Fréttablaðið - 28.08.2008, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 28.08.2008, Blaðsíða 56
36 28. ágúst 2008 FIMMTUDAGUR menning@frettabladid.is Jazzhátíð Reykjavíkur var sett á þriðjudagskvöld og er nú þriðji í djassi: ekki færri en sjö tónleikar eru í dag: þeir fyrstu í hádeginu. Þetta er nítjánda árið sem Jazzhá- tíð Reykjavíkur er haldin. Djass- sagan íslenska teygir sig allt aftur á millistríðsárin og raunar voru skilin milli danstónlistar og djass- ins engin. Það er hugur í aðstand- endum, hugmyndir uppi um sam- fellt starf og skipulegt samstarf við erlendar hátíðir. Íslenskur djass er að verða útflutningsvara. Áberandi eru tónleikar sem tengj- ast útgáfu, minnst tvær plötur verða til á hátíðinni. Líkt og fyrri daga er hádegis- djass í Ingólfsnausti kl. 12.15 og er frítt inn. Svingtónleikarestrasjón Sextetts Hauks Gröndal með Ragga Bjarna er kl. 15 og aftur kl. 22 í Iðnó. Djassinn er tekinn að teygja sig inn í heimildarmyndir en kl. 19 verður frumsýnd mynd um tónleikaferð Stórsveitar Samú- els Jóns um landið í fyrra. Timburmenn og djass. Hljómsveit Tómasar R. Einarsson- ar og söngkonan Ragnheiður Grön- dal halda tónleika í Fríkirkjunni í kvöld kl. 20. Á efnisskránni eru ástarkvæði og timburmannaljóð sem Tómas hefur samið tónlist við og er um að ræða frumflutning flestra laganna. Höfundar ljóðanna eru Ingibjörg Haraldsdóttir, Krist- ín Svava Tómasdóttir, Sveinbjörn I. Baldvinsson, Halldór Kiljan Lax- ness, Vilborg Dagbjartsdóttir og Steinn Steinarr og svo Tómas sjálf- ur. Með þeim koma fram Ómar Guðjónsson gítarleikari, Davíð Þór Jónsson hljómborðsleikari og Matthías MD Hemstock sem leikur á trommur og slagverk. Gítarveisla Á Jazzhátíð síðasta árs var Björn Thoroddsen gestgjafi í sannkall- aðri gítarveislu á Nasa. Ákveðið hefur verið að gera gítarveisluna að árlegum atburði á Jazzhátíð og er hún í kvöld. Björn hefur valið sérlega áhugaverða gítarleikara í veisluna. Japaninn Kazumi Watanabe er ákaflega hátt skrifaður listamaður, hefur setið sem besti djassleikari ársins í 24 ár samfleytt í Swing Journal í heimalandi sínu og gefið út yfir 30 plötur í eigin nafni. Belg- íski gítarleikarinn Philip Catherine kom hingað fyrir þremur áratug- um og eru tónleikar hans og Niels Henning í Háskólabíói öllum sem þar voru ógleymanlegir. Hann hefur verið í fremstu röð gítarleik- ara þessa heims um árabil, en ferill hans hófst snemma á 7. áratugnum þegar hann lék með Focus. Philip var kosinn djasstónlistarmaður Evrópu 2007. Okkar menn Íslendingar eiga líka sína fulltrúa á þessum tónleikum en þeir Magnús Eiríksson og Þórður Árnason mæta í gítarveisluna. Magnús hefur árum saman verið einn okkar bestu gítarleikara, ekki síst þegar blús- inn tekur völdin. Þórð Árnason þarf vart að kynna en hann hefur staðið marga næturvaktina með Stuðmönnum og skyldum böndum. Björn Thoroddsen er að ganga frá þriggja diska samningi við útgáfu- fyrirtæki í Mexíkó. Hann er nýkominn úr tónleikaferð um Kan- ada. Í kvöld nýtur hann fulltingis þeirra Jóns Rafnssonar bassaleik- ara og Jóhanns Hjörleifssonar trommuleikara. Tónleikarnir