Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.08.2008, Qupperneq 58

Fréttablaðið - 28.08.2008, Qupperneq 58
38 28. ágúst 2008 FIMMTUDAGUR HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Fimmtudagur 28. ágúst 2008 ➜ Myndlist Lesið í minni Ásdís Birgisdóttir sýnir þrykkt verk úr silki í Listmunahorni Árbæjarsafns. Sýningin er opin dag- lega og stendur til 31. ágúst. ➜ Tónleikar Einleiksfantasíur G.P Telemann Elfa Rún Kristinsdóttir fiðluleikari og Mel- korka Ólafsdóttir flautuleikari enda tónleikaferð sína um landið með tvennum tónleikum í Langholtskirkju kl. 18.00 og 20.30. ➜ Fyrirlestrar 10.00 Man, Culture and Nature in Canada and Iceland Samstarfs- ráðstefna Háskóla Íslands og Man- itobaháskóla. Ráðstefnan er öllum opin. Aðalbygging Háskóla Íslands. ➜ Kvikmyndir Reykjavík Shorts&Docs Heimildar- og stuttmyndahátíð í Austurbæ, Snorrabraut 37. 15.00 Óður til Íslands 17.30 To Die in Jerusalem 19.00 Monastery 21.00 USA vs Al-Arian 23.00 Empire of Evil ➜ Opnanir 17.00 START ART listamannahús Opnun á sex einkasýningum og einni samsýningu. Þau sem sýna eru Anna Eyjólfsdóttir, Magnús Pálsson, Magnea Ásmundsdóttir, Ásdís Spanó, Harpa Dögg Kjartansdóttir og Didda Hjartardóttir Leaman. ➜ Viðburður 18.30 Hannaður veruleiki Sænska fjöllistakonan Charlotte Engelkes flytur einleikinn Sweet. Hljómsveit- irnar Retro Stefson, Reykjavík! og FM Belfast flytja tónlist. Listahópurinn 128 hendur sýnir verk í anddyri hússins. Norræna húsið fagnar 40 ára afmæli og þessi viðburður er hluti af afmælisdagskránni. ➜ Ljósmyndasýningar SKOVBO Ljós- myndasýning Viggo Mortensen hefur verið framlengd til 7. september. Ljós- myndasafn Reykja- víkur, Grófarhús, Tryggvagata 15, 6. hæð. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is Það eru í grunninn til tvenns konar heimildarmyndir þessa dagana. Annars vegar er þær af gamla skólanum, sem miðla upplýsing- um og eru með yfirgripsmikið sjónarhorn á viðfangsefni sitt. Hins vegar eru þær sem sýna afmarkað tímabil í lífi fólks, oftast án mikilla útskýringa. Báðar gerð- ir hafa nokkuð til síns máls, en hvað hina seinni varðar getur stundum bilið á milli heimildar- myndar og raunveruleikasjón- varps virst heldur lítið. Þessar fjórar nýju íslensku heimildamyndir, sem sýndar voru saman á Reykjavik Shorts and Docs, bera báðar gerðir fram á borð. Sú fyrsta, Magapína, sýnir okkur eins þröngan sjónarhól og hægt er, nánar tiltekið innviði belju. Fátt gerist í myndinni annað en að dælt er upp úr maganum á beljunni Bröndu, sem hefur ánetj- ast því að éta plastpoka. Það er samt eitthvað við plastpokafíkn skepnu sem er sköpuð til að éta gras sem segir manni meira um ástand heimsins en mörg lengri og flóknari verk. Fyrir aðra er þó lík- legra að þessi skot af innviðum beljunnar framkalli magapínu, og mun myndin þó standa undir nafni. Metnaðarfyllsta, og líklega merkilegasta mynd dagsins, er sagan af Holger Cahill. Hér er um að ræða heimildarmynd af gamla skólanum, þar sem sagt er frá heilli ævi manneskju með tilheyr- andi viðtölum og ljósmyndum. Og hvílík ævi. Vestur-Íslendingurinn Sveinn Bjarnarson endurskapar sig í New York-borg sem Cahill. Strákurinn sem aldrei fannst hann eiga heima hvorki á Íslandi né í Íslendingabyggð verður mikill áhrifamaður í bandarísku listalífi. Hann verður forstöðumaður Museum of Modern Art og átti þátt í að koma Jackson Pollock á framfæri, borðaði í Hvíta húsinu og lenti á forsíðu Time. Fyrst og fremst er hann þó þekktur fyrir að hefja bandaríska list til vegs og virðingar á við evrópska, en það er undarlegt að hugsa til þess hversu stutt er síðan allt það sem var amerískt þótti annars flokks. Saga hans er áhugaverð og ágæt- lega sögð, sem er eins og heimild- armyndir eiga að vera. Hún hefði þó kannski mátt hljóta þjálla nafn. Cahill var Íslendingur sem braust til metorða í hinum stóra heimi. Ketill er hins vegar lista- maður sem varð eftir á Íslandi, en greinilega mjög hæfileikaríkur að mörgu leyti. Í Bandaríkjunum bíður Museum of Modern Art, á Íslandi býr listamaðurinn með tveimur köttum og fær á stundum að skemmta börnum með list sinni. Þrátt fyrir nokkrar skondnar svip- myndir segir myndin okkur þó ekki