Réttur - 01.07.1917, Síða 9
11
Trygging búfjár
aðu þér annað: Tíl þín kemur maður, sem þú treystir,
og segir: Ég skal framvegis varpa af herðum þér öllum
ugg °g ótta út af skepnunum þínum að því er fóðrið
snertir, hvernig sem viðrar. Hvað viltu árlega borga
mér fyrir það ?
Ég geri ekki ráð fyrir, að slíkur maður komi til þín.
Emég geri ráð fyrir öðru: Hugsandi maðurinn í sjálfum
þér kemur til þín og spyr á þessa leið. Og svarið og
framkvæmdin lætur tæplega lengi á sér standa. Og mundi
þetta ekki betur en flest annað efla sjálfsmet þín og
persónugildi?
* *
*
Ég'fyrir mitt leyti er sannfærður um, að þetta er leið-
in. Lærist mönnum að fara hana, er greitt úr þessu ægi-
lega vandamáli. Og þá losnar þjóð vor loksins við þyngsta
skattinn, sem lífið, harðstjórinn mikli, hefir lagt henni á
herðar, skattinn, sem fólginn hefir verið í arðmissi búfjár
og hordauða, — blóðskatt þessa lands.
fíen, fíj.