Fréttablaðið - 28.08.2008, Blaðsíða 24
24 28. ágúst 2008 FIMMTUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 195
4.244 +0,38% Velta: 2.067 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 6,69 +0,00% ... Atorka 5,04
-1,75% ... Bakkavör 26,80 -0,56% ... Eimskipafélagið 14,45 +1,98% ...
Exista 7,69 -0,65% ... Glitnir 15,30 -0,33% ... Icelandair Group 19,85
+0,00% ... Kaupþing 713,00 +0,99% ... Landsbankinn 24,00 +0,63%
... Marel 86,20 +0,00% ... SPRON 3,50 -1,41% ... Straumur-Burðarás
9,37 -0,11% ... Össur 90,70 -0,33%
MESTA HÆKKUN
EIMSKIPAFÉLAGIÐ 1,98%
KAUPÞING 0,99%
LANDSBANKINN 0,63%
MESTA LÆKKUN
ATLANTIC PETROL. 6,05%
EIK BANKI 3,02%
FØROYA BANKI 1,97%
Í boði Kaupþings
Nú þegar silfurstrákarnir okkar í handboltalands-
liðinu eru komnir heim og hafa fengið fálka-
orðuna og höfðinglegar móttökur landsmanna
er ekki úr vegi að geta þeirra sem lögðu hönd
á plóginn til þess að svo frækileg frammistaða
mætti verða að veruleika. Einn slíkur aðili er
Kaupþing, sem kom ekki aðeins að landsliðinu
sem helsti styrktaraðili þess og handknattleiks-
sambandsins, heldur er
bankinn einnig helsti
vinnustaður aðstand-
enda liðsins og hefur
gert þeim kleift að
sinna þeim störfum
sínum samhliða
„hefðbundnari“
vinnu, sem
er auðvitað
til mikillar
fyrirmyndar.
Þrír landsliðsþjálfarar á launum
Samningur Guðmundar Þ. Guðmundssonar
landsliðsþjálfara við Handknattleikssambandið
náði fram yfir Ólympíuleikana. Óljóst er hvort
hann haldi áfram. Hann starfar sem verkefn-
isstjóri hjá Kaupþingi en hefur fengið leyfi frá
störfum til að sinna verkefnum fyrir landsliðið.
Í samtali við Vísi bendir Svali Björgvinsson,
starfsmannastjóri Kaupþings, á að Guðmundur
sé ekki eini þjálfarinn sem starfi hjá Kaupþingi.
„Júlíus Jónasson kvennalandsliðsþjálfari er
hérna og Gunnar Magnússon, aðstoðarmaður
landsliðsins, er hérna líka,“ segir hann og bendir
á að þeim, jafnt sem öðrum íþróttamönnum
sem starfi hjá bankanum, hafi verið sýndur
skilningur vegna fría. Þess má svo geta að
formaður landsliðsnefndar, handboltakemp-
an Kristján Arason, starfar einnig hjá
Kaupþingi – er þar framkvæmdastjóri
viðskiptabankaþjónustu.
Peningaskápurinn ...
Eftir skatta nemur hagnaður fjár-
festingarfélagsins Eyris Invest
298 milljónum króna á fyrri helm-
ingi ársins. A sama tíma í fyrra
nam hagnaðurinn 2,2 milljörðum
króna. Fyrir skatta tapar félagið
1,4 milljörðum króna á fyrri helm-
ingi ársins.
Árni Oddur Þórðarson, forstjóri
Eyris, segir að miðað við erfiðar
aðstæður á fjármálamörkuðum
séu forsvarsmenn félagsins sáttir
við að skila lítils háttar hagnaði á
fyrri hluta ársins. Hann segir
mest um vert að Eyrir hafi skilað
góðri ávöxtun í fortíð og hafa þol-
inmæði og styrk til að grípa þau
tækifæri sem kunni að myndast í
náinni framtíð.
„Frá stofnun Eyris Invest á
miðju ári 2000 hefur árleg hækk-
un á innra virði hlutafjár numið
39,8 prósentum að meðaltali til
samanburðar við 6,0 prósenta nei-
kvæða árlega meðalávöxtun
heimsvísitölu MSCI,“ segir í til-
kynningu.
Heildareignir Eyris í lok upp-
gjörstímans námu rúmum 58
milljörðum króna, en kjölfestu-
eignir eru Marel Food Systems,
Össur og iðnsamstæðan Stork í
Hollandi. Afkoma þessara kjöl-
festueigna er sögð hafa verið góð
fyrstu sex mánuði ársins og horf-
ur í rekstrinum góðar.
Eigið fé Eyris er 18,2 milljarðar
króna og eiginfjárhlutfall 31,3
prósent. Í tilkynningu kemur fram
að væri laust fé notað til endur-
greiðslu skulda myndi eiginfjár-
hlutfallið reiknast fjörutíu pró-
sent. - óká
Hagnaður Eyris 298 milljónir
Viðunandi árangur miðað við árferðið, segir Árni Oddur Þórðarson.
ERIK KAMAN OG ÁRNI ODDUR Hér sjást
Erik Kaman, fjármálastjóri Marels, og
Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Eyris
Invest. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓKÁ
„Í ljósi minni hagvaxtar og þreng-
inga á fjarmagnsmörkuðum tel ég
líklegast að draga muni úr verð-
bólgu það sem eftir er árs og jafn-
vel framan af því næsta.“ Þetta
sagði yfirmaður seðlabanka Atl-
anta, Dennis Lockhart, á miðviku-
dag. Ben Bernanke, seðlabanka-
stjóri Bandaríkjanna, hefur tekið í
sama streng, en hann sagði á föstu-
daginn að draga myndi úr verð-
bólguþrýstingi síðar á árinu.
Skiptar skoðanir eru innan
Seðlabanka Bandaríkjanna um
hvort hagkerfi Bandaríkjanna
stafi meiri hætta af verðbólgu eða
kreppu, og því hvort bankinn eigi
að hækka stýrivexti sína eða halda
þeim óbreyttum.
Richard Fisher, yfirmaður
Seðlabankans í Dallas, hefur varað
við því að stýrivextir seðlabank-
ans, sem nú eru 2 prósent, séu of
lágir. Fisher segir of snemmt að
draga ályktanir af lækkun olíu-
verðs. Fisher, sem á sæti í tólf
manna vaxtaráði seðlabankans,
hefur þrýst á um vaxtahækkun
svo koma megi í veg fyrir að verð-
bólga grafi um sig. - msh
BEN BERNANKE Seðlabankastjóri
Bandaríkjanna telur ásamt fleirum að
draga taki úr verðbólguþrýsingi.
NORDICPHOTOS/AFP
Verðbólga í rénum
Minni hagvöxtur og lausafjárskortur hafa áhrif.
Gengið hefur verið frá yfirtöku
Kaupþings á símafyrirtækinu
Trio. Það var áður í eigu Teligent,
sem tekið hefur verið til greiðslu-
stöðvunar. Samkvæmt heimildum
Markaðarins var Trio metið á 42
milljónir sænskra króna, en þar
sem skuld Teligent við Kaupþing
nam 67 milljónum er hún enn ekki
greidd að fullu.
Peter Borsos hjá Kaupþingi í
Svíþjóð sagði í viðtali við Markað-
inn að Trio hefði gengið best af
öllum einingum Teligent og að
þegar hefði orðið vart við áhuga
frá kaupendum á Trio. „Kaupþing
mun, þegar upp verður staðið,
ekki tapa neinu á viðskiptum
sínum við Teligent.“ - msh
Kaupþing lýkur
yfirtöku á Trio