hefj- ast kl. 21 í Háskólabíói. Stofujass Tríó saxófónleikarans Sigurðar Flosasonar heldur tónleika í kvöld kl. 22 á efri hæð Iðnó. Auk Sigurð- ar skipa tríóið Lennart Ginman, einn fremsti kontrabassaleikari Dana, og gítarleikarinn góðkunni Jón Páll Bjarnason. Fluttir verða djassstandardar úr hinni stóru amerísku söngbók djassbók- menntanna. Undir miðnætti Á Rúbín við Perluna mun Sebasti- en Tellier, franska ólíkindatólið, koma fram í kvöld. Uppákoman er ekki á dagskrá hátíðarinnar en hefur smeygt sér undir hennar kápu. Sebastien Tellier heillaði marga með frammistöðu sinni í Eurovision. Dagskránni lýkur svo á Glaum- bar þar sem Samúel Jón Samúels- son Big Band fagnar kvikmynda- frumsýningu dagsins með látum. Fnykur er kominn út í Japan og bandið var óhemju aktíft á liðnum misserum. Það er frítt inn á barinn. pbb@frettabladid.is Þriðji dagur í Jazzhátíðinni TÓNLIST Ragnheiður Gröndal tekst á við timburmannakvæði og brunasöngva í Fríkirkjunni í kvöld en tónsmíðar á Tómas R. Einarsson. TÓNLIST Jón Páll spilar með Sigurði Flosasyni og danska bassaleikaranum Lennart Ginman í kvöld. TÓNLSIT Magnús Eiríksson þenur strengi á gítarhátíð kvöldsins í Háskólabíó. Sabra Johnson, sem vann í fyrra í hinum þekkta sjónvarpsþætti So You Think You Can Dance? er komin til Reykjavíkur til að kenna á vegum DanceCenter Reykjavík í glæsilegri aðstöðu í Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal. Hún mun koma með allt það heitasta frá New York og Los Angeles í Street og Jazz- funki. Námskeiðið hefst í dag. Nem- endum er skipt í hópa eftir aldri og getu. Upplýsingar eru á danc- ecenter.is. - pbb Sabra kennir dans LISTDANS Sabra Johnson dansari á sigurstundu. Djassskotnum diskum fjölgar verulega á markaði þessa dagana í tengslum við Jazzhátíðina: Kristj- ana Stefánsdóttir sendir frá sér safn sönglaga sem hún kallar Better Day Blues – Blús betri daga. Dimma gefur út. Þar eru þrír ópusar eftir hana sjálfa en restin af lög- unum þrettán eru bandarískir blúsar sem hafa fylgt söngkonunni í þá tvo áratugi sem hún hefur starfað. Með henni spila Agnar Már Magnússon, Ómar Guðjónsson, Scott McLemore, Valdi- mar Kolbeinn Sigurjónsson, Gunnar Hrafnsson, Vignir Þór Stefánsson, Sig- urður Flosason og Ari Bragi Kjartans- son. Kristjana kemur fram á tónleikum á Jazzhátíð á Nasa á laugardag. Þetta er fimmta plata Kristjönu. Belgísk-íslenska bandið Mógil sendir frá sér sitt fyrsta safn, Ró, með tólf lögum frumsömdum. Heiða Árnadóttir syngur, Ananta Roosens leikur á víólu og syngur, Hilmar Jensson spilar á gítara, Jochem Badenhorst blæs klarinettur. Disk- urinn kemur út á forlaginu Radical Duke. Mógil spilar í Fríkirkjunni á Jazzhátíð á föstudag með gestaleikar- anum Theo Bleckman. Ómar Guðjóns-son sendi frá sér sólóplöt- una Framaf fyrir skömmu. Með honum léku þeir Þorgrímur Jónsson kontrabassaleikari og Matthias MD Hemstock, en tónlistin er öll eftir Ómar, níu lög þar sem gítarinn er í aðalhlutverki. Ómi sf. gefur út. Ómar og félagar verða að spila á Organ á föstudagskvöld. Haukur Grön-dal sló í disk fyrr í sumar sem helgaður er