Réttur - 01.11.1965, Side 51
RÉTTUR
259
vaxtalækkun og aðgerð'ir, sem hindrað gætu hið stórfellda brask,
sem nú viðgengst með nýtt húsnæði.
3. Tafarlausar aðgerðir vegna atvinnuleysis, sem ríkt hefur að und-
anförnu í einstökum landshlutum.
4. Breytingar á lögum um orlof, sem tryggi verkafólki fjögurra vikna
orlof og ennfremur breytingar á framkvæmdaákvæðum orlofslag-
anna, sem tryggi raunverulega framkvæmd þeirra.
5. Hverjar þær aðgerðir aðrar, sem þjóna mættu þeim tilgangi, að
sporna við verðbólguþróun og tryggja betur gildi þeirra kjara-
samninga, sem gerðir verða við atvinnurekendur.
Ráðstefnan telur rétt, að verkalýðsfélögin undirbúi sem fyrst samn-
ingagerðir sínar en fresti um sinn ákvörðun um, hverjar kröfur skuli
gerðar um hækkun kaups að krónutölu, meðan ekki verður séð, hversu
samningar takast við ríkisstjórnina um framangreind málefni, né
ráðið verðnr í, hverjar aðrar aðgerðir hún fyrirhugar í efnabagsmál-
um, sem kynnu að hafa úrslitaáhrif á kaupkröfur samtakanna.
Ráðstefnan telur nauðsynlegt, að sameiginleg nefnd allrar verka-
lýðshreyfingarinnar annist samningaviðræður við ríkisstjórnina og
samþykkir því að kjósa 14 menn til þess starfa. Jafnframt er nefnd-
inni falið það verkefni, að vera tengiliður milli starfsgreinasamband-
anna og annarra hugsanlegra samningahópa verkalýðsféiaganna í
væntanlegum samningum og aðgerðum öllum, er að þeim lúta, þ. á. m.
að samræma kaupkröfur þegar það telst tímabært samkvæmt fram-
ansögðu."
Þessar niðurstöður ráðstefnunnar voru og í fullu samræmi við
ályktun þings Alþýðusambandsins, sem haldið var í sl. nóvember-
mánuði, um kjaramál.
Róðstefna á Akureyri.
Ekki heyrðist mikið frá verkalýðsfélögunum fyrr en haldinn var
á vegum Alþýðusambands Norðurlands og Alþýðusambands Aust-
urlands ráðstefna á Akureyri þann 14. og 15. apríl. Þessi ráðstefna
samþykkti ályktun, þar sem m. a. eru gerðar kröfur um breyting-
ar á samningum í 15 liðum, en að öðru leyti hafði ráðstefnan þetta
að segja um kjaramálin:
„Ráðstefna Alþýðusambands Norðnrlands og Alþýðusambands Aust-
urlands, haldin á Akureyri 14. og 15. apríl 1965, lýsir fylgi sínu við
þá meginstefnu, sem mótuð var í kjaramálum verkafólks með ályktun
ráðstefnu ASÍ í marz sl. og við þá framkvæmd samningagerðar, sem
þar var ráðgerð.
Ráðstefnan telur nauðsynlegt, að öll verkalýðsfélög hefji nú um-
ræður um einstök atriði væntanlegra samninga og leggi sem fyrst
fram kröfur sínar um breytingar frá fyrri samningum.