Réttur - 01.07.1917, Page 27
Nýir straiimcir • 2Q
marki. Peir vilja láta bæjarfélögin reka ýmsa arðsama at-
vinnu — í Reykjavík togaraveiðar og jafnvel kúabíí og
lyfsölu —; og láta þau byggja húsin. Umfram alt vilja
þeir að bærinn eigi sjálfur lóð sína, eða að minsta kosti
arðinn af verðhækkun hennar. Peir berjast ötullega fyrir
hækkuðum launum og bættum'kjörum verkamanna — og
lenda þar í rimmu við kaupmenn og togaraeigendur.
Öll stjórntnál, þau sem flokkum hafa skift, og nokk-
urs hafa þótt ’verð, hafa aðeins snert stjórnarfyrirkomu-
lagið hið ytra, stjórnarskipunarlögin og sambandið við
Dani. Pjóðfélagsmálin sjálf — atvinnumálin og menta-
málin, hið andlega og efnalega sjálfstæði . þjóðarinnar,
hefir aldrei þótt þess vert, að um það væri kosið til Al-
þingis, eða að skoðanir í þeim málum væru látnar skifta
flokkum. Og eftir skilgreining þeirri, sem gera má á er-
lendum stjórnmálaflokkum, eru allir gömlu flokkarnir í-
haldsflokkar.
En ýmislegt bendir á að hér séu breytingar í aðsigi.
Utanríkismálin og stjórnarskipunarmálin eru nú komin í
svo viðunandi horf, að eigi virðist liggja á bráðum breyt-
ingum, ef ófriðurinn gerir engar breytingar á sambandi
landsins við önntlr lönd.
Á næstu árum hljóta atvinnumálin og innanlandsmálin
yfir höfuð að skifta flokkum. Og þá hljóta gömlu flokk-
arnir að missa tilverurétt sinn. Reir voru myndaðir af
mismunandi skoðunum í málum, sem nú eru útkljáð. Ó-
líklegt er að allir verði sammála í innanlandsmálum, sem
voru það* í sambandsþrefinu. Oömlu flokkarnir geta’orð-
ið að valdaklíkum, flokkum um menn en eigi málefni.
Og þá verður það steýimleysi að hanga i gömlu jlokk-
unum sinum.
VII.
Þótt gömlu flokkarnir falli, heldur stjórnmálabaráttan
áfram. En hún ætti að verða heilbrigðari og sannari. Hún