Réttur


Réttur - 01.07.1917, Síða 4

Réttur - 01.07.1917, Síða 4
6 Réttur háar. Auk þess er svo uppgjöfin öl! og vonleysið, trú- .leysið á landið og framtíðargengið og svo hugsýkin öll yfir bölum skepnanna og dauðastríði. Að þessu leyti er landbúnaðarsaga vor raunasaga. Og þetta hefir átt meiri þátt en margur hyggur, í því að drepa úr þjóð vorri kjarkinn og trúna á giftu sjálfrar sín, fyrir utan alt hið afskaplega beina fjármunatjón. það er sjálfsagt ekki of máelt, að þjóð vor hefði verið auðug og fullvalda þjóð, ef henni hefði tekist að afstýra að fullu þessum háska. En það hefir ekki lánast alt fram á þennan dag. Margir hafa þó fundið sárt til þessa ástands, bæði fyrr og síðar, og reynt að finna ráð til bóta, ekki .vantar það. En ennþá hefir þó ekkért ráð verið upp tekið, sem að fullu haldi kemur. — Fáum dylst, að ísland er gott búfjárræktariand. Engum manni með viti mundi því til hugar koma að leggja það til, að búfjárrækt legðist niður og annað væri upp tekið í hennar stað. Og nú á seinni tímum hafa margir leitað svars við þessari spurningu í fullri alvöru: Polir búfjár- ræktin á íslandi ekki að leggja á sig þann kostnað — eins og aðrar atvinnugreinir, — að tryggja búféð gegn arðmissi og dauða? Allir hljóta að svara þessu játandi. Annars væri búfjár- ræktin hæpin atvinnugrein. Og úr því að menn hafa haft ráð á því að lifa með áföllin öll saman og tryggingar- leysið, alt fjármunatjónið og skapraunirnar, þá hljóta menn að hafa ráð á því að lifa án þessa, þó að það kost- aði töluvert. En hitt er annað mál, að meira þarf heldur en orðin tóm til að finna hagfelda skipun búfjártrygginga gegn fóðurskorti og afleiðingum hans, — skipun, sem örugg reyndist og næði tilgangi sínum. Reynslan sýnir, að þetta hefir gengið erfiðlega. F*ví margar hafa verið ráðagerðir og tillögur um þetta vandamál og ýmsar tilraunir gerð- ar. En alt hefir setið við sama. Sjálfsagt hefir ýmsum dottið í hug að viðhafa svipaða

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.