Fréttablaðið - 28.08.2008, Blaðsíða 41
FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2008 5í túninu heima ● fréttablaðið ●
Skessan mætir á bókasafnið í Mosfells-
bæ. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Barnaleikritið Sigga og Skessan
eftir sögu Herdísar Egilsdóttur
verður sýnt á Bókasafni Mosfells-
bæjar föstudaginn 29. ágúst næst-
komandi, klukkan tíu.
Öllum börnum í Mosfellsbæ
sem fædd eru árið 2004 er boðið á
leiksýninguna og munu þau koma
í fylgd með sínum leikskólakenn-
urum. Það er Stoppleikhópurinn,
með Eggert Kaaber í fararbroddi,
sem mun flytja leikritið, en það
fjallar um vináttuna. Leiksýning-
in er hluti af bæjarhátíðinni „Í
túninu heima“ og er þetta í þriðja
sinn sem bókasafnið stendur fyrir
svona uppákomu. Á fyrri hátíðum
hafa um hundrað og tuttugu börn
mætt og skemmt sér konunglega,
enda aðstaðan góð á bókasafninu.
Vinátta í verki
á bókasafninu
Gunnar Kvaran spilar verk Bachs á
Gljúfrasteini rétt eins og Laxness.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Síðustu tónleikarnir í Sumartón-
leikaröð Gljúfrasteins fara fram
á sunnudaginn klukkan fjögur.
Gunnar Kvaran sellóleikari mun
þá leika verk eftir Johann Sebasti-
an Bach, en nóbelsskáldið Hall-
dór Laxness lék einmitt verk eftir
Bach daglega á Gljúfrasteini.
Tónleikaröð sumarsins hefur
verið vel heppnuð og fjölsótt.
Meðal listamanna sem hafa komið
þar fram eru Jónas Ingimundar-
son, hljómsveitin Flís og Sigrún
Eðvaldsdóttir. Verk Laxness hafa
verið listamönnunum hugleikinn.
Síðastliðinn miðvikudag söng til
dæmis Guðrún Ingimarsdóttir
sópran lög við texta skáldsins.
List í húsi
skáldsins
Golf er tilvalin leið fyrir ungl-
inga til að njóta útiveru. Golf
þarfnast mikils aga og æfingin
skapar sannarlega meistarann.
Unglingaeinvígi í golfi verður
haldið í Mofellsbæ sunnudaginn
31. ágúst og það í fjórða sinn.
Unglingaeinvígið er boðsmót þar
sem leikmenn geta unnið sér inn
þátttökurétt á Kaupþingsmótaröð-
ina. Auk þess er klúbbmeisturum
Golfklúbbsins Kjalar boðin þátt-
taka.
Leikið verður í þremur aldurs-
flokkum, það er að segja flokki
fjórtán ára og yngri, flokki fimmt-
án til sextán ára og síðan flokki
sautján til átján ára.
Leikin verða einvígi í öllum
flokkum að morgni sunnudagsins
og þrír úr hverjum flokki komast
í Unglingaeinvígið sem haldið er
eftir hádegi sama dag.
Sigurvegari ársins á undan er
eini keppandinn sem tryggt hefur
sér þátttöku í lokaeinvíginu.
Það er Golfklúbburinn Kjöl-
ur sem sér um mótið sem verður
án efa mikil skemmtun og eflaust
skapast spenna. Mótið er hluti af
fjölskylduhátíðinni í Mosfells-
bæ, „Í túninu heima“. Vinsældir
golfíþróttarinnar hafa aukist mikið
síðasta áratug og er hún stunduð af
fólki á öllum aldri. Ungmenni hafa
einnig sýnt íþróttinni mikinn áhuga
og er það gleðiefni. - mmr
Unglingar mætast í golfi