að halda sig við
kunnug legar og öruggar slóðir. Ég
bíð því spenntur eftir að keppn-
inni um Herra altarisdreng 2008
verði hleypt af stokkunum. Reynd-
ar gæti það veist kaþólsku kirkj-
unni erfitt að breyta þeirri keppni
úr daglegum viðburði í árlegan.
Ungfrú klaustur
2008
Í dag er fimmtudagurinn
28. ágúst, 241. dagur ársins.
5.59 13.29 20.56
5.37 13.14 20.48
JAZZINN
Í BORGINNI!
26.-30. ÁGÚST
Engin
útborgun!
Frábær símatilboð hjá Vodafone. Þú borgar ekkert út,
afborganir dreifast á 12 mánuði á kreditkort. Auk þess
færðu 2.000 kr. inneign í hverjum mánuði í heilt ár.
Adidas MiCoach
• Afborgun 3.500 kr. á mánuði í 1 ár
• 2.000 kr. inneign á mánuði í 1 ár
0 kr. út
Sony Ericsson W910i
• Afborgun 4.000 kr. á mánuði í 1 ár
• 2.000 kr. inneign á mánuði í 1 ár
• 500 MB niðurhal á mánuði í 1 ár*
0 kr. út
Þú færð 2.000 kr. inneign á mánuði!
Lifðu núna
Nokia E51
• Afborgun 3.000 kr. á mánuði í 1 ár
• 500 MB niðurhal á mánuði í 1 ár*
0 kr. út
*Gildir um gagnaflutninga innanlands.
Tilboðið gildir til 20. september 2008.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A