Réttur - 01.11.1965, Page 1
RETTUR
TÍMARIT U M ÞJÓÐFÉLAGSMÁL
4. HEFTI . 48. ÁRG. . 1965
Ritstjóri: Einar Olgcirsson
Ritnefnd: Ásgeir Bl. Magnússon, Björn Jónsson, Eyjólfur R. Árnason,
Magnús Kjortansson, Páll Bergþórsson, Tryggvi Emilsson, Þórir Daníelsson
í þjóðar þágu - eða braskara
Það kemur brátt að því að þjóðin verður að gera reikn-
ingsskil — og velja um hvort haldið skuli um stjórnvöl lands
í þjóðar þágu eða stýra einvörðungu í hag helztu hröskurum
verzlunarauðvaldsins sem hingað til.
I hverju felast forréttindi þau, sem braskarastétt verzl-
unarauðvaldsins nýtur:
í fyrsta lagi: „frjáls“ álagning. Það þýðir valdið til að
auka verðhólguna, láta hana ganga lnatt, hraðar en dæmi
eru til annars staðar í Evrópu. Og það þýðir valdið til að
ræna almenning með vaxandi dýrtíð.
í öðru lagi: „frjáls“ fjárfesting. Það er valdið til þess að
fjárfesta að vild, meðan aðrir verða að hiðja um leyfi. Hinn
almenni horgari þarf raunverulega leyfi húsnæðismála-
stjórnar til íbúðarhyggingar sinnar, ef hann ætlar einhvern
tíma að fá lán — og aðeins auðkýfingar komast af án þess.
Ríkisvaldið sjálft takmarkar við þjóðina hyggingar skóla-
húsa — og skammtar svo naumt að sár skortur er á skólum,