Réttur - 01.01.1957, Blaðsíða 129
RÉTTUR
129
lítum á málið frá öllum hliðum, þá er einungis hægt að segja, ef
einhverjir fyrir hvern mun vilja nota orðið ,,stalínisti“, að „stal-
ínismi“ sé fyrst og fremst kommúnismi, að það sé stefna Marx
og Leníns. Enda þótt stundum kunni að vera nauðsynlegt að
leggja áherzlu á þessar villur í því skyni að leiðrétta þær, skapa
rétt mat á þeim og fyrirbyggja rangan skilning, þá er einnig
nauðsynlegt að setja þessar villur í rétt samhengi. Það er skoð-
un vor, að séu villur Stalíns bornar saman við afrek hans, séu
þessar villur veigaminna atriðið.
Einungis með hlutlægri rannsókn getum vér öðlazt rétt sjónar-
mið á Stalín og öllum félögunum, sem gerðu svipaðar villur
undir áhrifum frá honum, og tekið rétta afstöðu til þessara villna.
Að því leyti sem um er að ræða villur gerðar af kommúnistum
í starfi þeirra, eru þær mál, sem inn á við veit í kommúnist-
ískum röðum, spurning um hvað sé rangt og hvað rétt, og ekki
spurning um það, hvort einhver sé með oss eða móti í stéttabar-
áttunni. Við eigum að koma fram við þessa félaga eins og félaga
og ekki eins og óvini. Jafnframt því sem vér gagnrýnum villur
þeirra, verðum vér að verja það, sem þeir hafa rétt gert og ekki
að virða að vettungi allt, sem þeirra er. Villur þeirra eiga sér
félagslegar og sögulegar rætur og sérstaklega þekkingarfræði-
legar rætur. Af þessu leiðir, að fyrst þessar villur voru gerðar,
hefði öðrum félögum einnig getað orðið þær á; og eftir að þess-
ar villur hafa verið uppgötvaðar og leiðréttar, ætti þess vegna
að fara með þær eins og alvarlegan lærdóm, sem mál, er nota
má til að auka skilning og árvekni allra kommúnista og fyrir-
byggja þannig, að slíkar villur endurtaki sig, og til eflingar komm-
únismanum. Ef hinsvegar er tekin algerlega neikvæð afstaða til
þeirra manna, er gerðu þessar villur, ef þeir eru kallaðir ýmsum
i'.lum nöfnum og tekin er fjandsamleg afstaða til þeirra, þá er fé-
lögum vorum ekki aðeins gert ókleift að leiða rétta lærdóma af
villunum; það að rugla saman tvenns konar andstæðum, ólíkum að
eðli, andstæðum hins rétta og ranga og andstæðum milli félaga
og óvina, hlýtur í reynd óhjákvæmilega að hjálpa óvinunum í
baráttu þeirra gegn röðum kommúnista og við að sundra vígjum
kommúnismans.
Tító og aðrir leiðtogar Bandalags kommúnista Júgóslavíu hafa
með síðustu ummælum sínum tekið afstöðu, sem að vorum dómi
samræmist ekki alhliða og hlutlægu mati, varðandi villur Stalins
og skyld mál. Það er skiljanlegt, að félagar vorir í Júgóslavíu
taki villum Stalíns sérstaklega fjandsamlega. Á liðnum árum,
er félagar vorir í Júgóslavíu störfuðu við erfið skilyrði, unnu
þeir gott starf til varnar sósíalismanum. í verksmiðjum og öðrum