Réttur


Réttur - 01.07.1917, Page 34

Réttur - 01.07.1917, Page 34
36 Réttur ég kom að jörðinni, gróðurlitlar og gráar af sinu, nema smáblettir, sem menn höfðu reynt að höggva úr, hér og þar, enda fékk ég fyrstu árin úr þeim að eins 50 hesta af lélegu heyi, og varð ég því að sækja heyskap Iangt upp í heiði. Þó það væri bót í máli, reyndist það frem- ur érfitt fátækum frumbýlingi. Nú eru engjamýrarnar af- girtar og fráskildar þannig bithaga. Ég hefi með löng- um og dýrum skurðum náð vatni úr ánni upp á mýr- arnar og tekizt að halda þessu vatni á þeim með mörg- um görðum og öflugum. Graslagið í mýrunum ger- breyttist á fám árum við þetta. Nú eru þær afbragðs engi og gefa af sér í meðalári 300 hesta af ágætis heyi. Pegar ég tók við jörðinni, fóðraði túnið 1 kú og laklega 1 hest og engjarnar heima um 30 kindur, og var vond- ur ásetningur. Nú seinustu árin hefi ég haft á fóðrum 5 kýr, 5 hesta og um 200 fjár, og á þó í fyrningum von- andi um 100 hesta. Allan kostnað við þessar jarðabætur hefi ég sjálfur annast og borgað og ekki fengið nokk- urn eyri frá jarðeiganda. Fyrstu árin var landskuldin 4 sauðir veturgamlir og leigur eftir hálft annað kúgildi. En ég fékk ekki jörðina byggða nema til fjögurra ára í einu, og í hvert sinn er þau vóru útrunnin, reyndi eig- andi að hækka landskuldina. Pegar hann sá, hve þolan- lega mér farnaðist og að jörðin batnaði í mínum hönd- um, notaði hann tækifærið í hvert sinn til þessa, annars hótaði hann því að hrekja mig burtu. En ég varð alltaf að siaka til, því með því bjóst ég við að ég fengi þó lengi nokkuð að njóta handaverka minna og árangurs af kostnaði mínum; mér fannst það svo sanngjarnt og sjálfsagt, að mér virtist eiginlega óhugsandi, að hann Davíð á Sólheimum gæti nokkurntíma fengið af sér að ýta mér burtu, þar sem hann þurfti ekki sjálfur á jörð- inni að halda, og í því trausti baslaði ég í öllum þess- um framkvæmdum. En með þessu móti tókst honum smám saman að færa landskuldina upp um helming, svo nú er hún orðin 8 sauðir, og er vitanlega ekki of há,

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.