Réttur - 01.07.1917, Blaðsíða 14
ló
Réttiir.
ræðissjúkdóma. Höfundurinn setur fróðlega skýrslu um
útbreiðslu þessara sjúkdóma, sem sýnir, hvé ískyggilega
þeir hafa aukizt á seinni árum. Telur hann mikla hættu
*
á, að þeir breiðist til sveitanna, þrátt fyrir tilraunir lækna
að stemrna stigu fyrir þeim.
Pá sýnir höf., hvernig íbúðir fólk á yfirleitt við að búa
í kaupstöðunum. Slæm eru húsakynni víða í sveitum,
en iitlu betri eru þau í kauptúnunum og stundum langt-
um lakari. Helmingur allra íbúða í Reykjavík og nokkrum
öðrum kauptúnum, sem skýrslur eru um, er aðeins eitt
herbergi og eldhús, eða minna, fyrir hverja fjölskyldu.
Retta er óhæfilega lítið og engu betra en í mörgum er-
lendum stórbæjum. Er illt til þess að vita, því reynslan
hefur sýnt, að af þessu stafar margháttuð óhollusta og
úrkynjun fólks. Verður því að hafa gætur á þessu og
berjast með skynsamlegu viti móti vandræðunum.
Meginmál bókarinnar fjallar nú um hin ýmsu ráð, sem
tiltækileg eru, til að gjöra bæi skipulega, laglega útlits,
hentuga fyrir samgöngur og atvinnuvegi, en um leið
holla til íbúðar og vænlega til frambúðar; kemur þar
margt til greina: bæjarstæðið, jarðeign bæjarins, verð-
hækkun á landi og afleiðingar hennar, greining bæjarhlut-
anna i íbúðarsvæði, iðnaðarsvæði, verzlunarsvæði o. s.
frv. — Stórhýsi, smáhýsi, margbýlishús, einbýlishús, vell-
ir, torg, leikvellir barna o. m. fl. — Um þessi efni fer
höf. mörgum orðum og er þar mikinn fróðleik að finna,
sem bæjarstjórnir, bygginganefndir og heilbrigðisnefndir
þurfa að kynna sér. Hvað eptir annað kemur höf. að því,
hve þéttbýli sé varasamt og leiðir rhörg rök að því, hve
manndauði og einkurn dauói ungbarna eykst ferlega í
þeim hlutum stórbæjanna, þar sem þéttbýlið er mest.
Þéttbýlið og heilsuháskinn, sem því fylgir, er svo æfa-
gamalt vandræðaefni í öllum stórborgum erlendis, að
von er þó vöknuð sé hreyfing í menningarlönduin til að
reyna að kippa þvi í lag. Rar hefur Mammon löngum ver-
ið Prándur í Götu. Lóðirnar hækka í verði fram úr öllu