Réttur - 01.07.1917, Page 36
38
Réttur
Ari: Nei, að óreyndu gat ég það ekki. Því ég hefi
ekki ennþá sagt þér frá húsabótum þeim, sem ég gerði
á jörðinni. Eins og annað vóru húsin í aumasta ástandi,
bæði bærinn og úthýsi, hálf-fallin og fúin. Penirjgshús
byggði ég öll áð nýju og jók þau mikið, eins og þú
getur nærri: Bænum gerði ég sömu skil. Fyrst byggði
ég baðstofu og búr, svo eldhús, og að lokum reif ég
allan frambæinn og byggði þar vandað langhús, helm-
ingi hærra en þau hús, er fyrir vóru. Og til alls þessa
fékk ég ekki nokkurn eyri hjá landsdrottni. Mér þykir
því heldur lítið að fá einar 290 krónur fyrir allar þessar
byggingar, sem bersýnilega eru mörg þúsund krónum
meira virði en skriflin, sem fyrir vóru.
Bjarni: Og Davíð hefir setið fastur við sinn keip.
Ari: Já, hann var ósveigjanlegur. — »En finnst þér
nú ekki þetta hart?« sagði ég. — »Nei,« svaraði hann,
»þetta er algeng venja, og þetta verða aðrir að hafa.«
— »Á eg þá að fá 290 krónur fyrir allar húsabyggingar
og jarðabætur, þegar engjagirðingin er undan skilin?«
spurði ég hann til frekari áréttingar. — »Ef úttektar-
menn líta svo á, að húsabæturnar séu meira virði en á-
laginu nemur, þá áttu það eftir í húsum jarðarinnar.
Mér kemur það ekkert við. Ég fer ekki að kaupa það af
þér. Pú getur selt það viðtakanda.« — »En það er ekki
víst, að hann vilji kaupa.« — »Jæja, þið um það. Ég
get ekki að því gert.« — »En þetta nemur stórfé, mað-
ur, sem húsin eru meira virði nú, en þegar ég kom að
jörðinni, Ég gæti sýnt þér reikning yfir, hvað þau hafa
kostað.« — íPað kemur ekkert málinu við. Við úttekt
verða 'húsin ekki metin til verðs eftir þeim reikningi. Pað
er timbrið í þéim einungis, sem þar kemur til greina.
Vinna og veggjaefni verður að engu metið.« — Og við
svo búið slitum við talinu.
Bjarni: Petta er gamla sagan af leiguliðum einstakra
jarðeigenda hér á landi. Og ég er hræddur um, * að ég
geti, því miður, fátt' lagt þér !i! ráða, sem að haldi komi,