Fréttablaðið - 28.08.2008, Blaðsíða 40
Iðandi listalíf og mannlíf
einkennir Álafosskvosina í
Mosfellsbæ. Sannkölluð mark-
aðsstemning verður á bæjar-
hátíðinni um helgina.
Tónlist, myndlist og leiklist þrí-
fast vel í Álafosskvosinni í Mos-
fellsbæ en í gamla verksmiðju-
húsinu í kvosinni er Listaskóli
Mosfellsbæjar til húsa. Einnig
eru listamenn af ýmsum toga með
vinnustofur og æfingaaðstöðu
en meðal listamanna sem hafa
hreiðrað um sig í kvosinni má
nefna hljómsveitina Sigur Rós.
Listaskóli Mosfellsbæjar var
stofnaður árið 2006 og í honum
eru 540 nemendur í fjórum deild-
um. Atli Guðlaugsson er skóla-
stjóri og segir hann fólk á öllum
aldri velkomið í skólann.
„Það er nóg að vera farinn að
tala til að geta komist að. Yngstu
nemendurnir eru þriggja ára í
hljóðfæranáminu og einhverj-
ir eru síðan komnir yfir sjötugt í
myndlistarnáminu.“
Öflugu sumarstarfi er hald-
ið úti bæði í myndlistardeildinni
og hjá leikfélaginu í skólanum
en kennsla hefst nú í vikunni. Á
bæjarhátíðinni um helgina verður
Listaskólinn með kynningarbása,
tónlistardagskrá og myndlistar-
sýningar.
Kvosin mun reyndar öll iða
af lífi um helgina en auk atriða
Listaskólans mun ríkja sannköll-
uð markaðsstemning. Á laugar-
daginn verða meðal annars seld-
ar heimalagaðar sultur og lífrænt
ræktaðar kryddjurtir frá Engi og
rósir frá Laugarbóli. Sælkerar
geta keypt sér heimabakaðar
berjakökur og kleinur svo eitt-
hvað sé nefnt. Þeir sem eru á
höttunum eftir notuðum húsmun-
um og fatnaði ættu að geta fundið
eitthvað á kompusölunni. Klukk-
an 13.15 verður uppboð á prins-
essukjólum en uppboðinu stýr-
ir Elísabet Brekkan. Klukkan 14
hefst leiksýningin Ísland ögrum
skorið og allan daginn verður lif-
andi tónlist og kaffiveitingar á
kaffi Kvos. - rat
Það verður af nógu að taka í
Mosfellsbæ um helgina, hvort
sem það er rokk á útitónleik-
um, handverk og uppskera á
útimörkuðum, kafbátsmótor
í borholu 13, klassík, leiklist,
listflug, íþróttir eða karamellur
úr háloftum yfir túninu heima.
„Ég ætla rétt að vona að nær-
sveitungar sjái sér fært að taka
bíltúr upp fyrir Elliðaár, en það
hefur oft verið talið dálítið langt
upp í Mosó. Við erum jú fyrst og
fremst bær í sveit og viljum vera
það áfram, enda sækist fólk eftir
nálægð við náttúruna sem um-
kringir bæinn,“ segir Daði Þór
Einarsson, skipuleggjandi bæjar-
hátíðar Mosfellsbæjar.
„Það er mikið að gera á stóru
heimili, sem heill bær er, og mikl-
ar og almennar undirtektir bæj-
arbúa við skreytingar. Búið er að
skipta bænum niður í gulan, rauð-
an, hvítan og bláan hátíðarlit, en
í fyrra ákváðum við að skipta út
græna litnum fyrir hvítan því
Mosfellsbær er svo grænn að
græni liturinn hvarf inn í tré og
runna,“ segir Daði Þór fullur til-
hlökkunar fyrir bæjarhátíðina
sem haldin verður í fjórða sinn.
„Nafngiftin „Í túninu heima“
er fengin að láni hjá nóbelsskáld-
inu og Mosfellingnum Halldóri
Laxness. Ævintýrið fór af stað
sem umhverfishátíð þegar bær-
inn veitti árlegar viðurkenning-
ar til íbúanna fyrir fallega garða
og götur, ásamt því að gefa fé-
lagasamtökum færi á að kynna
vetrarstarf sitt í Íþróttahöllinni.
Vetrarstarfið er enn rauði þráð-
urinn en vindur sífellt upp á sig,
og í fyrra voru þrjátíu básar í
Íþróttahöllinni, en verða sex-
tíu í ár,“ segir Daði Þór um gleð-
ina sem hefst á fimmtudagskvöld
með frumsýningu leikfélags-
ins og tónleikum ungra Mosfell-
inga með sér eldri listamönnum.
Skemmtanagildi hátíðarinnar vex
ár frá ári og verður æ fjölbreytt-
ara með forvitnilegum mörk-
uðum, brekkusöng, varðeldi og
íþróttamóti með ólympíusniði, en
þá er aðeins fátt upptalið.
„Í bæjarfélaginu býr fjöldi
listamanna sem leggur sitt af
mörkum til að gera hátíðina sem
skemmtilegasta, en á laugardags-
kvöld bjóðum við upp á glæsilega
útitónleika á nýju bæjartorgi þar
sem við fáum utanaðkomandi
listamenn. „Í túninu heima“ er
fjölskylduhátíð þar sem vel er
gert fyrir allar kynslóðir á veislu-
borði skemmtana. Það einkennir
Mosfellinga að vera með eindæm-
um opnir og gestrisnir, eins og oft
hefur sýnt sig þegar gesti ber að
garði og fólk er tilbúið að opna
heimili sín og alltaf nóg pláss.
Það er kannski pínulítið sveitó,
en verulega sjarmerandi og fylg-
ir þeim sérstöku notalegheitum
sem einkenna Mosfellsbæ.“
- þlg
28. ÁGÚST 2008 FIMMTUDAGUR4 ● fréttablaðið ● í túninu heima
Uppboð verður á prinsessukjólum í Kvosinni um helgina undir stjórn Elísabetar Brekkan. MYND/MARISA N. ARASON
Atli Guðlaugsson, skólastjóri Listaskólans í Mosfellsbæ þar sem yngstu nemendurnir
eru rétt farnir að tala. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Listalíf og fjör í kvosinni
Daði Þór Einarsson er skipuleggjandi
bæjarhátíðar Mosfellsbæjar, Í túninu
heima, sem hefst í kvöld og stendur með
glæsibrag til sunnudags. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Í menningarreisu
upp fyrir Elliðaárnar
Mannlífið tekur á sig litskrúðugan blæ Í túninu heima, en Mosfellingar eru kunnir
fyrir vinalegheit og einstaka gestrisni, og taka hverju nýju andliti með fögnuði.
MYND/HILMAR GUNNARSSON
Frjósemi í listsköpun og hvers kyns markaðshaldi er einkennandi fyrir Mosfellsbæ og
gaman fyrir grúskara að leita þar hófanna á lokkandi markaðsborðum.
Alhliða
trésmíði
Álafossvegur 27 – s. 586-8356 ( verkstæði ) – fax 586-8357
s. 894-0006 ( Gunnar ) – ishamar@ishamar.is
LífsStíll
Gjafavaraoghönnun
Náttúruleg krem, íslensk
hönnun og falleg gjafavara
Ertu farin að huga að heilsunni
og heimilinu fyrir haustið ?
Vertu þá velkomin í heimsókn,
Við tökum vel á móti þér.
Háholti 14 • Opnunartímar- Virka daga: 17-19 • Laugardagar : 11-16