Réttur - 01.06.1915, Page 31
- 37 -
þessir hlutir ekkert giidi. Og það er skipulagsatciði í mann-
félaginu nú sem stendur, að sum náttúrugæði hafa sölu-
gildi. Fyrir fáeinum þúsundum ára var land jafn sameigin-
legt öllum, sem nota vildu, eins og andrúmsloftið er enn,
og sjórinn utan landhelgis. Og sölugildi eða markaðsverð
náttúrugæða fer eftir því, hvað vinnan getur gerf úr þeim
mikið af gagnlegum hlutum.
Til að skýra nokkuð betur hvernig vinnan skapar verðið,
tek eg eitt einfalt dæmi: í búð nokkurri í Reykjavík fást
útskornir smástokkar, sem kosta 13 krónur. Upprunalega eru
þeir búnir til í Svisslandi, að miklu leyti með vélavinnu,
og kosta tvær krónur komnir til Rvíkur. Þar kaupir tré-
skeri stokkana og sker þá út haglega. Hann er tvo daga
með hvern grip og selur þá síðan á 12 krónur. Seljandi
fær þá eina krónu fyrir sitt ómak, en tréskerinn fimm krón-
< ur á dag fyrir vinnuna og er það fremur lítið, þegar litið
er á nauðsynlegan undirbúning hans til að geta gert verkið.
Hver og einn sem eitthvað hefir unnið að þessum litla
hlut fær að lokum eitthvert brot af árstekjum sínum að
launum. Og sé vinnan, þó ekki sé nema einn liður í sam-
vinnunni, t. d. kaup tréskerans, lækkað svo að hann geti
ekki lifað af því, þá hverfur hann úr sögunni eða tekur að
stunda aðra atvinnu. Varan hættir þá að koma á markað-
inn þar til vinnan er betur borguð, svo að aðrir menn
geta staðið við að ganga í spor þeirra, sem frá hurfu. Af
þessu dæmi sést, hve iítið sönnunargildi er í orðum hr. J.
O. um klaufann, sem ónýtti hlutinn og meira að segja
efnið líka. Verðið á stokknum er ekki kaup klaufans, sem
að tréskurði kann að vinna, og ekki heldur afburðamanns-
ins, serh vinnur á við tvo. Verðið miðast við meðaltal allra
þeirra sem verkið vinna. Petta er viðurkent í öllu kaup-
gjaldi. Menn við sömu vinnu: Kaupamenn og kaupakonur
við slátt, vegavinnumenn, verkstjórar, kennarar, hásetar,
prestar, læknar o. s. frv. vinna fyrir ákveðið meðalmanns-
kaup. Engir tveir vinna nákvæmlega jafnvel, en um það er
ekki hirt. Kaupið er miðað við verk meðalmannsins, við
málsverkið. Og þetta kaup er markaðsverð mannsins, verð