Réttur - 01.06.1915, Side 23
Þessir flokkar hafa um all-langt skeið, eða allan síðari
hluta 1Q. aidarinnar, reynt að standa á verði gegn hernaðar
og vígbúnaðarstefnunni, allskonar stjórnarfarslegu ofríki,
en þó einkum gegn atvinnulegri eða efnalegri kúgun og
útilokun: auðvaldsþrælkuninni. Peir hafa verið vorboðar
mildari og mannúðlegri lífsskoðunar, sannari og réttlátari
siðmenningar. Og þó að margt af kenningum þeirra og
umbótatillögum kunni að reynast óframkvæmanlegt, eða
ekki leiða til þess árangurs, sem þeir vænta og ætlast til,
þá hafa þeir þó fundið og bent á svo mörg mikilvæg og
ódauðleg sannindi, að vér getum verið þess vissir, að eng-
in ofbeldisverk fá kæft þau, eða látið þau fyrnast og gleym-
ast héðanaf.
Að vísu má svo að orði kveða, að flestar þær hugsjónir,
sem kallaðar hafa verið undirstaða siðmenningarinnar, og
menningarþjóðirnar segjast hafa lifað á sínu andlega lífi,
stuðst við í lífi og dauða, séu horfnar í það ragnarökkur,
sem nú grúfir yfir Evrópu. Hinn algóða guð og föður
allra manna og allra þjóða, hafa nú Þjóðverjar gert að sínu
sérstaka verndargoði, sínum sérstaka herguði; í Rússiandi
er hann verndargoð Rússa, og Frakkar og Englar ætlast til,
að hann haldi verndarhendi yfir sér. Hinum miskunsama
alföður er því afneitað og í hans stað sett eins mörg vernd-
argoð eða herguðir og hernaðarríkin eru mörg. Og kirkjan,
vörður og boðandi kærleikskenningarinnar, bróðernis allra
manna, viðurkennir þessi goð, gengur í þjónustu þeirra og
ákallar þau í nafni og umboði hernaðarríkjanna. Og föður-
landsástin, skyldan við föðurlandið, hún er nú sú að drepa
svo mikið sem mögulegt er af meðbræðrum sínum, brenna
og brjóta kirkjur, eyða ökrum og ræna og rupla saklausa
menn. Alt sem menn hafa kallað helgast og háleitast er
horfið í þessa heljar-hríð, og allar brýr að baki brotna.
Ósjálfrátt hlýtur sú spurning að vaka fyrir manni, hvort
þessar dýrustu og hjartfólgnustu hugsjónir mannanna og
þrár þeirra eigi nokkurntíma afturkvæmt í meðvitund þeirra,
hvort lífsgildi þeirra sé eigi að fullu niðurbrotið, að minsta
kosti í þeirri mynd, sem þær hingað til hafa haft. — En