Réttur - 01.07.1917, Page 37
Ábúð og leiguliðaréttur 39
Ari: Ég get svo sem búizt við því. En mér datt svona
í hug, að þú kynnir að þekkja einhvern lagastaf, sem
stutt gæti rétt minn í þessu efni. Því ég get ekki varizt
þeirri skoðun, að réttur minn sé hér fyrir borð borinn.
Bjarni: Já, meir en svo, — það er ekkert vafamál. —
En hinu er álíka fljótsvarað. Ábúðatiög okkar eru þann-
ig úr garði gerð, að þar kemur fram furðulegt misrétti
og réttleysi hreint og beint gagnvart leiguliða, ef. sýnd
er óhlífni. — Ég get ekki stillt mig um að taka þetta
dæmi' um þig og leggja það fyrir á dálítið Ijósari hátt. .
Jörðin, sem þú hefir búið á, er eign Davíðs á Sól-
heimum, og þessa eign hans hefir þú haft á leigu. Eign-
in var arðstofn, og arðurinn var: árleg landskuld af
henni. Landskuldin var leiga af höfuðstól. Jörðin, sem
eigandinn seldi þér á leigu, var höfuðstóllinn. F*ú hefir
goldið skilvíslega leiguna af höfuðstólnum á hverju ári.
Af því leiðir, að höfuðstóllinn hefir ekki sem leigufé get-
að vaxið. F’ví af hverju átti hann að geta vaxið, þegar
vextirnir (leigan) vóru aldrei lagðir við hann. Reyndar
heldur eigandi því sjálfsagt fram, að höfuðstóll þessi hafi
í sjálfu sér vaxið í verði á 20 árum, — með öðrum
orðum, að fyrir ýmsa rás viðburðanna sé nú meira fé
boðið fyrir þennan höfuðstól eins og hann var, heldur
en þá var gert. Látum nú vera, að eitthvað geti stund-
um verið hæft í þessu. En hér getur það naumast kom-
ið til greina. í fyrsta lagi af því, að jörðin var í aumasta
ástandi, þegar þú tókst við henni, og væri hún í sama
ástandinu nú, mundu fæstir bjóða mikið fé í hana, þó
nú sé það gert, af því að hún hefir gerbreyzt. Og í öðru
lagi af því, að með síhækkandi afgjaldi er fyllilega tekið
tillit til þessarar hugsanlegu verðgildishækkunar jarðar-
innar (höfuðstólsins), og þess vegna útilokuð öll deila
um það atriði. Pessum höfuðstól, sem þú veittir við-
töku, átt þú nú að skila eiganda samkvæmt löglegum
fyrirvara. Engu öðru ber þér að skila samkvæmt náttúr-
Jegvim viðskiftavenjum. F’að, sem eftir réttu og afdráttar-