Réttur


Réttur - 01.07.1917, Síða 52

Réttur - 01.07.1917, Síða 52
54 Réítur verðið, eins og að sínu leyti leiguliði, sem eignaðist jörð, gæti eigi orðið krafinn um leigu af þeim mannvirkjum og umbótum, sem hann hefði gert á henni. Sú krafa, sem hér er bent á, að þjóðfélagið eigi til landeigendanna, hefir á íslenzku verið nefnd landssA-o//- ur, en eftir eðli sínu væri hún réttara nefnd landleiga, því hér ræðir um leigu af höfuðstól, sem þjóðfélagið, sem slíkt, hefir skapað. Landsskattur, i ýmsum myndum, hefir tíðkast með mörgum þjóðum frá því sögur hófust, en næstum und- antekningalaust i sambandi við skatta á aðrar éignir, t. d. það sem einu nafni er nefnt fasteignir. Með tilliti til þess, að slíkir skattar hafa verið lagðir á landverðið öski/t, þ. e. án tillits til, hvort verðið er þjóðfélaginu eða hlutað- eigandi einstakling að þakka, er auðsætt að þeir eiga í eðli sínu lítið skylt við þá landleigu, sem hér er um að ræða, því fremur sem þeirra var krafist af ábúanda eða notanda landsins, sem eins oft var leigjandi sem eig- andi að því, og hlaut því skatturinn að verða viðbót við landsskuld hans eða leigu. Sú stefna er aftur tiltölulega ný, að krefjast skatts eða leigu af hinu félagsmyndaða landverði einu, eins og að framan er gerð grein fyrir, og er hún kend við Banda- ríkjamanninn Henry George. í ættlandi hans er það deg- inum Ijósara, hversu öll kjör og framfaraskilyrði alþýð- unnar, og þá sérstaklega verkmannalýðsins, eru í hönd- um landeigendanna. Pó duldist þetta iengi fyrir mönn- um. Hitt sáu menn, að þrátt fyrir allar verklegar fram- farir fór efnahagur smælingjanna versnandi, og þó fram- leiðsla landsins ykist dagvöxtum, fjölgaði sífelt öreiga- lýðnum með þjóðinni. Þetta var þó ekki einkennilegt fyrir Bandaríkjamenn eina; þar urðu aðeins öfgarnar mestar í því sem öðru, og á hinn bóginn var hin sögu- lega rás þessara viðburða miklu styttri og bersýnilegri þar en annarsstaðar, því það mátli heita svo að segja í

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.