lögum sem Lester Young kom nálægt á sinni tíð. Þetta eru tíu lög eftir ýmsa, en Haukur blæs í tenórsaxófón og syngur, Ásgeir Ásgeirsson leikur á gítar, Þorgrímur Jónsson á bassa og Erik Quick á trommmur. Agnar Már er gestur. Rodent gefur útt. NÝJAR PLÖTUR ath. kl. 10 Sjötta ráðstefna Háskóla Íslands og Manitoba- háskóla hefst í dag í Aðalbyggingu Háskólans undir yfirskriftinni „Man, Culture and Nature in Canada and Iceland“ og fer hún fram á ensku. Fjöldi fyrirlesara úr ýmsum greinum fræða og vísinda talar á ráðstefnunni. Í tengslum við ráðstefnuna er sýning á kvikmyndinni My Winnipeg eftir Guy Maddin sem er á laugardag. Dagskrána má finna á slóðinni http://www.hi.is/files/skjol/ Program_manitoba.pdf FIMMTUDAGUR 28.ÁGÚST Tónastöðin kynnir dagskrána í dag og gítar í kaupbæti!!! N O R R Æ N A H Ú S I Ð V O N A R S A L U R IÐ N Ó F R ÍK IR K JA N H Á S K Ó L A B ÍÓ N A S A F R ÍK IR K JA N N O R R Æ N A H Ú S IÐ G L A U M B A R N O R R Æ N A H Ú S IÐ V O N A R S A L U R IN G Ó L F S N A U S T H Á S K Ó L A B ÍÓ REYKJAVÍK w w w .m id i.is G L A U M B A R • KL 12.15 Ingólfsnaust – Hádegisjazz í Ingólfsnausti Frítt • KL 15 Iðnó -Svingtónleikarestrasjón – Sextett Hauks Gröndal með Ragga Bjarna Kr2200 • KL 19 Háskólabíó - Heimildarmynd um tónleikaferð íslenskrar stórsveitar Kr500 Frumsýning á Heimildarmynd um Tónleikaferð Stórsveitar Samúels Jóns um landið. Frítt fyrir handhafa jazzpassa • KL 20 Fríkirkjan - Trúnó. Tómas R. Einarsson og Ragnheiður Gröndal Kr2200 Tómas R Einarsson hefur sent frá sér á annan tug hljómplatna á sínum ferli. Öðru hverju kemur frá honum sungið efni og nú er hann kominn á trúnaðarstigið með Ragnheiði Gröndal. Textar eru eftir orðlistafólk af ýmsum kynslóðum. • KL 21 Háskólabíó - Gítarhátíð Bjössa Thor. Philip Catherine, Kazumi Watanabe, Maggi Eiríks, Þórður Árnason Kr3000/2000 Gítarhátið Bjössa Thor er fastur liður í Jazzhátíð Reykjavíkur. Gítarleikarinn snjalli ferðast tónlistarmanna mest og kemst þannig í návígi við vopnabræður sína um víða veröld. Með gítarveislunni er ætlunin að koma á föstum grundvelli fyrir vinsælasta hljóðfæri tónlistarsögunnar. Gestir ársins eru Kazumi Watanabe frá Japan og jazzleikari Evrópu árið 2007 Philip Catherine frá Belgíu. Magnús Eiríksson og Þórður Árnason verða fulltrúar lands og þjóðar auk ryþmaparsins Jóhanns Hjörleifssonar trommuleikara og Jóns Rafnssonar bassaleikara. Einn heppinn tónleikagestur vinnur gæðagítar frá Tónastöðinni. • KL 22 Iðnó /uppi – Ameríska söngbókin-Stofuhljóðritun. Siggi Flosa, Lennart Ginman, Jón Páll Bjarnason Kr2000 • KL 23 Bítbox á Glaumbar. Samúel Jón Samúelsson Big Band Frítt Stórsveit Samma gerði allt vitlaust á síðustu Jazzhátíð ásamt Jimi Tenor og Antibalas. Síðan þá hefur sveitin farið í tónleikaferðir um Ísland og Evrópu. Leikin verður frumsamin funktónlist Samma af plötunum Fnykur og Legoland en sú fyrrnefnda var gefin út í Japan í júní. Í kvöld fagna Sammi og strákarnir frumsýningu á heimildarmynd um Íslandsferðina með sannkallaðri klúbbastemningu. PO RT h ön nu n
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.