Réttur - 01.07.1917, Page 56
58
Re’ttur
af því á markaðinti, þó gegn alihárri leigu eða skatt-
gjaldi væri, opnaðist fleirum vegur til að fá land til af-
nota (bygginga, ræktunar o. s. frv.) og gæti það, mörgu
öðru fremur, orðið til þess að standa á móti útstreymi
úr landbúnaðarhéruðum til kaupstaða og sjávarþorpa.
Nú var það engan veginn hugsjón Georges, að allir
færi að bauka við að rækta sinn landskikann hver, enda
þótt hann bygði stefnu sína og starf á hinu náttúrlega
jafnrétti allra til jarðarinnar, eins og hverra annara al-
mennra náttúrugæða, t. d. lofts og ljóss, sjávarins o. s.
frv. Nei, George var einmitt talsmaður verkaskiftingar-
innar, sem svo miklu hefir áorkað í Ameríku, en hann
áleit þó ávöxt sinnar fyrirhuguðu skattabreytingar meira
liggja í öðru en aukinni framleiðslu og það var í skift-
ingu þess arðs, sem framleiðslan gefur. Eins og á var
drepið, var það hið sívaxandi djúp milli auðs og ör-
birgðar, sem í fyrstu hratt George á stað til að rita fyr-
nefnda bók og ráðið til þess að spórna við þeim mis-
mun, án þess að hefta framtak og frjálsræði, sér hann í
því, að leggja slíkan skatt á hin sjálfteknu einkaréttindi,
sem jarðeignum fylgja, því hjá handhöfum þeirra »botn-
falli«, er til lengdar láti, öll hlutdeild öreigalýðsins í hinni
auknu framteiðslu, að því frádregnu, sem þeir geti minst
af komizt með að halda Iffinu við. Væri nú sköttunum
létt af neyzlu þeirra og fleiri vegir opnir til sjálfstæðra
atvinnuvega, þá stæði þeir mun betur að vígi í lífsbar-
áttunni.
í útlöndum hafa víða verið gerðar ábyggilegar rann-
sóknir á því, að svona skattgjald gæfi nægar tekjur til
opinberra þarfa ríkis og héraða, án þess að há leiga gæti
talizt. — í stöku bæjum í Ameríku og þó einkum í
Ástralíu eru slíkir skattar eingöngu og þó ekki nema í
kringum 2% af landverðinu. Pykja þeir hafa haft afar-
mikil áhrif á viðskiftalíf og efnahag, í þá átt, sem von-
ast var eftir, og þó njóta áhrif þeirra sín alls ekki með-
an útbreiðsla þeirra er ekki meiri. Eftirtektavert er það,