Fréttablaðið - 28.08.2008, Side 32
Haraldur Briem, sóttvarnar-
læknir hjá Landlæknisembætt-
inu, segir fjölda tilfella af berkl-
um hér á landi nokkuð stöðugan á
bilinu frá fimm til fimmtán á ári
síðustu tíu ár. „Þessi sjúkdómur
er enn þá til á Íslandi en þeir sem
greinast eru oft gamalt fólk,
nýbúar og fólk sem er að koma að
utan eftir lengri dvöl.“
„Berklar eru ekki bráðsmitandi
þannig að venjulegir ferðamenn
eiga ekki á hættu að smitast á
ferðalögum sínum erlendis. Þeir
sem eru í hættu eru fólk sem er
lengi á þeim stöðum þar sem
berklar eru algengir,“ segir Har-
aldur.
„Við höfum ekki möguleika á
því að fylgjast með útlendingum
sem sækja hér um dvalar- og
atvinnuleyfi frá EES-löndum því
það er frjálst flæði manna á milli
þeirra,“ útskýrir Haraldur og
segir að heilsugæslan þurfi því að
vera vel á verði.
Haraldur segir það taka nokk-
urn tíma að uppræta berklana í
smituðum en fólk hætti að vera
smitandi mjög fljótt eftir að virk
meðferð hefjist. „Fljótlega eftir
meðferð hverfa bakteríurnar og
fólk hættir að vera smitandi.
Meðferðin tekur þó lengri tíma;
frá sex mánuðum upp í níu.“
„Svo er annað sem er svolítið
mikið mál varðandi berklana.
Víða um heim eru að koma upp
fjölónæmir berklar sem lyf vinna
ekki vel á. Þeir koma vegna þess
að sjúklingar eru í meðferð í of
stuttan tíma og þá geta vaxið
fram ónæmir stofnar. Þeir hafa
komist til Íslands og eitt tilfelli
hefur greinst hér,“ upplýsir Har-
aldur en hann segir að það hafi
verið í nóvember í fyrra í manni
sem hafði búið í Litháen og hafði
áður greinst með berkla þar í
landi.
„Fjölónæmir berklar eru í
sjálfu sér ekkert öðruvísi en
venjulegir berklar nema það að
meðferðarúrræðin eru takmark-
aðri. Fjölónæmið þýðir að þeir
eru ónæmir fyrir öllum hefð-
bundnum berklalyfjum,“ útskýr-
ir Haraldur og heldur áfram: „Þá
þarf að nota dýrari lyf og lyf sem
hafa meiri aukaverkanir í för
með sér til að lækna þá. Meðferð-
in er því mjög erfið fyrir sjúk-
linginn og dýr fyrir samfélagið.“
martaf@frettabladid.is
Berklarnir enn á Íslandi
Eflaust líta einhverjir svo á að berklar séu sjúkdómur sem tengist fortíðinni og að tekist hafi að útrýma
þeim á Íslandi fyrir tugum ára. Svo er þó ekki og jafnvel eru ný afbrigði að koma upp úti í heimi.
Haraldur Briem segir frá fimm og upp í fimmtán tilfelli berkla hafa komið upp á
Íslandi á ári síðustu tíu ár. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SÓLIN gefur líkamanum hluta af nauðsynlegum skammti
af D-vítamíni en það er nauðsynlegt fyrir bein líkamans.
Þegar birta fellur á húðina myndar hún D-vítamínið.
RÓLEGIR OG KRÖFTUGIR HÓPAR Í
HÁDEGINU OG EFTIRMIÐDAGA Í
NÝLEGRI OG BJARTRI SUNDLAUG
VIÐ LAUGARÁS
BAKLEIKFIMI Í VATNI
BETRI LÍÐAN Í HÁLSI HERÐUM OG BAKI
UNDIR LEIÐSÖGN SJÚKRAÞJÁLFARA
Útsölustaðir: Heilsuhúsið, Maður Lifandi, Yggdrasill, Fjarðakaup
Lífsins lind í Hagkaup, Hagkaup Smáralind, Lyfja, Lyfjaval, Krónan,
Blómaval, Nóatún Hafnarfirði og Heilsuhornið Akureyri.
Vegna einstakra gæða nýtur SOLARAY
sívaxandi virðingar og trausts um allan heim
Námskeið hefjast 1. & 2. sept.
Í Rope Yoga ertu minnt(ur) á að þú getur:
• dafnað og stækkað.
• fengið, gert og verið
gera, vera og eiga.
• Ef þú veist hvað þú vilt,
Í rope yoga ertu minnt(ur) á að þú ert:
• Fordæmi.
• Skapari örlaga þinna.
• Í þakklæti og velsæld
• Orka og sál, en ekki hugsanir þínar.
Þú leyfi r framgöngu og velgengni og enginn annar.
Ásamt almennum námskeiðum fyrir byrjendur sem og lengra komna.
Þá er í boði mömmutímar og tímar fyrir eldri borgara.
Og nú í fyrsta skipti bjóðum við upp á námskeið fyrir íþróttafólk sem vill ná lengra
þar sem við byggjum á humgyndafræði Rope Yoga ásamt kröftugum líkamsæfi ngum.
Einnig aðgangur að hitaklefum, lóðum, göngubretti & nuddstól. Hafnarfjarðarbær greiðir niður
fyrir eldri borgara og unglinga, yngri en 16 ára. MS félagið greiðir niður fyrir MS félaga
Skráning í síma 696-4419 eða á elin@elin.is
Bæjarhraun 2 • Hafnarfi rði • www.elin.is
T A I C H I
námskeið hefst 17. janúar
Æfingastöð SLF Háaleitisbraut
T A I CH I
Leiðbeinendur:
T A I C I
S. Hafdís Ólafsdóttir - Svanlaug Thorarensen
T A I C H I
Skráning: s.: 861 59 58 – hafdis@slf.is - svanlaugt@simnet.is
Umbo›s- og sölua›ili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Birkiaska
Umbo›s- og sölua›ili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Minnistöflur