mikið um líf Ketils. Hér fer bilið á milli heimildarmyndar og fjölskyldumyndbands minnkandi. Þakkarlistinn er þó skemmtilega gerður, enda álíka langur og myndin sjálf. Sagan af Kjötborg er mitt á milli þess að vera gamaldags heimild- armynd og raunveruleikasjón- varp. Hér er sögð sagan af hinum hverfandi heimi kaupmannsins á horninu og er gott að hann skuli festur á filmu meðan tækifæri gefst. Meðal annars er sagt frá því að þegar búðin var opnuð var einn bíll í götunni, en nú nema þeir tugum. Því er augljóst hvers vegna fólk leitar lengra en út á horn þessa dagana. Bræðurnir sem reka búðina eru skemmtilegir og viðskiptavinir þeirra einnig. Afmælishátíð búðarinnar er um leið einhvers konar kveðjuhátíð fyrir veröld sem var. En því miður heldur myndin áfram aðeins of lengi eftir að hápunkti hennar er náð. Það er líka kaldhæðnislegt að hún sé styrkt af Baugur Group, sem hefur jú leyst kaupmanninn á horninu af hólmi. Valur Gunnarsson Hið fáránlega og hið guðdómlega KVIKMYNDIR Íslenskar stuttmyndir á Reykjavík Shorts and Docs Magapína Leikstjóri: Kári Schram. ★★★ Sagan um Svein Kristján Bjarnarson – öðru nafni Holger Cahill Leikstjóri: Hans Kristján Árnason. ★★★★ Ketill Leikstjórar: Tómas Lemarquis og Joseph Marzolla. ★★ Kjötborg Leikstjórar: Helga Rakel Rafns- dóttir og Hulda Rós Guðnadóttir. ★★★ TÓMAS LEMARQUIS Leikarinn góðkunni er annar leikstjóra myndar um Ketil Larsen. LJÓSMYND/PIOTR WOLF BRÆÐURNIR Í KJÖTBORG Kristján og Gunnar Jónassynir, kaupmenn í versluninni Kjötborg á Ásvallagötu, eru viðfangsefni í stuttmyndinni Kjötborg sem sýnd er á Shorts and Docs. Uppboðshaldarar landsins eru nú að undirbúa fyrstu uppboð vetrar- ins. Gallerí Fold hefur auglýst eftir verkum og Gallerí Borg held- ur sitt fyrsta uppboð á þessu hausti á Hilton-Nordica-hótelinu hinn 31. ágúst og hefst það kl. 20.30. Að sögn Péturs Þórs Gunnars- sonar hjá Gallerí Borg verða 85 verk boðin upp, flest eftir gömlu meistarana: fjögur málverk eftir Kjarval, auk nokkurra teikninga, og myndir eftir Þorvald Skúlason, Gunnlaug Blöndal, Ásgrím Jóns- son, Gunnlaug Scheving, Svavar Guðnason, Brynjólf Þórðarson og Karl Kvaran. Þá eru á uppboðinu tvö verk eftir Jón Engilberts, þar af annað gríðarstórt, 130 x 170 cm, „Sumar- nótt“, sem nýlega kom í leitirnar úti í Danmörku. Þá eru fjögur mál- verk eftir Kristján Davíðsson og tveir tréskúlptúrar eftir Sigurjón Ólafsson. Af yngri málurum má nefna verk eftir Hafstein Austmann, Karólínu Lárusdóttur, Eirík Smith, Ólaf Elíasson, Jónas Viðar, Hring Jóhannesson, Gunnar Örn og Óla G. Jóhannesson. Mestum tíðindum sætir þó verk eftir Sölva Helgason (1820-1895) en teikningar hans eru mikið fágæti þótt þær leynist víða í einkaeign. Pétur segir verkið „perlu“. „Þetta er ægifögur blóma- fuglamynd sem er ársett 1858. Hún er hundrað og fimmtíu ára gömul, máluð sama ár og Sölvi kom aftur til Íslands eftir fjög- urra ára fangavist í Danmörku. Myndin verður boðin upp ásamt klippimynd eftir Sölva. En þessar tvær myndir hafa alltaf hangið saman og koma úr sama búinu. Erfitt er að verðleggja verk Sölva, þar sem þau eru nánast aldrei á markaði. Áætlað verð þessara verka Sölva er um tvær milljónir,“ segir Pétur. Sýning uppboðsverka verður í Gallerí Borg, Skipholti 35, alla daga fram að uppboði frá kl. 13 til 17 en það hefst á Nordica sunnu- dagskvöldið 31. kl. 20.30. - pbb Verk Sölva á uppboði MYNDLIST Teikning eftir Sölva Helgason frá 1858. Hluti. MYND: GALLERÍ BORG. Gríman: Áhorfendasýning ársinsSýnt í Borgarleikhúsinu í samstarfi við: Miðasala er í síma 568 8000 og á borgarleikhus.is Miðarnir á Flóna rjúka út Tryggðu þér miða áður en allt selst upp! Fös. 05/09 kl 20.00 UPPSELT Lau. 06/09 kl 19.00 UPPSELT Sun. 07/09 kl 20.00 UPPSELT Þri. 09/09 kl 20.00 UPPSELT Mið. 10/09 kl 20.00 UPPSELT Fös. 12/09 kl 19.00 UPPSELT Lau. 13/09 kl 19.00 UPPSELT Sun. 14/09 kl 20.00 ÖRFÁ SÆTI Fim. 18/09 kl 20.00 UPPSELT Fös. 19/09 kl 19.00 UPPSELT Lau. 20/09 kl 19.00 UPPSELT Lau. 20/09 kl 22.30 ÖRFÁ SÆTI Fim. 25/09 kl 20.00 UPPSELT Fös. 26/09 kl 19.00 UPPSELT Lau. 27/09 kl 19.00 UPPSELT Fim. 02/10 kl 20.00 UPPSELT Fös. 03/10 kl 19.00 UPPSELT
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.